Fréttablaðið - 26.09.2016, Blaðsíða 2
www.lyfja.is
Heilsutjútt
26. sept.–3. okt. 30%
AFSLÁ
TTUR
Allt að
af heils
uvörumNýttu tækifærið og hugaðu
að heilsunni. Kíktu í bækling
Lyfju og skoðaðu úrval tilboða
á völdum heilsuvörum.
Veður
Norðvestan 10-15 m/s á annesjum
norðanlands í dag, annars hægari
vindur. Rigning eða slydda norðvestan
til og einnig við norðausturströndina,
en þurrt og bjart veður á Suður- og
Austurlandi. sjá síðu 16
sviss Yfirvöld í Sviss fá heimild til
þess að hlera síma, lesa tölvupósta
og nota faldar myndavélar og annan
hlerunarbúnað í kjölfar þess að lög-
gjöf um slíkar heimildir var samþykkt
í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær.
Alls samþykktu um 65 prósent
kjósenda lögin. Umræddar heimildir
eru þó háðar samþykki dómstóla,
varnarmálaráðuneytis og ríkis-
stjórnar.
Andstæðingar löggjafarinnar hafa
lýst yfir áhyggjum sínum um að hún
grafi undan friðhelgi einkalífsins en
ríkisstjórnin fullyrðir að einungis
verði sóst eftir slíkum heimildum til
að fylgjast með einstaklingum sem
taldir eru ógna þjóðaröryggi.
Guy Parmelin, varnarmálaráðherra
landsins, segir lögin ekki sambærileg
föðurlandslöggjöf Bandaríkjanna.
Segir Parmelin að sú löggjöf, sem
heimilar víðtækar persónunjósnir,
fari langt yfir strikið og brjóti á frið-
helgi einkalífsins. – þea
Sviss samþykkir
eftirlitslöggjöf
stjórnmál Gunnar Bragi Sveins-
son, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, hefur herst í stuðningi
sínum við Sigmund Davíð Gunn-
laugsson eftir atburði síðustu daga.
Segir hann Sigurð Inga og Eygló
Harðardóttur hafa unnið saman að
því að grafa undan formanni flokks-
ins og segir það svik.
„Ég styð enn þá Sigmund Davíð
eins og ég hef stutt hann alla tíð og
hef bara herst í þeirri afstöðu eftir
vendingar helgarinnar. Það sem
ég á við með því er að Eygló og Sig-
urður Ingi hafa unnið að því í sam-
einingu að grafa undan formanni
flokksins og ætla sér að komast til
valda í flokknum,“ segir Gunnar
Bragi. „Átökin eru augljós en ef við
kjósum sterka forystu með Sigmund
Davíð og Lilju Alfreðsdóttur þá tel
ég okkur geta náð góðum árangri
í kosningunum í lok október og
komist í ríkisstjórn.“
Lilja Dögg Alfreðsdóttir sagðist
í gær einnig styðja formanninn til
endurkjörs. Því hafa allir oddvitar
Framsóknarflokksins gefið upp
afstöðu sína. Oddvitarnir í Suður-
kjördæmi og Norðausturkjördæmi
stefna báðir á formannssætið en
hinir fjórir skiptast jafnt á milli
þeirra. Því eru átakalínurnar nokk-
uð augljósar í flokknum. Grétar Þór
Eyþórsson, prófessor við Háskólann
á Akureyri, segir flokkinn augljós-
lega klofinn í afstöðu sinni. „Þetta
virðist vera farið að skýrast nokkuð
mikið. Þó flokkurinn sé alls ekki
klofinn í afstöðu til málefna þá er
klofningur innan flokksins um það
hver eigi að stjórna honum í nán-
ustu framtíð,“ segir Grétar Þór.
Gunnar Bragi segir Sigmund
Davíð líklegan til að geta komið
Gunnar segir grafið
undan formanninum
Gunnar Bragi Sveinsson styður Sigmund Davíð og Lilju Alfreðsdóttur til að leiða
flokkinn í komandi kosningabaráttu. Segir hann varaformann og ritara flokksins
reyna að grafa undan formanni og augljósar klofningslínur hafa myndast.
