Fréttablaðið - 02.08.2016, Síða 8
Stjórnmál Guðni Th. Jóhannes-
son, nýr forseti Íslands, var settur
í embætti í Alþingishúsinu í gær.
Hundruð mættu á Austurvöll til
að fylgjast með athöfninni en fyrri
hluti hennar fór fram í Dómkirkj-
unni. Eftir messu fluttu gestir sig
um set yfir í þingsalinn. Honum
hafði verið breytt svo fleiri myndu
rúmast innan salarins.
Á meðal gesta voru ráðherrar,
þingmenn, borgarstjóri, biskup, for-
seti Hæstaréttar og fyrrverandi for-
setarnir Ólafur Ragnar Grímsson og
Vigdís Finnbogadóttir. Þá voru allir
formenn stjórnmálaflokka sem sæti
eiga á þingi viðstaddir fyrir utan
Sigmund Davíð Gunnlaugsson, for-
mann Framsóknarflokksins.
Mikil gleði ríkti á meðal þeirra
sem komnir voru að fylgjast með.
Sjá mátti íslenska fánann á lofti
og enginn lét það trufla sig að ský
hefðu dregið fyrir sólu eftir veður-
blíðu undanfarinna daga.
Eftir formlega athöfn skrifaði
Guðni undir kjörbréf sem Markús
Sigurbjörnsson, forseti Hæstaréttar,
rétti honum. Því næst hélt hann út
á svalir Alþingishússins og heilsaði
viðstöddum. Að því loknu flutti hann
innsetningarræðu sína í þingsal.
Guðni stiklaði á stóru í ræðu sinni
og sagði meðal annars að sér væri
efst í huga þakklæti fyrir það traust
sem honum hefði verið sýnt að taka
við embættinu.
Hann sagði að forseti réði sjaldan
úrslitum einn síns liðs en að hann
teldi að hann eigi að standa utan
sviðs stjórnmálanna. Hann eigi að
vera óháður flokkum og fylkingum.
Hann sagði hins vegar að hann
myndi vekja máls á því sem honum
byggi í brjósti, því sem vel væri gert
en einnig því sem betur mætti fara.
Guðni sagði að Ísland væri gott og
friðsælt land og þar nytum við góðs
af því sem eldri kynslóðir hefðu gert.
Hins vegar mætti margt fara betur.
Fólk ætti ekki að líða skort, allir
ættu að eiga aðgang að heilbrigðis-
þjónustu óháð efnahag og enn væri
ekki í land komið í jafnréttisbarátt-
unni. „Mér stendur nærri að nefna
menntakerfið. Innan þess eiga allir
að geta fundið sér farveg og nám við
hæfi án þess að fjárhagur hamli för,“
sagði Guðni.
Guðni minntist á það í ræðu sinni
að kosið yrði til þings í haust. Í við-
tali við Ríkisútvarpið sagði Sigurður
Ingi Jóhannsson forsætisráðherra
það ekki hafa komið sér á óvart,
enda hafi þeir rætt kosningar sín á
milli.
Að athöfninni lokinni bauð Guðni
fjölda gesta til veislu á Bessastöðum,
nýju heimili sínu. Starfsmaður for-
setaembættisins sagði í samtali
við Fréttablaðið að um 160 gestum
hafi verið boðið, þó sé óvíst hversu
margir hafi mætt. Á meðal gesta var
fjölskylda Guðna sem og sjálfboða-
liðar sem aðstoðuðu við framboð
hans. thorgnyr@frettabladid.is
Sjötti forseti Íslands tekinn við völdum
Embættistaka forseta Íslands fór fram í Alþingishúsinu í gær að lokinni messu í Dómkirkjunni. Nýr forseti minnti á að kosið verður til
Alþingis í haust. Þá segir hann að Íslendingar gætu gert betur á sviði jafnréttis og menntunar sem og að enginn ætti að líða skort.
guðni og eliza stíga úr forsetabílnum, komin á austurvöll, og heilsa viðstöddum. fréttablaðið/eyþór
guðni og Markús sigurbjörnsson, forseti hæstaréttar, ganga saman að dóm-
kirkjunni. að baki þeirra eru meðal annars forsætisráðherra og biskup Íslands.
fréttablaðið/eyþór
eliza horfir hlýlega til forsetans á svölum alþingishússins. fréttablaðið/eyþór
guðni og eliza koma bakdyramegin heim til bessastaða í fyrsta skipti sem for-
setahjón. frétablaðið/eyþór
2 . á g ú S t 2 0 1 6 Þ r I Ð j U D A g U r8 f r é t t I r ∙ f r é t t A B l A Ð I Ð
0
2
-0
8
-2
0
1
6
0
4
:4
9
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
2
0
-3
F
B
0
1
A
2
0
-3
E
7
4
1
A
2
0
-3
D
3
8
1
A
2
0
-3
B
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
6
C
M
Y
K