Fréttablaðið - 16.06.2016, Page 23
fólk
kynningarblað
„Mér finnst þetta afskaplega
skemmtilegt. Þetta er mitt áhuga-
mál. Mér telst til að ég hafi saum-
að sjö búninga og prjónað búning
á einn lítinn,“ segir Katrín Guð-
bjartsdóttir, leikskóla- og textíl-
kennari. Katrín er mikil áhuga-
manneskja um íslenska þjóðbún-
inga og fékk sinn fyrsta búning
sem barn, og á hann enn.
„Amma mín var alltaf í upphlut
og þá var saumaður á mig upp-
hlutur þegar ég var um sex ára.
Ég hef alltaf haft áhuga á þessu.
Þegar kristnitökuhátíðin var árið
2000 varð mikil vakning í þjóð-
búningasaumi og ég saumaði minn
fyrsta búning um það leyti, peysu-
föt. Þá saumaði ég einnig upphlut
og barnabúning og lagfærði bún-
inginn sem ég átti sem barn. Fyrir
tveimur árum saumaði ég herra-
búning á manninn minn. Ég byrj-
aði svo á faldbúningi á sjálfa mig
árið 2004 og hef unnið í honum
í rólegheitunum. Þegar dætur
mínar fermdust, önnur árið 2005
og hin árið 2007, saumaði ég á þær
upphluti sem þær nota enn í dag,“
segir Katrín.
Búningana hefur hún saumað
undir handleiðslu Guðrúnar Hild-
ar Rosenkjær og Ásmundar Krist-
jánssonar í Annríki, utan þess
fyrsta sem hún saumaði hjá Heim-
ilisiðnaðarskólanum.
„Þetta er heilmikil vinna og
tekur sinn tíma. Á námskeiðinu í
vetur var ég að vinna faldbúnings-
treyjuna og tók 40 tíma að prjóna
ermarnar.“
Þjóðbúningar eru þó ekki það
eina sem Katrín saumar en hvers
konar handavinna leikur í höndun-
um á henni. „Ég prjóna mjög mikið
og hef gaman af allri handavinnu.
Áður fyrr saumaði ég mikið, bæði
á mig sjálfa og á stelpurnar mínar.
Þær voru orðnar fimm og sjö ára
þegar þær fengu fyrstu keyptu
jólakjólana. Ég saumaði á þær stúd-
entskjólana líka en saumaskapur-
inn hefur reyndar minnkað mikið
seinni ár. En þó alltaf flík og flík.“
Hvenær notar fjölskyldan þjóð-
búningana? „Við notum þá allt-
af á 17. júní og við fermingar
stelpnanna var ég í búningi. Mað-
urinn minn var í sínum búningi
þegar hann varð fimmtugur og þá
mætum við í þjóðbúningamessu
Hafnarfjarðarkirkju og Annrík-
is fyrir jólin. Á útskrift Annríkis
í Viðey um daginn vorum við öll
samankomin og í búningunum,“
segir Katrín. En er þægilegt að
klæðast þjóðbúningum?
„Ef búningurinn passar vel
á mann er ekkert mál að vera í
þessu. Ég mætti í raun vera dug-
legri að nota búningana. Ég hef
ekki orðið mér úti um gínu til að
hafa búningana uppi við en það
væri skemmtilegt. Það liggur auð-
vitað mikil vinna á bak við þá,“
segir Katrín og hefur ekki fengið
nóg af saumaskapnum.
„Ég er ekki hætt. Ég ætla að
sauma á minnsta barnabarnið í
vetur. Mér finnst þetta bara svo
gaman.“
heida@365.is
1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R
Katrín Guðbjartsdóttir hefur saumað þjóðbúning á alla fjölskylduna. Hér eru þau á
útskrift Annríkis í Viðey á dögunum en Katrín hefur sótt námskeið Annríkis í þjóð-
búningasaumi. mynd/KAtrín
„mér telst til að ég hafi saumað sjö
búninga og prjónað búning á einn
lítinn,“ segir Katrín Guðbjartsdóttir,
leikskóla- og textílkennari.
Barnabúningur sem Katrín saumaði á
eitt barnabarnanna.
hefur saumað íslenskan
búning á alla fjölskylduna
Katrín Guðbjartsdóttir, leikskóla- og textílkennari, er mikil áhugamanneskja um íslenska þjóðbúninga og hannyrðir
almennt. Hún hefur saumað búning á alla fjölskylduna og heldur áfram eftir því sem barnabörnunum fjölgar.
Glerártorg verslunarmiðstöð | Akureyri | www.glerartorg.is Glerártorg verslunarmiðstöð | Akureyri | www.glerartorg.is
–af lífi & sál–
REYNDU EM TAKTANA MEÐ MEISTARAFLOKKI ÞÓRS
ERT ÞÚ KANNSKI NÆSTI LANDSLIÐSFYRIRLIÐI 14:00 - 15:00
ANDLITSMÁLUN 15:00 - 18:00
TRAMPOLIN 14:00 - 18:00
EM SPILASKIPTIMARKAÐUR TOYS"R"US 14:00 - 17:00
ÍS FYRIR BÖRNIN (Á MEÐAN BYRGÐIR ENDAST) 16:00 - 18:00
BLÖÐRUR FYRIR BÖRNIN 14:00 - 18:00
Á GLERÁRTORGI 16. JÚNÍ
1
6
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
C
1
-1
1
2
0
1
9
C
1
-0
F
E
4
1
9
C
1
-0
E
A
8
1
9
C
1
-0
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
1
5
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K