Fréttablaðið - 26.09.2016, Blaðsíða 42
Hjálparsíminn er opinn allan sólarhringinn og sjálfboðaliðar Rauða krossins eru ávallt reiðubúnir að hlusta.
Sjálfsvíg eru algengasta dánaror
sök íslenskra karlmanna á aldr
inum 18 til 25 ára. Á bilinu sjö til
níu karlar falla fyrir eigin hendi
á þessum aldri á Íslandi á hverju
ári.
Átak sem bar árangur
Vitundarvakning Útmeð’a vakti
mikla athygli og var forvarnar
myndbandi undir merkjum þess
dreift oftar en nokkru öðru
fræðslumyndbandi á samfélags
miðlum, nálægt 15.000 sinnum,
á árinu 2015. Vitundarvakningin
skilaði sér í 18% fjölgun erinda
vegna sjálfsvíga til Hjálparsímans
frá árinu 2014 til 2015. Um 20%
fjölgun varð á erindum af sama
tagi til Geðhjálpar haustið 2015
miðað við haustið á undan.
Nýtt ár, nýr fókus
Í öðrum áfanga Útmeð’a er
áhersla lögð á að fá ungar konur
til að tjá sig um vanlíðan sína og/
eða leita sér sérhæfðrar aðstoð
ar til að koma í veg fyrir sjálfs
skaða og sjálfsvíg. Alls leita á bil
inu 500 til 600 manns með sjálfs
skaða á slysa og göngudeildir á
Íslandi á hverju ári. Af þeim leggj
ast um 120 inn á sjúkrahús og eru
ungar konur þar í meirihluta. Með
gagnvirku forvarnarmyndbandi
og heimasíðu með upplýsingaefni
fyrir ungt fólk, aðstandendur og
fræðara hvetja félögin ungt fólk
og veita því aðstoð við að leita sér
ráðgjafar áður en öll sund virðast
lokuð.
Umfjöllun hvetur fólk
til að leita sér hjálpar
Gagnvirka myndbandið og heima
síðan voru opnuð á málþingi
sam ráðs hóps um Alþjóðlegan
forvarnar dag sjálfsskaða og sjálfs
víga en fullt var út úr húsi og færri
komust að en vildu. Í kjölfarið var
efninu dreift til almennings í því
skyni að ná til sem flestra sem
eiga við vanda að stríða. Fjölmarg
ar rannsóknir hafa sýnt fram á að
umfjöllun um sjálfsskaða og sjálfs
víg veldur því að fleiri leita sér
hjálpar með þeim afleiðingum að
líðan fólks batnar og sjálfsskaða
og sjálfsvígum fækkar. Verkefn
ið hefur fengið frábærar viðtök
ur en þannig hafa þúsundir deilt
nýju forvarnarmyndbandi á sam
félagsmiðlum á borð við Facebook
og Twitter. Á vefnum, undir slóð
inni utmeda.is, má finna gríðar
lega mikið efni, sett upp á mynd
rænan og notendavænan hátt. Á
honum má finna upplýsingar fyrir
þau sem standa í þessum sporum,
aðstandendur þeirra og almennar
upplýsingar um þennan málaflokk.
Vefurinn er fyrir alla enda ítarleg
ar upplýsingar um sjálfsvígs og
sjálfskaðahugsanir, af hverju þær
stafa, hvaða skref sé hægt að taka
til leita bata og hvert hægt sé að
snúa sér, ásamt svo miklu meira
efni. Hjálparsíminn 1717 hvetur
allt fólk sem á við vandamál að
stríða til að koma Útmeð’a!
Konur hvattar til að koma
„Útmeð’a“ hjá Hjálparsímanum 1717
Hjálparsími Rauða krossins 1717 og Geðhjálp leiddu saman hesta sína undir merkjum Útmeð’a haustið 2015. Efnt var til vitundarvakningar
til að hvetja unga karlmenn til að tjá sig um tilfinningar sínar og/eða leita sér aðstoðar til að takast á við andlega erfiðleika og draga þar
með úr líkum á sjálfsvígum. Í öðrum áfanga Útmeð’a er áhersla lögð á að fá ungar konur til tjá sig um vanlíðan sína.
Verkefnið hefur
fengið frábærar
viðtökur en þannig hafa
þúsundir deilt nýju
forvarnarmyndbandi á
samfélagsmiðlum. Á
vefnum, undir slóðinni
utmeda.is, má finna
gríðarlega mikið efni,
sett upp á myndrænan
og notendavænan hátt.
HjÁlpin Fréttablað Rauða Krossins
26. september 201612
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
E
-1
B
0
0
1
A
A
E
-1
9
C
4
1
A
A
E
-1
8
8
8
1
A
A
E
-1
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K