Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 34
Inkasso-deild karla Selfoss - Keflavík 0-0 Körfubolti Stelpurnar í U-18 ára landsliði Íslands enduðu í 4. sæti B-deildar Evrópu- mótsins í körfubolta sem lauk í fyrradag. Íslenska liðið mætti því gríska í undanúrslitum á laugardaginn og var hársbreidd frá því að vinna og tryggja sér þar með sæti í A-deild. Staðan var jöfn, 58-58, þegar um 20 sekúndur voru til leiksloka en íslensku stelpurnar fóru illa að ráði sínu á lokasekúndunum og þurftu að sætta sig við tap, 65-61. Á sunnu- daginn tapaði íslenska liðið svo fyrir heimaliði Bosníu, 82-67, en sigur þar hefði einnig tryggt liðinu sæti í A-deild. „Þetta er besti árangur sem yngra landslið kvennamegin hefur náð og árangurinn var framar okkar vonum. Liðið var frábært á mótinu,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari íslenska liðsins, í samtali við Frétta- blaðið í gær en hann var þá staddur á flugvellinum í Sarajevo. „Stelpurnar fengu mikla reynslu og þær fengu mikið hrós. Það var lífsgleði og stemning í kringum liðið,“ sagði Ingi sem var ósáttur við aðstæður í leikjunum um helgina en það var gríðarlega heitt inni í höll- inni sem spilað var í. „Það var eins og maður væri að stíga upp úr sundlaug, það lak af manni svitinn. Ég hugsa að það hafi verið 45 stiga hiti inni í salnum,“ sagði Ingi og bætti því við að tank- urinn hafi einfaldlega verið tómur hjá íslenska liðinu í síðasta leiknum gegn Bosníu. Þess má svo geta að Sylvía Rún Hálfdanardóttir var valin í fimm manna úrvalslið mótsins. Sylvía spilaði fantavel á EM og var með 16,7 stig, 10,7 fráköst, 2,0 stoðsend- ingar og 3,4 stolna bolta að meðal- tali í leik. – iþs Liðið var frábært á mótinu Efri hlutinn KA 29 Grindavík 25 Leiknir R. 23 Keflavík 22 Þór 19 Selfoss 17 Neðri hlutinn Fram 16 Fjarðabyggð 14 HK 14 Haukar 14 Huginn 10 Leiknir F. 9 MILLIRIðILInn ByRjAR Í dAg Strákarnir í U-20 ára landsliðinu í handbolta hefja leik í milliriðli á EM í danmörku í dag. Ísland mætir þá Póllandi klukkan 12:00. Íslenska liðið mætir því franska á sama tíma á morgun. Ísland gerði jafntefli, 28-28, við Spán í lokaleik B-riðils á sunnudaginn. Spánverjar unnu riðilinn á betri markatölu en bæði lið tóku með sér eitt stig inn í milli- riðil. Íslenska liðið fór illa að ráði sínu undir lokin gegn Spánverjum en þegar tæpar tvær mínútur voru eftir leiddi Ísland með tveimur mörkum, 28-26. Spánverjar skoruðu hins vegar tvö síðustu mörk leiksins og tryggðu sér annað stigið og sigurinn í riðlinum. vAnn SItt FyRStA RISAMót Bandaríski kylfingurinn jimmy Walker hrósaði sigri á PgA- meistaramótinu í golfi sem lauk á sunnudaginn. Þetta var fyrsti sigur hins 37 ára gamla Walkers á risa- móti. Hann hafði betur í baráttu við jason day, efsta mann heims- listans. Walker lék lokahringinn á þremur höggum undir pari og samtals á 14 undir pari, einu höggi á undan day. Banda- ríkja- maðurinn daniel Summer- hays endaði í 3. sæti eftir góðan endasprett. Hann lék lokahringinn á fjórum undir pari og endaði á 10 undir pari. Hvenær kemur í ljós við hvern Gunnar Nelson berst næst? Kominn með leið á því að horfa á hann snúa niður fyllibyttur í Eyjum á Snap­ chat. Hjörvar Hafliðason @hjorvarhaflida ÞóRðUR HættUR HjÁ ÍA Þórður Þórðarson er hættur þjálfun kvennaliðs ÍA. Þórður lét af störfum að eigin ósk vegna persónulegra ástæðna. Kristinn guðbrandsson og Steindóra Steins- dóttir munu