Fréttablaðið - 16.06.2016, Side 22
Dugar nesti strákanna?
Íslenska handboltalandsliðið
mætir Portúgal í Porto í kvöld
í seinni leik liðanna um laust
sæti á HM í Frakklandi
í janúar 2017. íslenska
liðið hefur þriggja
marka forskot
eftir 26-23 sigur
í fyrri leiknum
í Laugardals-
höllinni á
sunnudaginn.
Íslenska liðið
hefur nú endur-
heimt fyrirliða sinn
guðjón Val sigurðs-
son, sem missti af
fyrri leiknum vegna
meiðsla.
Í dag
17.00 US Open 2016 Golfstöðin
17.00 Demantamótaröð Sport 2
19.30 Valur - FH Sport
22.00 Sumarmessan Sport
01.00 NBA: Cavs-GSW Sport
01.30 Bandaríkin - Ekvador Sport 2
20.00 Valur - FH Valsvöllur
Stjarna gærdagsins á
EM 2016
http://www.seeklogo.net
EM í dag
http://www.seeklogo.net
13.00 England - Wales B-riðill
16.00 Úkraína - Norður Írland C-rið.
19.00 Þýskaland - Pólland C-riðill
EM 2016 í Frakklandi í gær
A-riðill
Rúmenía - Sviss 1-1
1-0 Bogdan Stancu (18.), 1-1 Admir Meh-
medi (57.).
Frakkland - Albanía 2-0
1-0 Antoine Griezmann (90.), 2-0 Dimitri
Payet (90+5)
Stigin í A-riðlinum: Frakkland 6, Sviss 4,
Rúmenía 1, Albanía 0.
B-riðill
Rússland - Slóvakía 1-2
0-1 Vladimír Weiss (32.), 0-2 Marek Hamsík
(45.), 1-2 Denis Glushakov (80.).
Stigin í B-riðli: Slóvakía 3, Wales 3, England
1, Rússland 1.
Marek Hamsík, leikmaður Napoli
á Ítalíu, var maðurinn á bak við
fyrsta sigur Slóvaka á EM í Frakk-
landi í gær en Slóvakar komu þá til
baka eftir tap fyrir Wales og unnu
2-1 sigur á Rússum. Marek Hamsík
lagði upp fyrra markið með frá-
bærri sendingu inn á
Vladimír Weiss á 32.
mínútu og skoraði
síðan seinna
markið sjálfur
á lokamínútu
fyrri hálfleiks
með frábæru
skoti. Slóvakar
lifðu á þessu í
seinni hálfleikn-
um og tókst að
landa þremur
stigum.
Pepsi-deild karla í fótbolta
ÍBV- Breiðablik 0-2
0-1 Ellert Hreinsson (3.), 0-2 Sjálfsmark (6.).
Fjölnir - KR 3-1
0-1 Michael Præst (27.), 1-1 Martin Lund
Pedersen (44.), 2-1 Gunnar Már Guðmunds-
son (52.), 3-1 Marcus Solberg (72.),
Annar tapleikur KR í röð og sá fjórði í
síðustu fimm leikjum í deild og bikar.
Fótbolti Þegar tilefnin eru stærst
hjá íslenska landsliðinu virðast fáir
njóta sín betur en Birkir Bjarnason.
Það sannaðist enn og aftur í saint-
Étienne í fyrradag er hann skoraði
jöfnunarmarkið gegn Portúgal og
fyrsta mark Íslands í úrslitakeppni
í stórmóti a-landsliða karla.
„Það er sama hvort við erum
á æfingu, í vináttulandsleik eða
keppnisleik, Birkir er alltaf eins.
Hann er afar einbeittur ungur maður
og ekkert sem truflar hann,“ sagði
Heimir Hallgrímsson, annar lands-
liðsþjálfara Íslands, við Fréttablaðið
fyrir æfingu liðsins í annecy í gær.
strákarnir voru þá að jafna sig
eftir leikinn gegn Portúgal kvöldið
áður og var Birkir þeirra á meðal.
Það er ljóst að Birkir verður áfram
í lykilhlutverki í liði Íslands á eM,
líkt og hann hefur verið síðan Lars
Lagerbäck tók við liðinu árið 2011.
Rólegur utan vallar
Lagerbäck neitar því ekki að nafn
Birkis hafi verið á meðal þeirra
fyrstu á leikskýrslu hjá honum.
