Fréttablaðið - 26.09.2016, Blaðsíða 20
Eldri borgarar fá fræðslu um ör-
yggi á heimilum á námskeiðinu
Öryggismál aldraðra. Það er Ísa-
fjarðardeild Rauða krossins sem
hefur unnið að verkefninu og
þróað í samstarfi við fjölmarga
aðila síðan 2008. Viðtökurnar hafa
verið góðar hjá eldri borgurum
fyrir vestan.
Öryggismál aldraðra er verkefni
sem Rauði krossinn á Ísafirði hefur
unnið að og þróað í samstarfi við
fjölmarga aðila frá árinu 2008. Um
er að ræða námskeið þar sem eldri
borgarar fá fræðslu um öryggi á
heimilum sínum en þar er farið
yfir ýmis atriði sem mikilvægt er
að huga að þegar árin færast yfir
að sögn Hrefnu R. Magnúsdóttur,
formanns Ísafjarðardeildar Rauða
krossins.
Hún segir hugmyndina að verk-
efninu í sjálfu sér ekki flókna. „Ég
er menntaður þroskaþjálfi og hef
m.a. starfað sem ráðgjafi hjá skóla-
og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðar-
bæjar auk þess sem ég hef unnið
að sjálfboðaliðastörfum hjá Rauða
krossinum. Ég var heimsóknarvin-
ur hjá eldri konu frá árinu 2001 og
fannst að það mætti bæta þjónustu
við eldri borgara á svæðinu og þá
sérstaklega í tengslum við öryggis-
mál. Einnig fannst mér vanta ýmsa
fræðslu, bæði til þeirra sem eru
komnir á efri ár en líka til aðstand-
enda og þjónustuaðila. Því vantaði
að mínu mati meira samráð og sam-
starf á milli þjónustuaðila og stofn-
ana og upplýsingar um hvert fólk
á þessum aldri gæti leitað eftir að-
stoð, ráðgjöf og fleiri þáttum.“
Meðal þeirra sem hafa komið
að verkefninu eru starfsmenn á
landsskrifstofu Rauða krossins,
aðrar deildir á svæðinu, Félag
eldri borgara í Ísafjarðarbæ,
starfsfólk í heimahjúkrun og
heimaþjónustu hjá Ísafjarðarbæ,
slökkviliðs- og sjúkraflutninga-
menn, annað fagfólk og sjálfboða-
liðar.
Námskeiðin eru byggð upp sem
fjögur tveggja klukkustunda nám-
skeið. „Á þeim er fjallað um bruna-
og slysavarnir, öryggi innan sem
utan heimilis, fyrstu viðbrögð,
skyndihjálp, sálrænan stuðning,
hjálpartæki og þá þjónustu sem er
í boði fyrir eldri borgara á svæð-
inu. Kennslan byggir á verklegum
æfingum, umræðum og fyrirlestr-
um. Þátttakendur mæta tvo daga í
röð og síðan aðra tvo viku seinna.
Þess á milli vinna þátttakendur
ýmis heimaverkefni.“
Viðtökur hafa verið góðar að
hennar sögn en leiðbeinendur
hafa haldið námskeið á Ísafirði
og í Bolungarvík auk þess sem
hluti fræðsluefnisins var kynnt-
ur fyrir einstaka hópum, félög-
um eldri borgara á svæðinu,
starfsfólki sem vinnur með öldr-
uðum, aðstandendum og þátttak-
endum og fleirum á landsmóti
UMFÍ 50+ sem haldið var á Ísa-
firði í sumar.
Bætt þjónusta við eldri borgara
Rúna og Dóri maðurinn hennar á harmónikuballi.
Reglulega eru haldin harmóníku-
böll í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Þangað koma eldri borgarar víða
að af Vestfjörðum til að dansa og
skemmta sér. Sigrún J.G. Sigurðar-
dóttir er ein af upphafskonum
ballsins.
„Okkur Karen Ragnarsdótt-
ur heitinni, vinkonu minni, fannst
vanta ball enda höfðum við báðar
sama áhugamálið, að valsa eftir
harmóníku. Við ákváðum því einn
daginn að redda þessu sjálfar,“
segir Sigrún, sem ávallt er köll-
uð Rúna. „Karen sagði við mig:
ef þú reddar harmóníkuköllum þá
redda ég húsi,“ lýsir Rúna hlæj-
andi. „Þetta var mjög skemmtilegt
en kostaði peninga sem við vorum
tilbúnar að borga úr eigin vasa. Svo
frétti Rauði krossinn af þessum
böllum og þar sem lítið var verið
að gera fyrir eldri borgara á Ísa-
firði ákvað fólkið þar að koma með
okkur í þessa skipulagningu.“
Fyrstu árin voru böllin haldin
tvisvar í mánuði. „En í hittiðfyrra
var veðráttan svoleiðis að sjaldan
var hægt að halda ball og því voru
aðeins tvö böll þann veturinn. En í
fyrra vorum við með nokkur böll
og svo erum við að fara af stað með
þau aftur núna. Við höfum enga
reglu á þessu, skellum bara upp
balli þegar okkur dettur í hug,“
segir hún glaðlega.
