Fréttablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 40
Í dag
18.00 Demantamót í Ósló Sport2
19.05 Víkingur - Valur Sport
19.30 Fed Ex-Classic Golfstöðin
22.30 Sumarmessan Sport
23.30 Úrúgvæ - Venúsúela Sport2
02.00 Mexíkó - Jamaíka Sport
17.30 Stjarnan - ÍBV Samsung-völlur
19.15 Víkingur - Valur Víkin
19.15 Selfoss - Víðir Jáverkvöllur
19.15 ÍA - Breiðablik Norðurálsv.
dagur í1
EM 2016
http://www.seeklogo.net
Stöð 2 Sport Beinar útsendingar
Fáðu þér áskrift á 365.is
*Undanskilið er aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is.
| Fimmtudag kl. 19:05 - Bein útsending
Borgunarbikarinn - Víkingur R. mætir Val
Reykjavíkurslagur af bestu gerð í
16 liða úrslitum Borgunarbikars karla.
| Lau. og sun. - Bein útsending
KPMG Women‘s PGA Championship
Nær Inbee Park að landa sínum 4 titli í röð
á þessu móti? Mótið verður sýnt á Sport 4
| Lau. og sun. - Bein útsending
Formúla 1 - Canadian Grand Prix
Lau: Æfing klukkan 13:55 - tímataka kl. 16:50
Sun: Keppni kl. 17:30
| Sunnudag - Bein útsending
Copa America og Sumarmessan
Ekvador - Haítí, kl. 22:30 / Brasilía - Perú, kl. 00:40
Sumarmessan: Öll kvöld klukkan 22:00
9 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R28 s p o R T ∙ F R É T T A B L A ð I ð
sport
Íslenska karlalandsliðið hefur
spilað alls sex leiki í Frakklandi en
þeir hafa allir verið á móti heima-
mönnum og hafa allir tapast.
Tveir síðustu leikirnir hafa verið
eftirminnilegir þar sem íslenska
liðið tapaði þeim báðum naum-
lega í fimm marka leikjum (3-2).
Fyrri leikurinn var 1999 á Stade de
France í París í undankeppni
EM 2000 þar sem Eyjólfur
Sverrisson og Brynjar
Björn Gunnarsson
skoruðu og Eiður
Smári Guðjohnsen
lagði upp mark
en þeir Birkir
Bjarnason og
Kolbeinn
Sigþórsson
komu Ís-
landi í 2-0
í vináttu-
lands-
leiknum í
Valenciennes
2012.
Borgunarbikar karla: 16 liða úrslit
Vestri - Fram 2-3
0-1 Ósvald Jarl Traustason (6.), 0-2 Ós-
vald Jarl Traustason (55.), 0-3 Hlynur Atli
Magnússon (59.), 1-3 Hjalti Hermann Gísla-
son (83.), 2-3 Hjalti Hermann Gíslason (86.).
Þróttur - Grótta 4-0
1-0 Brynjar Jónasson (15.), 2-0 Dean Morgan
(58.), 3-0 Brynjar Jónasson (63.), 4-0 Ka-
bongo Tshimanga (90.+4).
Grindavík - Fylkir 0-2
0-1 Víðir Þorvarðarson (4.), 0-2 Sito(32.).
FH - Leiknir 4-1
1-0 Emil Pálsson (14.), 2-0 Óttar B. Guð-
mundsson (51., sm), 3-0 Steven Lennon
(61.), 4-0 Kristján Flóki Finnbogason (63.),
4-1 Kristján Páll Jónsson (89.)
HAnDBoLTI Nýr þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins í handbolta
var kynntur til leiks í gær. Sá heitir
Axel og er Stefánsson, 45 ára gamall
Akureyringur sem hefur verið
búsettur í Noregi undanfarinn
áratug. Axel tekur við starfinu af
Ágústi Jóhannssyni sem hætti eftir
undankeppni EM 2016 sem lauk um
síðustu helgi. Axel, sem var góður
markvörður á sínum tíma, skrifaði
undir þriggja ára samning við en
hann mun búa áfram í Noregi.
