Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 10
Reykjavík, 16. júní 2016 kvika.is Kvika banki hf. hefur geð út sex mánaða víxla að árhæð 2.000 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í víxlaokknum KVB 16 1221 og er heildarheimild okksins 2.000 m.kr. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar um töku víxlanna til viðskipta í gær, þann 15. júní 2016, og sótt hefur verið um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands. Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu útgefanda www.kvika.is/um-kviku/arfestar. Siemens kæliskápar á sumartilboði. Gildir til 24. júní eða meðan birgðir endast. Kæliskápur KG 36VUW20 Hvítur, 186 sm. Útdraganleg „crisper- Box“- skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. LED-lýsing. „lowFrost“-tækni: Lítil klakamyndun. Stór „bigBox“- frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tilboðsverð: Fullt verð: 94.700 kr. 74.900 kr. Kæliskápur stál 186 sm KG 36VVI32 Stál, 186 sm. Orkuflokkur A+. Útdraganleg „crisperBox“-skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. LED-lýsing. „lowFrost”- tækni: Mjög lítil klakamyndun og affrysting auðveld. Stór „bigBox“- frystiskúffa. Hraðfrysting. H x b x d: 186 x 60 x 65 sm. Tilboðsverð: Fullt verð: 133.900 kr. 104.900 kr. Bretland George Osborne, fjár- málaráðherra Bretlands, deildi í gær sviði með fyrirrennara sínum, Alist- air Darling, þar sem þeir vöruðu við mögulegum afleiðingum brotthvarfs Bretlands úr Evrópusambandinu, svokölluðu Brexit. Gera þeir ráð fyrir að hækka þurfi skatttekjur ríkisins um fimmtán milljarða punda og lækka ríkisútgjöld um svipaða upp- hæð, að jafngildi um 2.600 milljarða íslenskra króna. Meðal annars sagði Osborne að skera þyrfti niður í heil- brigðiskerfinu, menntun, varnar- málum og löggæslu. Tölurnar sagði Osborne byggðar á niðurstöðum Institute for Fiscal Stu- dies á efnahagslegum áhrifum brott- hvarfs. Meðal annars vegna breytinga á milliríkjaviðskiptum. Í niðurstöðu rannsóknarinnar segir meðal annars að ef af brotthvarfi yrði þyrfti ríkið að ráðast í umfangsmiklar aðhaldsað- gerðir í allt að tvö ár. „Brotthvarf úr Evrópusambandinu mun hafa í för með sér efnahagslegt áfall sem myndi steypa Bretlandi í annað hrun,“ sagði Osborne í gær. Ummæli Osbornes féllu þó í grýttan jarðveg hjá þeim samflokks- mönnum hans í Íhaldsflokknum sem aðhyllast Brexit. Þingmennirnir Iain Duncan Smith, Liam Fox og Owen Paterson skrifuðu undir yfirlýsingu þar sem þeir segjast ekki geta leyft Osborne að fara gegn stefnu ríkis- stjórnarinnar sem samþykkt var eftir þingkosningar í fyrra. Ríkisstjórnin lofaði því meðal annars í stefnu sinni að tekjuskattur og virðisaukaskattur myndu ekki hækka á kjörtímabilinu. „Okkur finnst ótrúlegt að fjár- málaráðherra hóti að svíkja svo mörg loforð,“ stóð í yfirlýsingunni. „Það er fáránlegt að segja að ef fólk vilji taka stjórnartaumana af Evr- ópusambandinu muni hann refsa því með þessum hætti,“ bættu þre- menningarnir við. Þá segja þeir stöðu Osbornes einkar veika yrðu ályktanir hans að veruleika. Samkvæmt meðaltali skoðana- kannana sem The Financial Times tekur saman myndu 47 prósent Breta kjósa að yfirgefa Evrópusam- bandið en 44 prósent áframhald- andi veru. Kosið verður 23. júní næstkomandi. thorgnyr@frettabladid.is Brexit gæti þýtt 2.600 milljarða niðurskurð Fjármálaráðherra Breta telur mögulegt brotthvarf úr Evrópusambandinu þýða niðurskurð og skattahækkanir. Samflokksmenn, sem eru ósammála, segja álykt- anir ráðherrans fáránlegar. Fleiri aðhyllast nú brotthvarf en áframhaldandi veru. Brotthvarf úr Evrópusambandinu mun hafa í för með sér efnahagslegt áfall sem myndi steypa Bretlandi í annað hrun. George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands 47% Breta vilja ganga úr Evrópu- sambandinu á meðan 44 prósent vilja vera þar áfram. Bátar beggja hliða Brexit-deilunnar sigldu eftir ánni Thames fyrir utan þinghúsið í gær. Hiti var í fólki og hrópaði söngvarinn Bob Geldof, sem er andvígur Brexit, ókvæðisorð að Nigel Farage, leiðtoga Breska sjálfstæðisflokksins. NordicpHoTos/AFp Viðskipti Kvikmyndin Warcraft átti stærstu opnun nokkurrar kvik- myndar í sögu Kína. Frá því í síðustu viku hefur hún halað inn nærri tutt- ugu milljarða króna í miðasölu. Til samanburðar námu tekjur af allri miðasölu á kvikmyndina Star Wars: The Force Awakens um fimm- tán milljörðum króna. Tekjurnar urðu hins vegar minni í Bandaríkjunum um helgina en framleiðendur vonuðust til, eða um þrír milljarðar króna. BBC greinir frá því að í Kína sé ört stækkandi kvik- myndamarkaður en búist er við að hvergi muni miðasölutekjur verða meiri en í Kína á næsta ári. Banda- ríkjamenn hafa vermt toppsætið síðustu áratugi. – þea Warcraft sló met í Kína Frá frumsýningu Warcraft í sjanghæ. NordicpHoTos/AFp 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M t U d a G U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 C 1 -0 2 5 0 1 9 C 1 -0 1 1 4 1 9 C 0 -F F D 8 1 9 C 0 -F E 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.