Fréttablaðið - 09.06.2016, Síða 46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Skaftason
fyrrv. alþingismaður og sýslumaður,
Sunnubraut 8, Kópavogi,
lést 3. júní. Jarðarförin fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 10. júní
kl. 13.00.
Hólmfríður Gestsdóttir
Gestur Jónsson Margrét Geirsdóttir
Helga Jónsdóttir
Skafti Jónsson Kristín Þorsteinsdóttir
Gunnar Jónsson Kristín Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Jón Ágústsson
Höfðabraut 5, Hvammstanga,
lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga
laugardaginn 4. júní. Útför hans fer fram frá
Hvammstangakirkju föstudaginn 10. júní kl. 14.00.
Ásta Þórhallsdóttir
Þórhallur Jónsson Hólmfríður Ósmann Jónsd.
Helga Jónsdóttir Þorbjörn Gíslason
barnabörn, barnabarnabörn og langalangafabarn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Magnúsdóttir
Álftamýri 42,
lést mánudaginn 6. júní.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
þriðjudaginn 14. júní kl. 13.00.
Magnea Ingibjörg Þórarinsd. Guðmundur Borgfjörð
Guðjónsson
Soffía Dagmar Þórarinsdóttir Eggert Þór Sveinbjörnsson
Sonja Þórarinsdóttir Pétur Kristinsson
Gísli Grétar Þórarinsson Kristín Helgadóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Inga Þórarinsdóttir
frá Þykkvabæ,
sem andaðist þriðjudaginn 31. maí
síðastliðinn, verður jarðsungin frá
Prestsbakkakirkju á Síðu, laugardaginn
11. júní næstkomandi kl. 13.
Einar Bjarnason
Þórarinn Bjarnason Helga Jónsdóttir
Arnar Bjarnason Anna María Pétursdóttir
Halldóra Eyrún Bjarnadóttir Orri Guðjohnsen
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Arnbjörg Súsanna
Sigurðardóttir
frá Stóra-Kálfalæk,
f. 8. 8. 1921,
sem lést þann 21. maí, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju, mánudaginn 13. júní kl. 13.
Steinunn Hjartardóttir Kristján Ásgeir Möller
Anna Hjartardóttir Árni Valdemarsson
Guðrún Arnbjargardóttir
Sigrún Hjartardóttir Einar Steinþór Traustason
og fjölskyldur.
Glöggir hafa mögulega tekið eftir því
að Snorri hefur ekki spilað mikið upp á
síðkastið og eru tónleikarnir í kvöld þeir
fyrstu sem hann kemur fram á í dágóðan
tíma – en Snorri og sveit hafa lengi verið
ansi tíðir gestir á Kexi og spilað þar
reglulega. Snorra þarf nú vart að kynna
fyrir fólki. Hann hefur sent frá sér þrjár
plötur sem sólólistamaður – sú fyrsta,
I’m Gonna Put My Name on Your Door,
kom út árið 2009, en á þeirri þriðju,
Autumn Skies, var hann kominn með
band með sér. Snorri var aðalsprautan í
Sprengjuhöllinni sem gaf út, eins og allir
auðvitað vita, þrjár plötur og átti bandið
nokkur lög sem voru spiluð í hengla í
útvarpi.
„Ég hef verið að taka upp plötu sem
kemur út eftir sirka mánuð eða svo.
Þannig að við erum bara búin að vera
í því svolítið mikið, síðan hef ég verið
í alls konar öðrum verkefnum, var t.d.
að gera tónlist fyrir kvikmyndina Bakk
í fyrra og annað. Þannig að ég setti „live“
spilamennskuna svolítið til hliðar á
meðan. En við ætlum að fara á fullt núna
í sumar og kynna nýju plötuna. Verðum
á Solstice og á Sumarmölinni á Drangs-
nesi núna um helgina og Innipúkanum
líka,“ segir Snorri þegar hann er inntur
eftir því hvað í ósköpunum hann hafi
verið að bralla allan þennan tíma.
