Víkurfréttir - 24.03.1983, Side 13
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 24. marz 1983 13
Slysagildran á
Aðalstöðvarplaninu
Annars staöar í blaöinu í
dag er rætt um fjölda um-
ferðaróhappa hér í um-
dæminu í febrúar-mánuði.
Athygli er þar vakin á ein-
um stað í Keflavík sem sker
sig úr varðandi fjölda ó-
happa, en þar er um að
ræða plan Aðalstöðvarinn-
ar, Hafnargötu 86.
Af þessu tilefni leitaði
blaðið til tveggja aðila,
annars vegar starfsmanns á
planinu og hins vegar lög-
reglunnar, til að fá úr því
skorið hvernig á þessu
stæði og hvað væri til úr-
bóta.
Fyrst tókum við tali Jó-
hannes Sigmarsson, en
hann er bensínafgreiðslu-
maður hjá Aðalstöðinni.
Hann og starfsfélagar hans
hafa ekki farið varhluta af
óhöppum þarna og telja að
aðeins lítill hluti þeirra komi
fram í skýrslum lögregl-
unnar, því þarna séu nær
dagleg óhöpp af ýmsu tagi.
Jóhannes sagði að
glannaskapur væri aðalor-
sökin og einnig að umferð-
armerki þau sem þarna séu
væru ekki virt. Oft á tíðum
væri þarna einnig fjöldi van-
búinna ökutækja, þ.e.a.s.
varðandi ýmis öryggisatr-
iði, svo ekki væri minnst á
hávaðann sem þessi öku-
tæki skapa. Hann tók sér-
staklega fram að hér væru
ekki eingöngu á ferðinni
unglingar, heldur einnig
ýmsir eldri ökumenn. Sagði
hann að oft væri glanna-
skapurinn mikill, sérstak-
Hœttulegt vinnusvaeðl
Stendur á
Hafnaryfirvöldum
lega síðdegis á föstudögum
og þá vegna ökumanna er
notuðu svæðið framan við
bensinafgreiðsluna til
gegnumaksturs á leiö í
áfengisverslunina. Væri
búið að aka eitthvað utan í
alla bensínafgreiðslumenn-
ina og væri einn óvinnufær
á eftir og óvíst hvort hann
kæmi aftur til starfa.
öll kvöld og helgar væri
þetta mikið vandamál ann-
ars staöar á planinu og
hafði hann heyrtaðtil stæði
að setja kantsteina milli
bensínstöövari nnar og
leigubílastöðvarinnar til að
koma í veg fyrir þennan ó-
fögnuð.
Að lokum kvaðst Jóhann-
es vonast til að umferðar-
yfirvöld sæi svo um að
a.m.k. umferðalög, þ.á.m.
umferðarmerking væru
ekki þverbrotin þarna og að
málið yrði nú tekið það al-
varlega, að þetta heyrði
fljótt fortíðinni til.
Karl Hermannsson hjá
umferðardeild lögreglunn-
ar sagði að vegna þessarar
ískyggilegu þróunarmyndu
lögregluyfirvöld ítreka fyrri
óskir sínar um að Aðal-
stöðvarplanið yrði skipu-
lagt betur og þá jafnvel af-
markað meira, vegna þeirr-
ar miklu þjónustu er þarna
fer fram á litlu svæöi, svæði
sem einnig dregur að sér
mikinn fjölda bifreiða á hin-
um ýmsu tímum. Varðandi
önnur atriði yrði málið
kannað nánar.
Vonandi tekst öllum aðil-
um í sameiningu að byrgja
brunninn áðuren fleiri detta
ofan í hann. - epj.
( október 1981 var mikið
skrifað um það hér í blað-
inu að nauðsynlegt væri að
auka skipakomur til Lands-
hafnarinnar og koma þar
með í veg fyrir að afurðir
héðan væru fluttar í skip í
Reykjavík til útskipunar.
Niðurstaöa þessara skrifa
var skipun nefndar til at-
hugunar á málum þessum.
Þar sem nú er liðinn all
langur tími síðan, lék okkur
forvitni á að fá niðurstöður
þeirrar nefndar og hvað
hefði komið út úr málum
þessum, og því tókum við
tali Jón Norðfjörð, fram-
kvæmdastjóra Skipaaf-
greiðslu Suðurnesja.
„Ýmislegt hefur skeð, en
aðrir hlutir hafa breyst,"
sagði Jón. „Bæöi Sam-
bandið og Skreiðarsamlag-
ið hafa komiö hér upp safn-
stöðum fyrir skreiðina og
síðan hefur öll skreiö farið
héðan út, þ.e.a.s. allt nema
(taliuskreiðina, sem fer i
gáma og er því keyrð í smá
skömmtum inn eftir. Salt-
fiskurinn fer alfarið hér um,
og þar er meira um að
komið er hingað til lestunar
annars staðar frá. Sama má
segja um aðrar sjávaraf-
urðir."
Um varnarliðsvörurnar
sagði Jón: „Það þýðir ekk-
ert að tala um þau mál
meðan höfnin kemur ekki
með þá aðstöðu sem skipin
þurfa til að losa þá vöru
hér." - epj.
Hafnargötu 31 - Keflavik
30% afsláttur
af öllum fermingartertum.
Keflvíkingar, Suðurnesjamenn
HÚSAGERÐIN HF. AUGLÝSIR
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér íbúð í glæsilegasta fjölbýlishúsi bæjarins.
Örfáum þriggja herbergja íbúðum nú óráðstafað. íbúðirnar afhendast tilbúnar undir
tréverk með sameign fullfrágenginni. Húsið er staðsett við Hólmgarð 2, eða á besta
stað í bænum og örstutt verður í stóra verslunarmiðstöð sem byggðverður ítenglsum
við húsið.
Hafið samband sem fyrst. Allar upplýsingar í síma 2798 hjá Húsagerðinni hf. og ísíma
1420 hjá Fasteignasölunni, Hafnargötu 27, Keflavík.
-