Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 16.06.2016, Blaðsíða 30
Hörpu Sif Eyjólfsdóttur, doktors- nema í lýðheilsufræði, og Rósu Björk Sigurgeirsdóttur, nema í mastersnámi í stjórnun við Stock- holms University og starfsmanni hjá sprotafyrirtækinu Looklet, fannst þörf á fötum sem væru á góðu verði, en sömuleiðis úr end- ingargóðu efni þegar þær áttu von á barni. Þá fór Harpa að sauma fyrir væntanlegt krílið og í kjöl- farið fyrir vini og ættingja. Fljót- lega fór það að vinda töluvert upp á sig og við það varð Charmtrolls De- sign til fyrir um einu ári. „Okkar sýn er að öll föt séu fyrir öll börn óháð kyni og við markaðssetjum ekki stráka- eða stelpuföt, held- ur einfaldlega barnaföt. Við saum- um allt heima í stofu og seljum að- eins í gegnum heimasíðuna charm- trolls.tictail.com og höldum þannig verðinu viðráðanlegu fyrir foreldra ungra barna,“ útskýrir Harpa en hún sér um hönnun fatanna og saumaskap, en Rósa sinnir bók- haldi fyrirtækisins. Þægindin í fyrirrúmi Harpa hefur saumað lengi, í raun síðan hún var barn, en þá saumaði hún með móður sinni. „Ég hef alltaf látið hugmyndaflugið ráða og ekki verið að binda mig við snið. Mörg- um klukkustundum hefur verið eytt síðustu tvö árin við saumavél- arnar en Rósa er að læra óðfluga.“ Þær segjast ekki pæla mikið í tísku og tískustraumum við hönn- un barnafatanna heldur hanna þær og sauma það sem þeim finnst fal- legt hverju sinni. „Þægindi eru í algjöru fyrirrúmi, það eru börn sem klæðast fötunum og þau þurfa að geta hreyft sig hindrunarlaust. Þá handveljum við öll efni og reyn- um að nota aðeins lífræn efni sem hafa fengið gæðastimpil (OEKO- TEX) á öllum stigum í framleiðsl- unni,“ segir Harpa. Rósa bætir við að barnið þeirra sé vítamínsprauta fyrirtækisins og haldi þeim á tánum. „Barnið okkar er okkar stærsti innblást- ur, hún er mjög sterkur og svalur karakter og fötin bera þess merki líka en þau eru frekar töff og kúl að okkar mati. Barnið er mikill orkubolti og þá verður enn þá mik- ilvægara að fötin séu endingargóð og þægileg,“ segir hún og brosir. draumurinn að flytja heim Harpa segir erfitt að segja til um hver sé eftirlætisflíkin af þeim sem hún hefur hannað. „Bæði Þessi bolur er í uppáhaldi hjá Hörpu. Markmið með hönnun Hörpu og Rósu er að fötin séu þægileg og að börnin geti hreyft sig hindrunarlaust í þeim. Hjá Charmtrolls eru öll föt fyrir öll börn óháð kyni og ekki eru markaðssett sér- stök stráka- eða stelpuföt. Rósa Björk og Katla Margrét, dóttir hennar og Hörpu, í leggings, með hringtrefil og húfu frá Charmtrolls Design. Harpa Sif með dóttur sinni. Harpa hefur saumað frá því hún var barn og þegar dóttirin var væntanleg fór hún strax að sauma á hana. Þægileg og töff Fötin sem Harpa og Rósa hanna og sauma undir merkinu Charmtrolls eru innblásin af barninu þeirra. Þau eru rokkaraleg, kúl og endingargóð. stuttermabolurinn sem við gerð- um fyrir sumarið og klofsíðu har- em-buxurnar eru í miklu uppá- haldi. Stuttermabolurinn er síð- ari að aftan, með upprúlluðum ermum og ófrágengnum endum – rokkaralegur og flottur. Harem- buxurnar eru með skemmtilegum vasa að framan og ótrúlega þægi- legar fyrir börnin.“ Spurðar út í nafnið á hönnuninni segja þær það hafa verið í raun al- gjöra tilviljun hvernig það kom til. „Við rákumst á mynd þar sem undir stóð á sænsku „lilla charmtrollen“. Við höfðum þá verið að reyna að finna nafn sem gæfi til kynna að um barnamerki væri að ræða og þetta passaði fullkomlega.“ Fjölskyldan býr í Stokkhólmi þar sem þær Harpa og Rósa hafa búið síðastliðin fimm ár. „Okkur líður rosalega vel í Svíþjóð og erum ekkert á leiðinni heim næstu fimm árin eða svo. Draum- urinn er þó að flytja heim til Ís- lands á endanum.“ Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Stretch buxur kr. 7.900.- Str. 36-52 Litir: blátt, svart, brúnt, grátt, hvítt Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Stretch - háar í mittið Kvartbuxur á 11.900 kr. 7 litir: hvítt, svart, beige, sandgrátt, grátt, teinótt, dökkblátt. Opið virka daga kl . 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 Endalaust ENDALAUS GSM 1817 365.is 1 6 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R8 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A R b l A ð ∙ T í s k A 1 6 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 C 0 -E 9 A 0 1 9 C 0 -E 8 6 4 1 9 C 0 -E 7 2 8 1 9 C 0 -E 5 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 5 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.