Axel hefur unnið fyrir norska
handknattleikssambandið frá 2010
og stýrt bæði yngri landsliðum Nor-
egs í kvennaflokki sem og B-lands-
liðinu sem vann íslenska A-lands-
liðið í æfingaleikjum á síðasta ári.
Þar starfaði Axel m.a. náið með Þóri
Hergeirssyni sem hefur gert frábæra
hluti með norska kvennalandsliðið
á undanförnum árum.
Noregur hefur verið í fremstu röð
í kvennahandboltanum um langt
árabil og HSÍ horfir til gömlu herra-
þjóðarinnar varðandi uppbyggingu
á íslenska landsliðinu sem hefur
verið í lægð undanfarin ár. En út á
hvað gengur þessi norska leið sem
HSÍ hefur ákveðið að fara?
„Hún felst mikið í samstarfi við
leikmenn og félögin. Við komum
til með að setja upp ákveðin pró-
grömm fyrir leikmenn og því verður
svo fylgt eftir. Við vitum að á end-
anum eru það alltaf leikmennirnir
sem vinna vinnuna. Mitt hlutverk
er að hjálpa þeim sem mest svo við
náum okkar markmiðum,“ sagði
Axel í samtali við Fréttablaðið í gær.
Íslenska liðinu gekk illa í undan-
keppni EM 2016 og vann aðeins
einn af sex leikjum sínum þar og
tapaði tveimur síðustu leikjum
sínum, gegn Frakklandi og Þýska-
landi, með samtals 16 marka mun.
Þrátt fyrir brösótt gengi að undan-
förnu sér Axel tækifæri í íslenskum
kvennahandbolta.
„Mér líka áskoranir og það sem ég
hef séð. Það eru margir spennandi
leikmenn í íslenska liðinu en það
eru ákveðin atriði sem þarf að vinna
með. Það eru tækifæri til að búa til
gott lið,“ sagði Axel sem er ekki enn
búinn að finna sér aðstoðarmann en
segir að hann verði íslenskur.
Eftir tapið fyrir Frakklandi í síð-
ustu viku gagnrýndi landsliðsfyrir-
liðinn Karen Knútsdóttir líkamlegt
ásigkomulag íslensku leikmann-
anna og sagði að Ísland stæði bestu
landsliðum heims langt að baki í
þeim efnum. Axel segir að það þurfi
að vinna meira í líkamlega þættin-
um hjá íslenskum leikmönnum og
ætlar að gera bragarbót þar á.
„Nú förum við í það að finna fólk
til að gera mælingar á leikmönnum.
En það mikilvægasta er að vinna þá
vinnu sem þarf til að auka hlaupa-
getu og líkamsstyrk leikmanna.
Kvennahandboltinn verður alltaf
betri og betri í þeim efnum og
það eru fleiri lið í heiminum sem
eru betur þjálfuð,“ sagði Axel sem
hyggst ræða við þá leikmenn sem
hafa verið í landsliðinu að undan-
förnu til að heyra þeirra álit á mál-
efnum liðsins.
Ísland komst á þrjú stórmót í röð
á árunum 2010-12 og Axel setur
stefnuna á að komast þangað aftur.
„HSÍ hefur það markmið að vera
með lið á stórmótum í kvennaflokki
og við vinnum út frá því. Efniviður-
inn er til staðar. Ég sá mikið af leikj-
um í úrslitakeppninni og það voru
margir skemmtilegir og fínir leikir.
En það er klárt að við þurfum að
skoða hversu mikið og hvernig við
æfum,“ sagði Axel. ingvithor@365.is
Norska leiðin farin á Íslandi
Axel Stefánsson er nýr þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Hann starfaði síðast í Noregi.
Axel Stefánsson er kominn heim frá Noregi og fær það vandasama verkefni að byggja aftur upp íslenska kvennalandsliðið í handbolta. FréttABLAðið/StEFáN
Mér líka áskoranir
og það sem ég hef
séð.
Axel Stefánsson
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
A
F
-E
E
2
8
1
9
A
F
-E
C
E
C
1
9
A
F
-E
B
B
0
1
9
A
F
-E
A
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K