Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 19
Meðal þeirra tíu þjóðríkja sem eiga mestar olíulindir í tunnum talið er aðeins eitt lýðræðisríki, Kanada. Hin níu eru ýmist einræðisríki (Sádi-Arabía, Íran, Kúveit, Sameinuðu furstadæmin) eða fáræðisríki (Venesúela, Írak, Rússland, Nígería). Líbía er utan flokka, stjórn- laust land í uppnámi. Af þessum tíu löndum á Venesúela mesta olíu. Þar ríkir nú öngþveiti í efna- hagsmálum og stjórnmálum. Fólkið lifir frá hendinni til munnsins. Hill- urnar í mörgum búðum standa auðar. Hvernig gat þetta gerzt? Svarið er óstjórn, knúin áfram af auðfengnum olíugróða sem kynti undir ábyrgðar- leysi og fyrirhyggjuleysi. Vitfirringin í hagstjórninni lýsir sér m.a. í því að bensínlítrinn í Caracas kostar túkall. Vandinn er ekki bundinn við Venesú- elu. Öll hin löndin á listanum nema Sameinuðu furstadæmin hafa átt í ófriði ýmist út á við eða innan lands. Það er ekki tilviljun að sex þessara tíu landa eru í Austurlöndum nær, helzta ófriðarbæli heimsins. Átökin þar snúast að miklu leyti um yfirráð yfir olíulindum þótt annað sé látið í veðri vaka. Það er ekki heldur tilviljun að lýðræði á undir högg að sækja í öllum þessum löndum nema Kanada. Það stafar einkum af því að ríkjandi vald- hafar reyna eftir föngum að sitja einir að auðlindunum og mega ekki til þess hugsa að hleypa öðrum að. Fjórar tölur: 80, 20, 10, 90 Þessi lýsing á erindi við Ísland. Alþingismenn kjósa enn að traðka á lýðræðinu til að þóknast sjálfum sér og útvegsmönnum frekar en að virða kröfu kjósenda um réttmætan arð almennings af auðlindum í þjóðareigu. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýja stjórnarskrá 2012 lýstu 83% kjósenda stuðningi við auðlindir í þjóðareigu. Áratugum saman hafa skoðanakann- anir leitt til svipaðrar niðurstöðu. Vilji þjóðarinnar blasir við. Fjórar aðrar tölur segja meira en mörg orð. Í Noregi hefur réttur eigandi olíuauðsins, norska þjóðin, leyst til sín að jafnaði um 80% af olíurentunni frá öndverðu og látið öðrum eftir 20% af rentunni. Á Íslandi er annað uppi: hér fær réttur eigandi sjávarauðlindarinnar aðeins 10% af sjávarrentunni í sinn hlut og Alþingi afhendir útvegsmönnum bróðurpartinn á silfurfati, 90%. Þessar fjórar tölur vitna um einbeittan ásetn- ing – mér liggur við að segja brotavilja – Alþingis allar götur frá 1984. Hvað var nærtækara en að sækja fyrirmynd að hagkvæmri og réttlátri auðlindastjórn til Noregs? Áskoranir um það voru að engu hafðar. Norðmenn standa með pálmann í höndunum. Að kaupa sér atkvæði með annarra fé Orkan í iðrum Íslands hefur með líku lagi verið seld útlendingum um ára- tugaskeið á of lágu verði, svo lágu að því þurfti að halda leyndu fyrir réttum eiganda, þ.e. almenningi, þar til nýlega að stíflan brast. Stjórnmálamenn lof- uðu kjósendum stóriðju fyrir kosningar til að kaupa sér atkvæði með annarra fé og tefldu þannig frá sér getunni til að semja um rétt verð fyrir orkuna sem er í orði kveðnu sameign fólksins í landinu og verður það fyrir víst þegar nýja stjórnarskráin nær loksins fram að ganga. Nær hefði verið að leita fyrir- myndar að heilbrigðum orkubúskap í Noregi. Hvað er sjálfsagðara en að réttur eigandi fái að vita á hvaða verði eigur hans eru seldar? Ísland skiptir máli Við þessa ófremd alla verður ekki lengur unað. Mælirinn er fullur. Alþingi er laskað líkt og löggjafarþing flestra olíulanda, þó ekki Noregs og Kanada. Útvegsfyrirtæki sem þekkja ekki annað en margra áratuga ríkis- framfæri í gegnum kvótakerfið ausa fé í stjórnmálamenn og flokka, einkum núverandi ríkisstjórnarflokka svo sem fram kemur nú orðið í skýrslum Ríkis- endurskoðunar, og halda úti siðvilltum dagblaðssnepli í þokkabót. Siðaveiklun Alþingis lýsir sér m.a. í því nú að margir þingmenn ræða nú upphátt og opin- skátt hvort það borgi sig fyrir þá að efna hátíðlegt loforð ríkisstjórnarinnar um þingkosningar í haust. Alþingi á tveggja kosta völ. Annað- hvort þarf þingið að virða vilja þjóðar- innar í auðlindamálum og varðandi nýja stjórnarskrá eða lýðræðið í landinu heldur áfram að laskast með illum afleiðingum. Umheimurinn fylgist nú grannt með þróun mála hér heima vegna þess að Ísland skiptir máli þegar öllu er á botninn hvolft. Það verður að teljast framför frá fyrri tíð þegar íslenzkir stjórnmálamenn þótt- ust geta farið sínu fram án þess að það spyrðist til útlanda. Svo er ekki lengur. Grímulaus spilling í stjórnmálum og viðskiptum á Íslandi vekur athygli um allan heim. Löskun lýðræðisins mun skaða álit Íslands enn frekar út á við og slíta sundur friðinn heima fyrir ef Alþingi sér sig ekki um hönd í tæka tíð. Auðlindir, ófriður, spilling Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Í Noregi hefur réttur eigandi olíuauðsins, norska þjóðin, leyst til sín að jafnaði um 80% af olíurentunni frá öndverðu og látið öðrum eftir 20% af rentunni. Á Íslandi er annað uppi: hér fær réttur eigandi sjávarauð- lindarinnar aðeins 10% af sjávarrentunni í sinn hlut. af öllum tram pólínum frà föstudeg i til sunnuda gs SPARIÐ 25 % IT DOESN’T GET BIGGER THAN THIS! Ti lb oð in g ild a 10 .0 6- 12 .0 6 20 16 . s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 9 . j ú n Í 2 0 1 6 0 9 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 A F -C 1 B 8 1 9 A F -C 0 7 C 1 9 A F -B F 4 0 1 9 A F -B E 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.