Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.08.2016, Blaðsíða 8
Stjórnmál Guðni Th. Jóhannes- son, nýr forseti Íslands, var settur í embætti í Alþingishúsinu í gær. Hundruð mættu á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni en fyrri hluti hennar fór fram í Dómkirkj- unni. Eftir messu fluttu gestir sig um set yfir í þingsalinn. Honum hafði verið breytt svo fleiri myndu rúmast innan salarins. Á  meðal gesta voru ráðherrar, þingmenn, borgarstjóri, biskup, for- seti Hæstaréttar og fyrrverandi for- setarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Vigdís Finnbogadóttir. Þá voru allir formenn stjórnmálaflokka sem sæti eiga á þingi viðstaddir fyrir utan Sigmund Davíð Gunnlaugsson, for- mann Framsóknarflokksins. Mikil gleði ríkti á meðal þeirra sem komnir voru að fylgjast með. Sjá mátti íslenska fánann á lofti og enginn lét það trufla sig að ský hefðu dregið fyrir sólu eftir veður- blíðu undanfarinna daga. Eftir formlega athöfn skrifaði Guðni undir kjörbréf sem Markús Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar, rétti honum. Því næst hélt hann út á svalir Alþingishússins og heilsaði viðstöddum. Að því loknu flutti hann innsetningarræðu sína í þingsal. Guðni stiklaði á stóru í ræðu sinni og sagði meðal annars að sér væri efst í huga þakklæti fyrir það traust sem honum hefði verið sýnt að taka við embættinu. Hann sagði að forseti réði sjaldan úrslitum einn síns liðs en að hann teldi að hann eigi að standa utan sviðs stjórnmálanna. Hann eigi að vera óháður flokkum og fylkingum. Hann sagði hins vegar að hann myndi vekja máls á því sem honum byggi í brjósti, því sem vel væri gert en einnig því sem betur mætti fara. Guðni sagði að Ísland væri gott og friðsælt land og þar nytum við góðs af því sem eldri kynslóðir hefðu gert. Hins vegar mætti margt fara betur. Fólk ætti ekki að líða skort, allir ættu að eiga aðgang að heilbrigðis- þjónustu óháð efnahag og enn væri ekki í land komið í jafnréttisbarátt- unni. „Mér stendur nærri að nefna menntakerfið. Innan þess eiga allir að geta fundið sér farveg og nám við hæfi án þess að fjárhagur hamli för,“ sagði Guðni. Guðni minntist á það í ræðu sinni að kosið yrði til þings í haust. Í við- tali við Ríkisútvarpið sagði Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra það ekki hafa komið sér á óvart, enda hafi þeir rætt kosningar sín á milli. Að athöfninni lokinni bauð Guðni fjölda gesta til veislu á Bessastöðum, nýju heimili sínu. Starfsmaður for- setaembættisins sagði í samtali við Fréttablaðið að um 160 gestum hafi verið boðið, þó sé óvíst hversu margir hafi mætt. Á meðal gesta var fjölskylda Guðna sem og sjálfboða- liðar sem aðstoðuðu við framboð hans.  thorgnyr@frettabladid.is Sjötti forseti Íslands tekinn við völdum Embættistaka forseta Íslands fór fram í Alþingishúsinu í gær að lokinni messu í Dómkirkjunni. Nýr forseti minnti á að kosið verður til Alþingis í haust. Þá segir hann að Íslendingar gætu gert betur á sviði jafnréttis og menntunar sem og að enginn ætti að líða skort. guðni og eliza stíga úr forsetabílnum, komin á austurvöll, og heilsa viðstöddum. fréttablaðið/eyþór guðni og Markús sigurbjörnsson, forseti hæstaréttar, ganga saman að dóm- kirkjunni. að baki þeirra eru meðal annars forsætisráðherra og biskup Íslands. fréttablaðið/eyþór eliza horfir hlýlega til forsetans á svölum alþingishússins. fréttablaðið/eyþór guðni og eliza koma bakdyramegin heim til bessastaða í fyrsta skipti sem for- setahjón. frétablaðið/eyþór 2 . á g ú S t 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D A g U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A B l A Ð I Ð 0 2 -0 8 -2 0 1 6 0 4 :4 9 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 2 0 -3 F B 0 1 A 2 0 -3 E 7 4 1 A 2 0 -3 D 3 8 1 A 2 0 -3 B F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.