Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 10
Final_Wrangler_SS16_CLP_700x1000mm_10mmbleed.indd 1 10/03/16 15:03 Wrangler er kominn aftur í Kringluna Samfélag „Ég hef ekki hugmynd um hvenær ég má fara heim og sé stundum bara svart fyrir framan mig því ég er eirðarlaus og áhyggju- fullur,“ segir Angelo Uijleman, 29 ára Hollendingur sem ákærður er fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Mál Angelo hefur vakið nokkra athygli þar sem hann er greindar- skertur. Hann sat í einangrun á Litla-Hrauni í átta vikur og var sú vist harðlega gagnrýnd. Þá var hann færður á Kvíabryggju þar sem hann dvaldi í nokkrar vikur. Síðustu sex mánuði hefur Angelo dvalið á gisti- heimili í Reykjavík og mun líklega þurfa að dvelja þar þangað til dómur fellur í málinu. „Nú er þetta búið að vera eins í rosalega marga mánuði. Ég veit núna að ég gerði rosalega stór mistök en nú langar mig bara að fara heim.“ Angelo fær um fjórtán þúsund krónur á viku frá lögreglunni til að lifa á Íslandi og segir þann pening ekki duga fyrir lyfjakostnaði. „Mér er mjög illt í fætinum og verð að taka verkjalyf. Ég hef ekki haft efni á þeim því ég þarf að borða og drekka fyrir peninginn sem ég fæ,“ segir Angelo en hann veit ekki hvað hrjáir hann. Hann segist oft eiga erfitt með svefn vegna verkja. Niðurstaða úr geð- og sálfræði- mati var sú að Angelo er sakhæfur þrátt fyrir að vera verulega greindar- skertur. Fram kemur að h a n n e r með slakan þ r o s k a , einkum á tilteknum s v i ð u m , sem gerir það að verk- um að hann er ekki jafn fær og aðrir um að meðtaka og draga rökréttar ályktanir. Hann eigi erfitt með að setja fram heildarmynd af aðstæðum og tengja saman orsakir og afleiðingar hegðunar sinnar. Geta hans til að rifja upp er slök og geri honum enn erfiðara fyrir að vinna úr upp- lýsingum. Þrátt fyrir að vera oft mjög ein- mana á gistiheimilinu segir Angelo að sér líði betur nú þegar sumarið sé komið. „Ég fer oft í göngutúr og elska að labba um Hljómskálagarðinn. Ég elska líka að fara á Te og kaffi og sá staður er fullkominn.“ Hann segist oft lenda í því að fólk úti á götu heilsi sér enda hafi það líklega séð mynd af honum í blöðunum. „Mér finnst það oft gaman en ég vil bara ekki að fólk haldi að ég sé vondur.“ Angelo eign- aðist góða vini á Kvíabryggju sem hann er enn í góðu s a m b a n d i við. Hann segir blaða- manni frá því að síðustu h e l g i h a f i hann borðað með Hreiðari Má Sigurðssyni, f y r r ve ra n d i f o r - stjóra Kaupþings, en þeir dvöldu saman á Kvíabryggju. Þá segir hann frá því að hann sé orðinn góður vinur vina verjanda síns. „Þeir eru mjög skemmtilegir og við fórum til dæmis saman á landsleikinn um daginn. Jói sótti mig og við fórum fyrst og fengum okkur hamborgara,“ segir Angelo en hann er að tala um Jóhann Alfreð Kristinsson grínista. nadine@frettabladid.is Angelo verkjar í fótinn og langar að fara heim Angelo Uijleman er í farbanni og fær fjórtán þúsund krónur í vasapening á viku. Angelo segist elska að labba um Hljómskálagarðinn. FréttAblAðið/Anton brink Mér er mjög illt í fætinum og ég verð að taka verkjalyf. Ég hef ekki haft efni á þeim því ég þarf að borða og drekka fyrir peninginn sem ég fæ. Angelo Uijleman Samfélag Ketti var fargað af starfs- mönnum Hafnarfjarðarbæjar, án vitundar eiganda hans. Keyrt var á köttinn með þeim afleiðingum að hann drapst, örfáum húsum frá heim- ili hennar í síðustu viku. Ásdís Björgvinsdóttir, eigandi kattarins, furðar sig á verklagi bæjar- félagsins. Kötturinn var örmerktur en ólarlaus. Ásdís frétti af óhappinu hjá nágranna og hafði þá samband við lögregluna í tvígang og fékk að lokum þær upplýsingar að farið hefði verið með hræ kattarins í þjónustumiðstöð bæjarins. Starfsmaður þjónustumið- stöðvarinnar tilkynnir henni þá að hræinu hefði verið fargað. „Farið var með köttinn á stað fyrir úrgang og hann grafinn þar því hann var geymdur úti í poka á þjónustu- miðstöðinni og krummi var farinn að narta í hann,“ segir Ásdís og bætti við að móðir hennar hafi fengið þau svör hjá þjónustumiðstöðinni að ekki væri mannskapur til þess að fara með hræ kattarins á dýraspítalann til að lesa af örmerkinu. Árdísi Ármannsdóttir, samskipta- stjóri Hafnarfjarðarbæjar, segir starfs- menn bæjarins sækja dýrahræ og fara með á þjónustumiðstöð bæjarins í plastpoka þar sem þau eru geymd. „Ef dýrin eru með merki um háls- inn með öllum viðeigandi upplýs- ingum þá er í öllum tilfellum hringt í eigendur,“ segir Árdís og bætir við að bærinn hringi ekki í eigendur þeirra dýra sem eru einungis merkt með örmerki. Reykjavíkurborg er með samning við Dýraspítalann í Víðidal sem sér um að taka við hræjum dýra sem finnast í borginni. Ef dýrin eru örmerkt eða merkt á annan hátt þá eru eigendur dýranna látnir vita um örlög þeirra. Árdís segir að kostnaður sé falinn í því að sækja dýrin og færa þau á Dýraspítalann og að greitt yrði fyrir þá þjónustu af samfélaginu í heild. „Það er erfitt ef við leggjum mann- skap í það að fara með dýrin, þó það sé mjög falleg hugsun, þá fáum við líka gagnrýni frá þeim sem eru ekki kattaeigendur.“ thordis@frettabladid.is Dauðum köttum fargað án vitundar eigenda Dýrahræ sem finnast í Hafnarfirði eru færð á þjónustumiðstöð bæjarins áður en þau eru grafin á stað sem kallaður er „tippurinn“, fyrir ofan bæinn. norDicpHotos/Getty Hann var geymdur úti í poka á þjón- ustumiðstöðinni og krummi var farinn að narta í hann. Ásdís Björgvins- dóttir, eigandi kattarins 9 . j ú n í 2 0 1 6 f I m m T U D a g U R10 f R é T T I R ∙ f R é T T a B l a ð I ð 0 9 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 A F -D F 5 8 1 9 A F -D E 1 C 1 9 A F -D C E 0 1 9 A F -D B A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.