Þegar allt lék í lyndi. Nú berjast þau um stjórnartaumana í flokknum. Sigurður Ingi
og Eygló gegn Sigmundi Davíð og Lilju Alfreðsdóttur. Gunnar Bragi styður síðar-
nefnda hópinn dyggilega. Brátt kemur í ljós hvorir hafa betur. FréttABLAðIð/VILhELm
Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Gunn-
ar Bragi Sveinsson hafa lýst yfir
stuðningi við Sigmund Davíð Gunn-
laugsson.
Eygló Harðardóttir og Karl Garðars-
son hafa lýst yfir stuðningi við Sigurð
Inga Jóhannsson.
Oddvitar í tveimur fylkingum
flokknum í ríkisstjórn og blæs á
þær vangaveltur að fáir vilji vinna
með honum. „Þegar í kosningar og
svo stjórnarmyndunarviðræður er
komið velta menn því ekki fyrir
sér og láta það ekki hafa áhrif á sig.
Sigmundur hefur sýnt það að hann
getur unnið stórsigra og er vel til
þess fallinn að leiða flokkinn.“
sveinn@frettabladid.is
stjórnsýsla Páll Winkel fang-
elsismálastjóri braut lagareglur
með ummælum í fjölmiðlum um
fyrrverandi stjórnendur Kaup-
þings á meðan þeir afplánuðu á
Kvíabryggju. Þetta er niðurstaða
umboðsmanns Alþingis, en frétta-
stofa RÚV greindi frá henni í gær.
Fangarnir kvörtuðu undan ummæl-
um Páls um að þeir hafi viljað rauð-
vín með matnum á Kvíabryggju og
að almannatengslafyrirtæki hafi
haft samband við hann í kjölfar
fréttar í tengslum við málið.
Í öðru lagi fullyrtu þeir að Michael
Moore kvikmyndagerðarmaður
hefði, með leyfi Páls, fengið aðgang
að fangelsinu til að ná af þeim
myndum. Í þriðja lagi kvörtuðu þeir
yfir ummælum Páls sem þeir túlkuðu
sem dylgjur um mútur fanga. Í fjórða
lagi kvörtuðu þeir yfir fréttum þess
efnis að til hafi staðið að þeir færu
á reiðnámskeið á Kvíabryggju og
ummælum Páls um þær fréttir. – jhh
Braut á rétti
bankamanna
stjórnmál Almennar stjórnmála-
umræður, eldhúsdagsumræður, fara
fram klukkan 19.40 í kvöld og verða
sendar út í útvarpi og sjónvarpi.
Starfsáætlun Alþingis gerir svo ráð
fyrir að síðasti þingfundur fyrir kosn-
ingar fari fram á fimmtudaginn. Einar
K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, er
ekki tilbúinn til þess að fullyrða að
sú starfsáætlun standist.
„Ég treysti mér nú bara ekki til
þess að segja það á þessu stigi. Það er
auðvitað ljóst mál að það er farið að
þrengja mjög að þessu tímaplani og
þess vegna mikilvægt að gera sér grein
fyrir því hvaða mál muni klárast áður
en þingi lýkur,“ segir Einar.
Vegna eldhúsdagsumræðna verða
engir aðrir þingfundir á morgun. – jhh
Óvíst um þinglok
Einar K.
Guðfinnsson,
forseti Alþingis
Athyglin á besta vini mannsins
Smáhundasýning Hundaræktarfélags íslands og Garðheima fór fram um helgina. Þar var fjöldi smáhunda af ýmsum gerðum ásamt eigendum þeirra
sem sýndu sig og sáu aðra. Ekki er annað að sjá en að hundarnir á þessari mynd hafi tekið athyglinni vel. FréttABLAðIð/EyÞór
2 6 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m á n u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
A
E
-1
6
1
0
1
A
A
E
-1
4
D
4
1
A
A
E
-1
3
9
8
1
A
A
E
-1
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K