Rúna segir mætinguna góða,
yfir leitt mæti milli þrjátíu og fjöru-
tíu manns en mest hafi mætt um
sjötíu. „Við dönsum valsa, tangó,
polka og tjúttum þegar okkur lang-
ar,“ segir Rúna en dansarar eru allt
frá fimmtugu og upp í nírætt.
Tónlistarfólkið gefur allt vinnu
sína við böllin. „Í nokkur ár voru
það bræður á Núpi sem spiluðu
mikið fyrir okkur og harmón-
íkusveit á Þingeyri. Nú erum við
komin með sjálfan BG, Baldur
Geirmundsson, og svo Árna stór-
bónda á Vöðlum.“
Fólk kemur víða að, frá Bolungar-
vík, Önundarfirði, Súgandafirði,
Dýrafirði, Súðavík og Ísafirði.
„Duglegastir eru Bolvíkingarnir
sem eru alltaf vel dansandi,“ segir
Rúna og bætir við að fólk láti vond
veður sjaldan stoppa sig.
Harmóníkuböllin eru þekkt
fyrir fínar veitingar. „Við Karen
heitin vorum lengi vel með klein-
ur og ástarpunga. Nú erum við með
einhverjar hnallþórur,“ segir Rúna
en aðgangur að ballinu er ókeypis.
„Svo höfum við bara Rauðakross-
baukinn á borðinu.“
Tjúttað á harmóníkuballi
Verkefnið Tölum saman á Pat-
reksfirði hefur gefist vel en á því
er erlendum konum kennt daglegt
íslenskt mál af íslenskum sjálf-
boðaliðum Rauða krossins.
Sjálfboðaliðar í verkefninu
eru tveir, þær Ásdís Ásgeirsdótt-
ir, sem hefur verið með frá upp-
hafi og er verkefnastjóri, og Jón-
ína Hjaltadóttir.
„Þátttakendurnir eru þrjár
pólskar konur sem hafa búið hér
á landi í tíu til fimmtán ár. Við
hittumst einu sinni í viku í hús-
næði sem heitir Selið sem Vestur-
byggð leggur til verkefnisins. Sitj-
um bara við borðstofuborðið og
höfum það huggulegt. Við ræðum
um það sem er efst á baugi hér
og æfum líka ákveðna þætti í ís-
lenskri málfræði,“ útskýrir Ásdís.
Verkefnið hefur reynst mjög
vel og mikill áhugi og árangur
sem hefur náðst hjá þátttakend-
um. „Þessar konur eru komnar
langt í íslenskunni og eru farn-
ar að vera kröfuharðar á að tala
rétt. Þær spyrja mikið, til dæmis
um hvernig hitt og þetta er sagt
og hvort eitthvert ákveðið orð sé í
karlkyni eða kvenkyni. Við förum
því líka töluvert út í erfiðari hluti
og þær eru mjög nákvæmar, þess-
ar konur,“ segir Ásdís brosandi.
Verkefnið hefur verið í gangi
í rúma tvo vetur og gengur fyrst
og fremst út á að kenna konun-
um daglegt íslenskt mál svo þær
eigi auðveldara með að taka þátt
í lífinu á Íslandi. „Við reynum að
hjálpa þeim að samlagast okkur
betur og markmiðið er að gera
Miklar framfarir þátttakenda
Sigrún J. G.
Sigurðardóttir
Aldur: 75 ára
Hve lengi hefur
þú starfað með
Rauða krossin-
um? Allt frá 1996
þegar flóttamenn-
irnir frá fyrrum
Júgóslavíu komu
til Ísafjarðar
Áhugamál: Dans
og útivera
Fjölskyldustaða:
Vel gift
Uppáhaldsmatur:
Steinbítur
Uppáhaldsstaður
á Íslandi: Hraun í
Hnífsdal
Ásdís Ásgeirsdóttir
Aldur: 64 ára
Hve lengi hefur þú starfað með
Rauða krossinum? Hef starf-
að við þetta verkefni frá upphafi
þess, snemma árs 2014
Áhugamál: Hef áhuga á prjóna-
skap
Fjölskyldustaða: Ekkja
Uppáhaldsmatur: Fiskur
Uppáhaldsstaður á Íslandi: Upp-
sveitir Borgarfjarðar
Jónína Hallfríður Hjaltadóttir
Aldur: 64 ára
Hve lengi hefur þú starfað með
Rauða krossinum? Hef starfað
við þetta verkefni síðan í septem-
ber 2015
Áhugamál: Bóklestur
Fjölskyldustaða: Í sambúð
Uppáhaldsmatur: Sunnudagslær-
ið hennar mömmu
Uppáhaldsstaður á Íslandi:
Kaldakinn í S-Þingeyjarsýslu
Hrefna Magnúsdóttir
leiðbeinir eldri borgara á
námskeiðinu. MYND/JÓN
AÐALSTEINN BERGSVEINSSON
Rauða kross bandið er skipað
söngelskum sjálfboðaliðum á Ísa-
firði sem mæta alla fimmtudaga á
hjúkrunarheimilið Eyri og syngja
og spila. Guðrún Guðmundsdóttir
segir sönginn lífsfyllingu.
