Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka ENDALAUS 2.990 KR.* Endalaust sumar 1817 365.is GSM ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS OG 30 GB GAGNAMAGN* *Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar er að finna í GSM skilmálum á 365.is *30 GB gagnamagn er innifalið í hverjum mánuði en endalaust gagnamagn fyrir 2.000 krónur bætist við ef farið er umfram 30 GB Bakvið hvert orð er mynd sem skýtur upp kollinum þegar orðið er nefnt. Þegar ég heyrði orðið „götusópari“ hér áður fyrr, sá ég strax í hugskoti mínu mynd af manni með raunalegan svip og í óræstilegum vinnugalla. En svo breyttist þetta þegar ég fór að skokka í Fuengirola að morgni dags. Þar varð jafnan á vegi mínum sá allra glæsilegasti götusópari sem ég hef augum litið. Þetta er föngulega förðuð kona í svo skínandi hreinum og pent pressuðum vinnugalla, að hvorki sést blettur né felling á flík. Gallinn er líka þétt sniðinn að kven- legum vexti hennar þannig að fyrst hélt ég að þarna færi Paris Hilton að afplána dóm. Nema hvað, hár þessa glæsilega götusópara er biksvart og nær lengst niður á bak. Svo brestur hún stundum í svo ástríðufullan söng að jafnvel járnbrautarlestin beygir af. Þetta hefur orðið til þess að gamla myndin af eymdarlega sóparanum hefur horfið veg allrar veraldar. Nú hoppar hjarta mitt af kæti í hvert sinn sem ég heyri orðið „götu- sópari“. Til mikilla óheilla þá heyrist þetta orðið afar sjaldan svo ég varð að treysta á önnur trix til að halda mér kátum. Þess vegna réðst ég í það þarfaverk að endurskipuleggja þetta myndasafn. Nú sé ég til dæmis ekki smjörgreidda pabbastráka þegar minnst er á Sjálfstæðisflokkinn heldur Brynjar Níelsson í hláturs- kasti. Þetta gerir fréttatímann hress- andi. Myndin af Samfylkingunni er reyndar horfin og svo er ég að vinna í því að breyta Framsóknarflokkn- um en hrúturinn er þrjóskur. En svo eru til myndir sem ég tími ekki að breyta. Til dæmis sú sem er bakvið orðið „Ísland“, Sama hvað öllu hú-i, hóli og orðagjálfri landa minna líður, þá sé ég alltaf mömmu fyrir mér: „Svolítið meira kaffi?“ Glæsilegi götusóparinn 0 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 2 0 -1 8 3 0 1 A 2 0 -1 6 F 4 1 A 2 0 -1 5 B 8 1 A 2 0 -1 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.