„Ég held að það sé ekki röng
fullyrðing enda er nóg að líta yfir
leikina í undankeppninni til að sjá
hvaða leikmenn spila í þeim,“ sagði
Lagerbäck við Fréttablaðið í gær.
Hann hefur greinilega gott álit á
akureyringnum.
„Hann er virkilega góð fyrirmynd
fyrir íslenska liðið. andlegur styrkur
hans er virkilega mikill. Hann er
harður í horn að taka á vellinum og
leggur mikið á sig fyrir liðið,“ segir
hann.
„en svo hittirðu hann utan vallar
og sérð þá þennan rólega mann.
Maður trúir því varla að þetta sé
sama manneskjan. Já, hann er virki-
lega góð fyrirmynd fyrir íslenska
knattspyrnu.“
Gerir lítið úr eigin þætti
Birkir hefur reynst íslenska liðinu
vel, þá sérstaklega í stærstu leikj-
unum. Hann fékk til að mynda
vítaspyrnurnar í báðum leikjunum
gegn Hollandi í síðustu undan-
keppninni og gekk frá útileiknum
gegn kasakstan þar sem Ísland vann
3-0 sigur.
Ég hitti Birki á hóteli íslenska
landsliðsins í annecy á laugardag-
inn og spurði hann þá út í hvort
hann nyti sín sérstaklega vel á stóra
sviðinu, fremur en í öðrum leikjum.
„Okkur líður öllum vel gegn bestu
liðunum. Við höfum ekki átt góða
leiki gegn minni þjóðum í leikjum
sem skipta minni máli. Þannig er
Fyrirmynd annarra í liðinu
Birkir Bjarnason virðist hvergi njóta sín betur en á stóra sviðinu, eins og sást þegar hann skoraði fyrsta
mark Íslands á EM í Frakklandi. Lars Lagerbäck segir mikinn mun á honum innan vallar og utan.
Birkir skýlir boltanum fyrir Raphaël Guerreiro, vinstri bakverði Portúgals, í leiknum í Saint-Étienne í fyrrakvöld. FRÉttABlAðið/VilHElm
Birkir hefur skorað sjö
mörk í 48 landsleikjum og
vantar eitt mark til að
komast í hóp tuttugu
markahæstu leikmanna
Íslands frá upphafi.
það hjá okkur öllum í hópnum en
við erum sterkari en við höfum sýnt
í æfingaleikjunum,“ sagði Birkir og
vildi greinilega sem minnst gera
úr sínum þætti. Hann vísaði ein-
göngu til þeirrar sterku liðsheildar
sem hefur einkennt íslenska liðið
undanfarin ár.
Hans besta tímabil á ferlinum
Birkir átti frábært tímabil með
Basel í sviss í vetur. Hann varð
svissneskur meistari og skoraði tíu
mörk fyrir liðið í deildinni og þrjú
til viðbótar í evrópudeild ueFa.
Dvölin í sviss hefur gert honum
gott og hann viðurkennir að hafa í
fyrstu verið efins um að það hefði
verið rétt skref að fara frá Ítalíu, þar
sem hann hafði spilað síðustu ár, til
sviss.
„Ég var kominn með lið á Ítalíu
sem ég ætlaði að semja við en
breytti til á síðustu stundu. Ég er
mjög ánægður með að hafa gert
það,“ segir hann. „Þetta var mitt
besta tímabil á ferlinum. Það segir
sig sjálft að ég er orðinn betri í
mörgum hlutum.“
Landsliðsþjálfararnir hafa mikið
talað um þau gildi sem þeir vilji að
einkenni liðið og leik þess. Heimir
segir að Birkir endurspegli þau öll.
„Hann er ekta leikmaður sem við
viljum hafa í okkar liði. Hann á afar
sjaldan dapra leiki.“
Hann er afar ein-
beittir ungur maður
og það er ekkert sem truflar
hann.
Heimir Hallgrímsson
En svo hittirðu hann
utan vallar og sérð
þá þennan rólega mann.
Maður trúi því varla að þetta
sé sama manneskjan.
Lars Lagerbäck
EM2016
http://www.seeklogo.net
Eiríkur Stefán Ásgeirsson
eirikur@365.is
1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M t U D A G U R22 s P o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
1
6
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
C
1
-1
1
2
0
1
9
C
1
-0
F
E
4
1
9
C
1
-0
E
A
8
1
9
C
1
-0
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K