Fréttablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 50
Ég hef alltaf lagt
áherslu á að vinna
í teymi, það er ekki ein-
ræðishyggja ríkjandi þar
sem Ég stjórna, mÉr finnst
mikilvægt að upplýsinga-
flæðið sÉ gott og gagn-
kvæm virðing ríki innan
hópsins.
TónlisT
Brjálæðislegt úthald trommu-
leikarans
HHHHH
Djasstónleikar
Terri Lyne Carrington ásamt sjö
manna sveit á Listahátíð í Reykja-
vík.
Eldborg í Hörpu
Sunnudaginn 5. júní
Lokatónleikarnir á Listahátíð skört-
uðu heimsfrægum djassista, Terri
Lyne Carrington. Hún er trommu-
leikari og þrefaldur Grammy-verð-
launahafi. Með henni voru sex
hljóðfæraleikarar sem spiluðu á
píanó, tvo saxófóna, gítar, bassa
og flautu. Byrjun tónleikanna var
kröftug. Spilað var ákaft lag, hálf-
gerður frjálsdjass þar sem allt er
leyfilegt. Hljóðmixið var sérstakt,
venjulega heyrist ekki svona mikið
í trommunum. En það var ekki
leiðinlegt. Carrington er magnaður
trommuleikari, leikur hennar var
sérlega margbrotinn og oft ótrú-
lega hraður. Hið sérstaka var þó hve
hann var í leiðinni afslappaður, það
var engin stífni í áslættinum. Allt
lék í höndunum á trommuleikar-
anum. Minnist maður orða Roberts
Schumanns, sem sagði: „Sá sem ekki
leikur við hljóðfærið, leikur ekki
heldur á það.“
Tónleikarnir tóku klukkutíma
og þrjú korter án hlés. Carrington
lamdi trommurnar allan tímann af
sama fjörinu, hún gaf aldrei eftir.
Hvílíkt úthald!
Hinir hljóðfæraleikararnir voru
einnig með allt sitt á hreinu. Saxó-
fónarnir voru dillandi og litríkir,
píanóleikurinn var skemmtilega
snarpur, bassinn pottþéttur, gítar-
inn glitrandi og flautuleikur hinnar
tvítugu Elenu Pinderhughes dásam-
lega breiður og munúðarfullur. Sú
síðastnefnda hóf líka upp raust sína
á köflum, en hún var fyrst og fremst
bakrödd. Hún gerði það þó fallega.
Dagskráin var fjölbreytt. Þarna
voru „standardar“ á borð við
Body and Soul eftir Johnny Green,
Unconditional Love eftir Nick
Drake og Come Sunday eftir Duke
Ellington. Svo voru lög af plötunni
The Mosaic Project sem kom út árið
2011. Það er frábær plata þar sem
allir músíkantarnir eru kvenkyns.
Í fyrra kom út eins konar framhald
plötunnar, hún er aðeins poppaðri
en ekkert síður skemmtileg.
Söngkonan Lizz Wright kom
fram með bandinu og söng nokkur
lög. Röddin var svo unaðslega safa-
rík og fögur að maður hreinlega
gleymdi stund og stað. Þetta var í
einu orði sagt: Snilld.
Jónas Sen
niðursTaða: Algerlega frábærir
djasstónleikar.
Brjálæðislegt úthald trommuleikarans
„Carrington er magnaður trommuleikari, leikur hennar var sérlega margbrotinn og
oft ótrúlega hraður,“ segir í dómnum. NoRdiCPHoToS/GETTy
„Ég sé fram á ærin verkefni fram undan og veit að fókusinn verður að vera á réttum stað,“ segir Katrín. FRÉTTabLaðið/STEFáN
Ég sótti um starfið eftir að hafa fengið póst frá óperunni um hvort ég hefði ekki hugsað mér að sækja um, það hvatti mig
til að láta vaða. Svo var ég valin, það
er mikill heiður og ögrun fyrir mig,“
segir Katrín Hall, sem er nýráðin
listrænn stjórnandi dansflokks
Gautaborgaróperunnar í Svíþjóð.
Hún kveðst fylgst með Gauta-
borgardansflokknum, enda hafi
hann verið leiðandi í sínu starfi. „Ég
hef farið á sýningar með flokknum
og þekkt tvo síðustu stjórnendur
hans. Það er oft samgangur og
aðstoð milli flokka.“
Fráfarandi stjórnanda hjá Gauta-
borgardansflokknum, Adolphe
Binder, kveðst Katrín hafa þekkt
ágætlega og segir hana hafa gert
gríðarlega góða hluti með flokkn-
um. „Leikárið fram undan er skipu-
lagt af Binder og ég get fyllilega
staðið undir því með stolti. Það er
metnaðarfullt og nokkurn veginn
eins og ég hefði getað sett saman,
þar eru danshöfundar sem ég hef
starfað með og átt önnur samskipti
við. Mér finnst góð tilfinning að
geta staðið 100% við bakið á leiktíð
sem ég planaði ekki sjálf.“
Katrín var í 16 ár með Íslenska
dansflokkinn, frá 1996 til 2012.
Síðan kveðst hún hafa verið í lausa-
mennsku við að semja dansverk
fyrir hina og þessa dansflokka, auk
þess að kenna bæði við Listahá-
skólann og á alþjóðlegum vett-
vangi. „Mestmegnis er ég búin að
vera á fartinni erlendis, markaður-
inn er nú ekki stór í þessu fagi hér
á landi.“
Katrín tekur formlega við nýju
stöðunni 1. ágúst en samdi um að
verða einhverja daga í burtu vegna
annarra verkefna sem hún þarf að
ljúka. „Auk þess er í samningnum
að mér er veitt öðru hverju launa-
laust leyfi til að semja verk fyrir
aðra dansflokka því ég tel mikil-
vægt að listrænn stjórnandi sé líka
starfandi listamaður,“ segir hún
og bætir við: „Ekki það að ég ætli
að nýta mér það strax. Ég sé fram
á ærin verkefni fram undan og veit
að fókusinn verður að vera á réttum
stað.“
Þrjátíu og átta dansarar eru við
dansflokk Gautaborgaróperunnar
eins og er, að sögn Katrínar. Hún
kveðst hlakka til að kynnast þeim,
finna út þeirra styrkleika, hvað
þeir hafi að bjóða sem listamenn
og hvernig þeir nái að blómstra og
vaxa. „Þetta er mikið samspil. Ég
hef alltaf lagt áherslu á að vinna í
teymi, það er ekki einræðishyggja
ríkjandi þar sem ég stjórna, mér
finnst mikilvægt að allir séu með
um borð, upplýsingaflæðið sé gott
og gagnkvæm virðing ríki innan
hópsins.“
Matthea Lára, dóttir Katrínar og
Guðjóns Pedersen, var að útskrif-
ast úr Hagaskóla í fyrradag og
Katrín kveðst vona að hún fái inni
í menntaskóla í Gautaborg. „Við
reiknum öll með að vera sem mest
í Svíþjóð, kannski á það eftir að
gerast í einhverjum skrefum, það
kemur í ljós. Þetta er svo nýtil-
komið.“
Mikill heiður og
ögrun fyrir mig
katrín hall danshöfundur er nýr list-
rænn stjórnandi dansflokks gautaborg-
aróperunnar frá 1. ágúst að telja. hún sér
fram á áhugaverð og krefjandi verkefni.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
9 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M T u D a G u r38 M e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð
menning
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
A
F
-A
9
0
8
1
9
A
F
-A
7
C
C
1
9
A
F
-A
6
9
0
1
9
A
F
-A
5
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K