stýra liði ÍA út tíma- bilið. Skagakonur eru í vondum málum, með aðeins fjögur stig á botni Pepsi-deildarinnar. næsti leikur ÍA, og sá fyrsti undir stjórn Kristins og Steindóru, er gegn Þór/ KA á heimavelli á sunnudaginn. Golf Einvígið á nesinu, árlegt góð- gerðarmót nesklúbbsins og dHL Express, fór fram á nesvellinum í gær. Þetta var í 20. sinn sem mótið er haldið. Líkt og á fyrsta mótinu 1997 var leikið í þágu Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikra barna. Að mótinu loknu afhenti Atli Einarsson, framkvæmdastjóri dHL á Íslandi, Hákoni Hákonarsyni frá Umhyggju ávísun upp á eina millj- ón króna. tíu af bestu kylfingum lands- ins var boðið að taka þátt. Eins og venjulega var byrjað á níu holu höggleik um morguninn. Eftir hádegið hófst svo Einvígið sjálft þar sem einn keppandi datt út á hverri holu þar til tveir stóðu eftir. Að þessu sinni stóðu þeir Aron Snær júlíusson, sigurvegarinn frá því í fyrra, og heimamaðurinn Oddur óli jónasson síðastir eftir. Það fór svo að lokum að Oddur hafði betur eftir bráðabana og fagnaði því sigri í frumraun sinni á mótinu en hann öðlaðist þátttöku- rétt með því að vera klúbbmeistari nesklúbbsins 2016. „Þetta gekk mjög vel. Ég spilaði höggleikinn um morguninn mjög vel og svo hélt ég áfram að gera það sama eftir hádegi. Þetta gekk vonum framar. Ég bjóst kannski ekki við því sigra, ég ætlaði bara taka eina holu fyrir í einu,“ sagði Oddur í samtali við Fréttablaðið í gær. Þessi 29 ára kylfingur þekkir nes- völlinn betur en flestir og hann segir það hafa hjálpað til. „Ég þekki þennan völl eins og handarbakið á mér. Ég er búinn að vera í nesklúbbnum síðan 1999 og var vallarstarfsmaður í átta ár. Það má því segja að ég þekki hvert strá á vellinum. Það hjálpaði til að þekkja völlinn betur en þeir sem ég spilaði á móti,“ sagði Oddur sem hefur verið lengi að þótt hann sé ekki þekktasta nafnið í bransanum. „Ég er búinn að spila golf síðan ég var krakki. Ég spilaði á unglinga- mótaröðinni og á Eimskipsmóta- röðinni í mörg ár en hef lítið spilað undanfarin tvö ár vegna vinnu og annarra anna,“ sagði Oddur sem starfar sem flugþjónn auk þess sem hann leggur stund á flugnám. Oddur hrósaði hinum efnilega Aroni Snæ en þeir áttust við á loka- holunni eins og áður sagði. „Hann spilaði frábærlega í dag [í gær]. Hann gerði það sama í fyrra og ég gerði í ár, að vinna í fyrsta sinn sem hann tók þátt. Það virðist sem maður þurfi að passa sig á þeim sem taka þátt í fyrsta sinn á næsta ári. Það er ljóst,“ sagði Oddur í léttum dúr að lokum. ingvithor@365.is Ég þekki hvert strá á vellinum Heimamaðurinn Oddur Óli Jónasson vann Einvígið á Nesinu sem var haldið í 20. sinn á Nesvellinum í gær. Oddur hefur lítið spilað undanfarin tvö ár en hrósaði sigri í frumraun sinni á mótinu. Einvígið á Nesinu er árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL. Í ár fékk Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum, eina milljón króna. myND/HaUKUr óSKarSSoN oddur óli Jónasson hrósaði sigri á sínum heimavelli. myND/HaUKUr óSKarSSoN Íslensku stelpurnar og þjálfarar á góðri stund. myND/SigrÍðUr iNga viggóSDóttir 2 . á G ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A G U R22 s p o R t ∙ f R É t t A B l A Ð I Ð Sport 0 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 2 0 -3 5 D 0 1 A 2 0 -3 4 9 4 1 A 2 0 -3 3 5 8 1 A 2 0 -3 2 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.