Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 19
fólk kynningarblað 2 . á g ú s t 2 0 1 6 Þ R I Ð J U D A g U R Bjarney Bjarnadóttir, kennari, einkaþjálfari og handboltaþjálf- ari, reynir að stunda fjölbreytta þjálfun sem hún hefur gaman af. „Ég er með slæma brjóskeyðingu í öðru hnénu eftir íþróttameiðsl og það takmarkar mig töluvert en ég hef einbeitt mér að því sem ég get gert í staðinn fyrir að svekkja mig á því sem ég get ekki gert. Ég var eitthvað viðloðandi unglinga- landsliðið í handbolta á sínum tíma, en hætti frekar ung að spila með meistaraflokki vegna alvar- legra meiðsla. Ég spilaði þó hand- bolta í Englandi þegar ég bjó þar og varð bæði Englands- og bikar- meistari. Ég er með græna beltið í karate og æfði með landsliðinu í skvassi á tímabili en það var ekki af því að ég sé svona góð, frekar út af skorti á kvenfólki í íþrótt- inni! En mér skilst ég hafi verið efnileg,“ segir hún og hlær. Upp- talningunni er þó ekki lokið því Bjarney hefur líka keppt í fitness, hlaupið hálft maraþon, farið í fall- hlífastökk, gengið á Hvannadals- hnjúk og tekið þátt í alþjóðlegu „old girls“ íshokkímóti. Hvað æfir þú? Síðustu sautj- án árin hef ég stundað lyftingar/ styrktarþjálfun reglulega og það er algjörlega lykillinn að því að ég get gert allt það sem ég er að gera í dag. Ég hef kennt spinning í gegnum tíðina og reyni að fara í það reglulega þó ég sé hætt að kenna. Ég tók upp á því að byrja að æfa íshokkí í haust, byrjaði svo að fara aftur á skíði í fyrra eftir tuttugu ára pásu og fór á golfnám- skeið í vor. Hvað færðu þér í morgunmat? Mér finnst ekki þægilegt að borða um leið og ég vakna þannig að ég byrja alla morgna á acido philus, psyllium-trefjum og grænu tei en fæ mér svo að borða í kaffinu í vinnunni kl. 9.30 og þá yfirleitt gróft brauð eða hrökkbrauð með hollu viðbiti, stundum fæ ég mér hafragraut þegar hann er í boði. Hvað æfir þú oft í viku? Tvisv- ar til fimm sinnum. Ég er einstæð móðir og laga mína dagskrá að syni mínum en sem betur fer finnst honum gaman í barnagæslunni þannig að hann kemur yfirleitt með mér í ræktina. Íshokkíæfingarn- ar eru svo á kvöldin eftir að hann er sofnaður og þá veltur það á því hvort ég fæ pössun hvort ég kemst á þær. Þegar ég fer ekki á æfingu þá reyni ég að bralla eitthvað með stráknum, fara í sund, á skauta, út að hjóla og fleira og það er yfirleitt hellings æfing í sjálfu sér. Uppáhaldsæfingin? Íshokkíæf- ingarnar eru það skemmtilegasta sem ég geri en í ræktinni finnst mér skemmtilegast að taka hné- beygjur. Notar þú fæðubótarefni? Ég tek acidophilus, psyllium-trefjar, fjölvítamín og D-vítamín á hverj- um degi og svo tek ég járnkúra af og til, tek þá C-vítamín með til að auka upptöku járnsins. Ég á allt- af próteinduft heima og nota það stundum í boost. Annars reyni ég að borða mat þegar því verður við komið. Ég nota líka pre-workout áður en ég fer á æfingar. Hvað finnst þér gott að fá þér í kvöldmat? Miðað við hvað ég borða mikið af kjúklingi þá er í raun ótrúlegt að mér skuli ekki vaxa fjaðrir, en kjúlli í hinum ýmsu útgáfum finnst mér alltaf mjög góður. Mér finnst líka gott að fá mér mexíkóskan mat og það spillir ekki fyrir hversu einfalt það er að útbúa hann. Hvað færðu þér þegar þú ætlar að gera vel við þig? Ég elska pítsz- ur, ostafylltar brauðstangir og Vesturbæjarís. Svo var pipar- húðaða Nóa kroppið að koma ansi sterkt inn! Annars finnst mér líka mjög gaman að fara út að borða og láta atvinnumenn og -konur elda ofan í mig. Ertu morgunhani eða finnst þér gott að sofa út? Ætli ég sé ekki morgunhani, er frekar kvöldsvæf þannig að ég vakna þá snemma á móti, auk þess sem ég á lífræna vekjaraklukku sem heldur mér við efnið. En allt fyrir klukkan sjö telst ennþá nótt hjá mér og sem betur fer er afleggjarinn sam- mála. Ertu nammigrís? Já ég get ekki neitað því, það hefur reyndar minnkað með árunum, vil frek- ar nota hitaeiningarnar mínar í góðan mat heldur en næringar- lausan sykur. Það er samt ekk- ert ósennilegt að fólk sjái mér bregða fyrir í Nammilandi um helgar! liljabjork@365.is ÍshokkÍ það skemmtilegasta Bjarney Bjarnadóttir hefur stundað hinar ýmsu íþróttir og meðal annars orðið Englandsmeistari í handbolta. Hún hefur keppt í fitness, hlaupið langhlaup auk þess að vera nýbyrjuð í íshokkíi. Hingað til er það skemmtilegast. Bjarney reynir að stunda fjölbreytta þjálfun sem hún hefur gaman af og hefur æft ýmislegt í gegnum tíðina svo sem handbolta, íshokkí, karate og fitness. BílaBlaðið kemur út 9. ágúst Áhugasamir hafi samband við: atli Bergmann +354 512-5457 (Sími/Tel) +354 897-9144 (GSM/Mobile) atlib@365.is Í þessu blaði er hægt að kaupa auglýsingar sem og kynningar. 0 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 2 0 -4 E 8 0 1 A 2 0 -4 D 4 4 1 A 2 0 -4 C 0 8 1 A 2 0 -4 A C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.