„Ég var að vinna í afgreiðslunni
á spítalanum og í föndrinu. Við
fórum tvær að fara einn dag í viku
upp á öldrunardeild og syngja og
spila með fólkinu. Þegar söngur-
inn barst um bættist fólk í hópinn
og tók undir. Okkur datt bara í hug
að þetta gæti verið gott fyrir fólk-
ið,“ segir Guðrún Guðmundsdóttir,
ein meðlima Rauða kross bandsins
svokallaða sem hefur undanfar-
in ár sungið og spilað einu sinni í
viku, fyrst á öldrunardeild Sjúkra-
húss Ísafjarðar og svo á hjúkrun-
arheimilinu Eyri.
„Það hefur bæst í hópinn, þetta
eru allt konur sem eru hættar að
vinna og við erum á bilinu 6 og
7 í Rauða kross bandinu,“ bætir
hún við og segir nafnið hafa orðið
óvænt til.
„Nafnið kom nú til þegar við
vorum eitt sinn að syngja á Hlíð,
sú sem kynnti okkur á svið sagði
hátt og snjallt „næsti liður á dag-
skrá er The Red Cross band“, það
kom alveg flatt upp á okkur en
nafnið festist. Við erum enn að.
Þetta er alveg orðinn fastur liður,“
segir Guðrún.
„Þetta eru allt lög sem fólkið
hefur lært sem börn. Ég man sér-
staklega eftir einni gamalli konu
sem var alveg rúmföst en starfs-
fólkið kom með hana fram því hún
hafði alltaf verið syngjandi áður
en henni versnaði. Þegar við sung-
Tónlistin það síðasta sem fer
þær virkari í samfélaginu. Við
útskýrum íslenska siði og menn-
ingu, og af hverju við gerum hitt
og þetta. Það er líka okkar hlut-
verk að koma inn á það sem er að
gerast hér í bæjarfélaginu.“
Ásdís segir konurnar hafa tekið
miklum framförum á þessum
tíma sem verkefnið hefur staðið
yfir. „ Það var afskaplega gaman
að heyra frá túlki sem kom að
sunnan sem talaði sérstaklega um
það hvað þær hefðu tekið miklum
framförum á milli þess sem hann
kom. Þegar við kláruðum nám-
skeiðið á fyrsta árinu fórum við á
kaffihús og sögðum í gríni að það
væri skilyrði að þær pöntuðu sér
sjálfar á íslensku. Ef þær gerðu
það ekki þyrftu þær að borga
sjálfar. Önnur okkar neyddist
hins vegar til að borga fyrir þær
af því þær voru orðnar svo flink-
ar,“ segir Ásdís og hlær.
Hrefna R. Magnúsdóttir
Aldur: 49 ára
Hversu lengi hefur þú starf-
að með Rauða krossinum? Síðan
2001
Helstu áhugamál: Að njóta nátt-
úrunnar á ýmsan hátt, ferðast og
fleira
Fjölskyldustaða: Er gift og á tvö
börn.
Uppáhaldsmatur: Lambakjöt og
litrík salöt
Uppáhaldsstaður á Íslandi: Hest-
eyri ( í Jökulfjörðum)
Guðrún Guðmundsdóttir
Aldur: 73
Áhugamál: Spilar á gítar og
syngur í kór
Fjölskyldustaða: 4 uppkom-
in börn, 13 barnabörn, 6 lang-
ömmubörn
Uppáhalds matur: Appelsínuönd
Uppáhaldsstaður á Íslandi: Ísa-
fjörðurinn
um Ef væri ég söngvari runnu
tárin niður kinnarnar á henni. Þeir
segja að tónlistin sé það síðasta til
að fara. Þetta gefur fólkinu mikið
og er ákveðin fylling í okkar líf
einnig. Við erum tvær með gítara
og svo syngur bara hver með sínu
nefi. Við erum ekkert að stressa
okkur á æfingum. Við syngjum
ástarlög inn á milli og stundum
lög með örlítið tvíræðum texta, þá
er mikið hlegið. Það syngja alltaf
allir með.“
HJÁLpIN Fréttablað Rauða Krossins
26. september 20166
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
E
-4
7
7
0
1
A
A
E
-4
6
3
4
1
A
A
E
-4
4
F
8
1
A
A
E
-4
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K