Fréttablaðið - 26.09.2016, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 26.09.2016, Blaðsíða 52
fram tilfinningar, platan er frekar frá­ brugðin því sem ég hef verið að gera, hún inniheldur reggí, sem ég elska. Reggí gerir fólk hamingjusamt og fær fólk til þess að líða vel og frjálst,“ segir hún í léttum tóni. Á löngum og farsælum tónlistar­ ferli sínum hefur Joss komið fram með fjölmörgum goðsögnum úr tónlistarheiminum, svo sem Rod Stewart, James Brown, Van Morri­ son, Jeff Beck, Lauryn Hill, LeAnn Rimes, Ricky Martin og Robbie Willi­ ams. Joss segir að það hafi verið gott að fá tækifæri til þess að vinna með fólki sem hún ber virðingu fyrir og lítur upp til í faginu „Það er erfitt að segja hverjum var best að vinna með, þau eru öll mjög ólík og ég vann með þeim á ólíkum tímum í lífinu, en það var frábært að vinna með þeim, það skiptir ekki máli hvort þau eru heimsfrægir tónlistarmenn, heldur snýst þetta um hvernig það er að skapa tónlist með góðu fólki og öllum í kring um þig, það eru allir partur af sköpuninni.“ Sem stendur er Joss á tónleika­ ferðalagi þar sem stendur til að spila í öllum löndum heimsins. „Við erum að spila á stöðum sem ég hef aldrei heyrt um áður, mig hefur alltaf langað til þess að koma í frí til Íslands, eftir að vinafólk mitt heimsótti landið og sagði það virki­ lega fallegt. Mig grunaði aldrei að ég ætti eftir að fá tækifæri til þess að spila hérna, svo það er óhætt að segja að ég hlakka mikið til,“ segir hún glöð. Þetta mun því verða í fyrsta sinn sem Joss Stone heimsækir Ísland og kveðst hún spennt fyrir landi og þjóð. Hún mun aðeins dvelja hér í fáeina daga en vonar að það dugi til þess að skoða sig um. „Ég verð að muna eftir því að ég er í vinnunni en markmið mitt er að búa til tónlist með einhverjum frá Íslandi, ég mun þó vonandi koma aftur til Íslands seinna, þegar ég er ekki að vinna, og skoða mig um.“ Hvað mega gestir Hörpu eiga vona á að heyra þegar þú kemur til landsins, verður lagið „You Had Me“ á lagalistanum, en það lag sló rækilega í gegn á útvarpsstöðvum landsins á sínum tíma? „Ég kem fram ásamt stórri hljómsveit og aðalmálið er að hafa gaman með gestum tón­ leikanna. Venjulega tek ég ekki þetta tiltekna lag, en ætli ég geri það ekki núna fyrst ég veit að fólk fílaði það,“ segir hún hlæjandi og bætir við að hún muni líka syngja lög af nýju plötunni sinni í bland við gamalt og gott efni. gudrunjona@frettabladid.is Söngkonan Joss Stone er væntanleg til Íslands í október, þar sem hún mun koma fram á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu. Söngkonan á langan feril að baki en hún hefur meðal ann­ ars hlotið Grammy­verðlaun og tvenn BRIT­verðlaun á ferli sínum. Aðeins þrettán ára gömul vann hún hæfileikakeppni á BBC­sjónvarps­ stöðinni og í kjölfarið fór boltinn að rúlla hjá þessari ungu söngkonu. „Þetta gerðist allt mjög hratt, ég tók þátt í hæfileikakeppni á sjón­ varpsstöðinni BBC þegar ég var þrettán ára gömul. Umboðsmaður­ inn minn hafði samband við mig stuttu eftir þetta kvöld og það var þá sem ég fór að vinna að minni fyrstu plötu,“ segir Joss Stone í viðtali við Fréttablaðið. Nýjasta plata hennar, Water for Your Soul, kom út 2015 og sýnir vel hvernig unglingsstúlkan með undra­ röddina hefur blómstrað og þroskast Snýst um að skapa tónlist Grammy- og Brit-verðlaunahafinn Joss Stone er væntanleg til Íslands í næsta mán- uði þar sem hún mun halda tónleika í Hörpu. Joss Stone vann hæfileikakeppni á BBC aðeins þrettán ára gömul og samdi við eitt stærsta útgáfufyrir- tæki heims fimmtán ára. Hún hefur selt yfir tólf milljónir platna á heimsvísu. Hún hefur komið fram með fjöl- mörgum goðsögnum og súper- stjörnum, svo sem Rod Stewart, James Brown, Van Morrison, Jeff Beck, Lauryn Hill, Leann Rimes, Ricky Martin og Robbie Williams. Hún var í hljómsveitinni Super- heavy með Mick Jagger. Hún var yngsti kvenkyns lista- maður allra tíma sem komst á topp metsölulista yfir hljóm- plötur í Bretlandi. langur ferill að baki Nýja platan, Water for Your Soul, sýnir hún hefur blómstr- að og orðið að veigamiklum listamanni. MYNd/GettY sem listamaður „Ég er mikið fyrir sálartónlist, og tónlist sem kallar 2 6 . S e p t e M B e R 2 0 1 6 M Á N U D A G U R20 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð Lífið Á tónleikunum í Hörpu 30. október mun Joss Stone flytja lög af nýju plötunni í bland við helstu smelli. MYNd/GettY. Ég er mikið fyrir SálartónliSt, og tónliSt Sem kallar fram tilfinningar, platan er frekar frábrugðin því Sem Ég hef verið að gera, hún inni- heldur reggí, Sem Ég elSka. 2 6 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 1 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A A E -3 8 A 0 1 A A E -3 7 6 4 1 A A E -3 6 2 8 1 A A E -3 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 2 5 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.