Aðspurður segir Snorri að nýja platan
fái mestöll að rúlla þarna á tónleikunum
og í bland við hana muni þau taka
gömul og góð lög eins og gengur svo allir
fái eitthvað fyrir sinn snúð. Með Snorra
verður heljarinnar band sem í eru nán-
ast allir tónlistarmenn landsins.
„Við erum sjö í bandinu, þannig að
þetta verður svona stór „epic-band“
útgáfa af okkur. Þetta eru Valdimar
Guðmundsson, Guðmundur Óskar Guð-
mundsson sem er í Hjaltalín og Hjörtur
Ingvi úr Hjaltalín líka. Síðan er það Silla
– Mr. Silla. Þá er það Örn Eldjárn og
Magnús Tryggvason Elíassen trommari.“
Aðdáendur fengu smá forskot á sæl-
una í gær þegar frá Snorra kom spán-
nýtt lag og myndband – það var lagið
Einsemd af nýju plötunni sem varð fyrir
valinu.
„Á bak við þetta er leikhópur sem
heitir Kriðpleir og strákur sem heitir
Óskar Kristinn Ernisson. Þeir gerðu
þetta fyrir mig í síðasta mánuði og við
náðum að henda þessu strax saman.“
Snorri og band verða á Kexi hosteli í
kvöld klukkan 21.00 og það er frítt inn.
stefanthor@frettabladid.is
Snýr aftur eftir langt hlé
Snorri Helgason kemur fram á Kexi hosteli eftir langt hlé frá tónleikahaldi sem hann nýtti
til að taka upp nýja plötu og vinna að alls kyns nýjungum. Honum til halds og trausts er
stærðarinnar band sem mun spila úti um allt í sumar í tilefni af útgáfu plötunnar.
Snorri verður á faraldsfæti í sumar, hann mun spila á öllum helstu hátíðunum og verður t.d. á Drangsnesi um helgina. MynD/Owen Fiene
Ég hef verið að taka upp
plötu sem kemur út
eftir sirka mánuð eða svo.
Þannig að við erum bara búin að
vera í því svolítið mikið, síðan
hef ég verið í alls konar öðrum
verkefnum, var t.d. að gera
tónlist fyrir kvikmyndina Bakk í
fyrra og annað. Þannig að ég
setti „live“ spilamennskuna
svolítið til hliðar á meðan.
Snorri Helgason
Miklir jarðeldar með áköfu gosi komu
upp á Síðumannaafrétti þennan dag,
árið 1783. Skaftá þornaði upp en hraun-
flóð vall fram árgljúfrið milli Skaftár-
tungu og Síðu með ógurlegum drunum
og skruðningum og ógnaði byggðinni.
Þessu fylgdu miklir jarðskjálftar og
öskufall. Fýlan var svo megn að fólki sló
fyrir brjóst.
Þannig er upphafi Skaftárelda lýst
í Öldinni okkar. Þar kemur fram að
undanfari gossins hafi verið snarpir
jarðskjálftakippir sem færðust í aukana
uns mökkur mikill hafi sést rísa yfir
byggðarfjöll norðan Síðu í heiðskíru og
spöku veðri um miðjan hvítasunnudag,
þann 8. júní. Sá mökkur hafi breiðst um
Síðuna alla og austur um Fljótshverfi
og orðið hafi dimmt í húsum inni. „Í
Skaftártungu ýrði úr lofti og var það
svört leðja, áþekk bleki, sem lagðist yfir
jörðina.“
Þ ETTA G E r ð I ST : 8 . j ú N í 1 7 8 3
Skaftáreldar blossa upp með tilheyrandi látum
Lakagígar urðu til í Skaftáreldum. wiKipeDia/JuHáSz péter
9 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R34 T í M A M ó T ∙ F R É T T A B L A ð I ð
tímamót
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
A
F
-C
1
B
8
1
9
A
F
-C
0
7
C
1
9
A
F
-B
F
4
0
1
9
A
F
-B
E
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K