Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.03.1983, Síða 9

Víkurfréttir - 24.03.1983, Síða 9
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur24. marz 1983 9 Steinsteypusögun hjá Kristjáni og Margeiri: Hljóðlát - ryklaus og fljótvirk Steinsteypusögun er nokkuð nýleg þjónustasem þeir félagar Kristján Kristj- ánsson og Margeir Elentín- usson bjóða upp á og hafa þeir bæði vegg- og gólfsög til verkanna. Veggsögin sagar allan stein eða stein- steypu og getureinnig sag- að steypustyrktarjárn sem eru í steinsteypu og er það þá gert þvert á járnin. Vegg- sögin sagar allt að 37 cm djúpan skurð sé sagað annars vegar frá, en helmingi meira sé sagað beggja megin frá. Einnig hafa þeir félagar gólfsög til að saga í gegnum gólf og plön. Með henni eru sag- aðar sprunguraufar til að hindraóæskilegarsprungu- myndanir í gólf og plön. Þessar sagir geta því sagað m.a. i uppsteypta veggi, gólf, plön og malbik og helstu kostir eru þeir að titringur er enginn, hávaði lítill, skurðurinn er hreinn og ekkert ryk myndast þar sem blööin eru vatnskæld og það vatn sem kemur er sogað upp með þar til geröri vatnssugu. Á meðfylgjandi mynda- syrpu sést hvernig sagað er úr vegg hjá fiskverkunar- húsi Óskars Ingiberssonar, en það var byrjað að saga kl. 13 og kl. 20 var komin hurð í. - pket. Fyrst er mátað . . . UMFN - KR 84:98 Áhugalausir Njarðvíkingar urðu KR-ingum auðveld bráð Njarðvíkingar og KR-ingar léku f úrvalsdeiid körfubolt- ans sl. föstudagskvöld í fþróttahúsinu i Njarðvík. Lauk leiknum meö sigri KR-inga, 98:84, en staðan í hálfleik var 42:38 fyrír KR. Leikurinn var frekar daufur í byrjun. Liðin skipt- ust á um að hafa forustuna, en KR-ingar náðu þó fljót- lega yfirhöndinni, og er 7 mínútur voru búnar af fyrri hálfleik var staðan orðin 16:10 fyrir KR. Njarðvíkinaar voru mjög áhugalausir og sýndu enga baráttu. Þeim tókst þó að minnka muninn í 4 stig fyrir leikhlé, 42:38. í seinni hálf- leik breikkuðu KR-ingaraft- ur muninn og er 4 mínútur voru búnar af seinni hálf- leik var staðan orðin 44:54 KR-ingum í vil. Njarðvíking- ar sem voru baráttulitlir náðu aldrei að ógna sigri KR-inga. Stewart Johnson var besti maður KR-inga og var hittni hans mjög góð. Bill Kotterman sem lék sinn síðasta leik með Njarð- vikingum, átti mjög góðan seinni hálfleik, skoraði 14 stig í einu og 26 stig í seinni hálfleik. Kottermann var kvaddur með gjöfum frá 2. flokki kvenna, en þær urðu (slandsmeistarar undir hans stjórn. Stigin: UMFN: Bill 34, Gunnar 20, Árni 12, Valur 7, Ástþór 4, Ingimar 4 og (sak 3. KR: Stu 47, Garðar 15, Jón 14, Páll 10, Kristján 4, Þorsteinn 4 og Birgir 2. gyi- Trassaskapur Alltof oft vill það brenna við að húseigendur hreinsi ekki burt stór- hættuleg grýlukerti eins og þau sem sjást á myndinni, sem tekin var dag einn fyrir stuttu uppi viö flugstöö. . . . veggurinn tilbúinn . . . ekkert mál. Frá Bílasölu Brynleifs Vantar bíla á skrá. - Góð aðstaða. Reynið viðskiptin. BÍLASALA BRYNLEIFS Vatnsnesvegi 29a - Kellavfk - Sími 1081 Keflvíkingar, Suöurnesjamenn Kynning á handunnum vörum frá verður í versluninni dagana 25.3. til 9.4. Mikið úrval. Tjarnargötu 3 - Kefiavík - Sími 3308 Það er nánast sama hvers þú leitar - þú finnur allar útgáfurnar í Amsterdam! Fólk, verslun, tíska, menning, listir, veitingahús, skemmtistaðir, kaffihús, - Amsterdam á þetta allt - alls staðar að úr heiminum. ÞU FINNUR Aim HEIMINN IHOLI4NDI Arnarflug flýgur til Amsterdam alla þriðjudaga og föstudaga. Hafðu samband við söluskrifstofuna - Amsterdamflugið opnar þér ótal leiðir til styttri eða lengri ferða um Amsterdam, Holland eða Evrópu - sprengfullum af spennandi dægradvöl fyrir þig og þína. /Imsterdam áœtlunin - frábœr ferðamöguleiki Hafið samband við söluskrifstofu Arnarflugs, Keflavíkurflugvelli eða umboðsmenn ferðaskrifstofanna í Keflavík. Flugfélag með ferskan blæ ^fARNARFLUG Keflavíkurflugvelli Herb. 21 Opið 9-12 virka daga Sími 92-2700

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.