Fréttablaðið - 26.09.2016, Blaðsíða 40
Hjúkrunarkona Rauða krossins, Nicole Rähle frá Sviss, hugar að ungum skjólstæðingi.
Björgunarvestum er kastað til flóttamanna. Enginn var með björgunarvesti og fæstir kunnu að synda.
Þessi faðir var ánægður með að vera kominn í skjól með son sinn.
Lítill drengur er færður yfir í björgunarbát.
Ítalski Rauði krossinn, ásamt
Alþjóðasambandi landsfélaga
Rauða krossins og Rauða hálf
mánans, ákvað að hefja rekstur á
tveimur björgunarskipum í sam
starfi við samtökin MOAS (Mi
grant OffShore Aid Station). Hið
fyrra, Phoenix, hóf störf í júlí og
þann 10. ágúst síðastliðinn bætt
ist björgunarskipið Responder
í hópinn. Árangur björgunar
starfsins hefur síðan þá verið
ótrúlegur.
Meiri hætta á leið til Ítalíu
Allt frá því að landamærum
Grikklands til Makedóníu var
lokað hefur straumur flóttafólks
snúist til Ítalíu. Sjóleiðin sem
áður var farin um Grikklandshaf
var ekki lengur fýsileg. En þrátt
fyrir síendurtekinn sjó skaða setti
flóttafólk sig í lífshættu með því
að stíga upp í illa útbúna og of
hlaðna báta, hvort heldur úr
gúmmíi eða tré. Það sama á við
um sjóleiðina frá Líbíu til Ítalíu,
flóttafólk leggur sig í lífshættu
með þá von í brjósti að komast
á öruggar slóðir fjarri vopnuð
um átökum. Hættan er þó tals
vert meiri á þessum slóðum. Haf
straumar eru þyngri og leiðin er
lengri. Sjóförum er ýtt á haf út
um miðja nótt, oftast með lítið
annað en stjörnurnar til að vísa
veginn. Engin ljós, engin neyðar
blys. Fá, ef nokkur, björgunar
vesti.
Mikill árangur á skömmum tíma
Björgunaraðgerðir Phoenix og
Responder hafa borið ótrúlegan
árangur. Áður en verkefnið hófst
var búist við að mögulega væri
hægt að bjarga um 1.100 manns
lífum á mánuði. En verkefnið
hefur gengið enn betur. Þegar
þetta er skrifað hefur tekist að
bjarga meira en 2.000 manns
lífum og oftar en ekki úr bátum
sem var við að hvolfa eða voru
hreinlega sokknir. Þar að baki
liggur gífurleg vinna sem má
þakka reynslumiklu liði MOAS
sem nýtir sér nýjustu tækni við
björgunarstörf, þar á meðal við
flygildi (dróna) sem vakta stór
svæði og leita að óöruggum sjó
förum.
Neyðarsöfnun í fullum gangi
Rauði krossinn á Íslandi ákvað að
svara neyðarkalli ítalska Rauða
krossins og Alþjóðasambands
landsfélaga Rauða krossins og
Rauða hálfmánans í sumar og
tekur þátt í að fjármagna björg
unaraðgerðir. Nú þegar hafa 12,3
milljónir króna verið veittar til
aðgerðanna auk þess sem Rauði
krossinn á Íslandi hóf neyðar
söfnun sem er enn í fullum gangi.
Björgunaraðgerðirnar standa
yfir til 1. ágúst 2017 hið minnsta
og enn á eftir að fjármagna hluta
þeirra. Því skiptir hvert einasta
framlag máli. Björgunaraðgerð
ir Rauða krossins í Miðjarðar
hafi bjarga mannslífum á hverj
um einasta sólarhring.
Rúmlega 2000
mannslífum hefur
þegar verið bjargað
Frá því í sumar hefur Rauði krossinn staðið fyrir metnaðarfullu björgunarstarfi á
Miðjarðarhafi, nánar tiltekið við sjóleiðina frá Líbíu til Ítalíu. Á fyrstu sjö mánuðum
ársins höfðu, þá þegar, um 3.000 flóttamenn drukknað á þessari leið.
HjáLpiN Fréttablað Rauða Krossins
26. september 201610
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
E
-2
E
C
0
1
A
A
E
-2
D
8
4
1
A
A
E
-2
C
4
8
1
A
A
E
-2
B
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K