Víkurfréttir - 11.05.1983, Page 7
VÍKUR-fréttir
Miðvikudagur 11. maí 1983 7
Heilsugæslan, góðan dag ....
Hver kannast ekki við
þessa setningu, eöa öllu
heldur rödd sem kemur í
símann þegar þú hringir í
3360? Þú hringir vanalega
ekki þangað nema að eitt-
hvað ami að þér og þú
þarfnast „viðgerðar".
Þú sem sagt hringir í
heilsugæsluna þegar þú ert
lasinn og sþyrð hvort þú
getir fengiö tíma hjá lækni.
Símastúlkan svarar ansi
elskulega, að því miöur sé
það ekki hægt í dag, en
hvernig væri að prófa á
morgun? Jú, það er allt í
lagi, klukkan hálf tíu skaltu
mæta. Þú ert oröinn öllu
skárri eftir að hafa talað við
röddina á heilsugæslunni.
En þú kemst fljótt að raun
um að það er bara plat-bati
og þú hringirafturogsegist
vera öllu verri en fyrr,
kominn með yfir fjörutíu
stiga hita, svitnir eins og í
vinnunni og sért á klósett-
inu öllum stundum. Hún
(röddin) spyr hvort þú hafir
reynt aö liggja fyrir með
heitan bakstur við magann.
Þú segist ekki hafa eirð í þér
að liggja fyrir, en þú viljirfá
lækni í húsvitjun. Hann
kemur bara ef þaö er eitt-
hvað nauösynlegt, segir
röddin þá. Þú segir það vera
alveg bráðnauðsynlegt, þú
getir vara ekki verið svona
lengur. Röddin segir að þú
verðir að hringja eftir kl. 5.
Þú þakkar fyrir þig.
Klukkan tifar áfram,
mikið er tíminn alltaf lengi
að líða þegar þú ert veikur.
Jæja, þá er klukkan orðin
fimm, þú þrífur símann upp
og hringir. Símsvarinn talar
við þig og gefur þér upp
annað símanúmer. Þú
hringir aftur, í það númer,
annar símsvari svarar, þar
sem segir að læknirinn sé
farinn í vitjun upp í Grinda-
Hvar er pósthúsið?
Ég er einn þeirra sem
mikið ferðast innalands,
bæði starfs míns vegna og
til að kynnast landinu okk-
ar. Á þessum ferðum þarf
ég oft á þjónustu pósthús-
anna á hinum ýmsu stöðum
að halda.
Hér í Keflavík gekk mér
mjög erfiðlegaaðfinna það,
þó það hafi tekist að lokum,
og má það furðu sæta að
engin merking skuli vera á
þessari nauðsynlegu stofn-
un.
Aðkomumaöur
Vegna þessa bréfs höfðum
við samband við Björgvin
Lútherssonar símstöðvar-
stjóra. Hann sagði að nú
væri í pöntun Ijósaskilti
með merkingu Pósts og
Síma, og væru liðin 3-4 ár
síðan pöntunin varlögð inn.
En það sem helst hafi
dregið afhendingu á skilt-
unum væri sú reynsla sem
væri hér við Hafnargötuna,
þarsem Ijósaskilti fá yfirleitt
ekki að vera í friði fyrir
skemmdarvörgum. Þetta
þætti sér mjög slæmt og
hefði hann reynt ítrekað aö
fá skilti þrátt fyrir þessa
reyslu.
Árangurinn væri sá, að nú
fyrir haustiö yrði sett hér
upp Ijósaskilti sem merkti
staöinn vel. Að vísu hefðum
við mastrið stóra, sem sést
víöa aö, en það vissu ekki
allir hvað það merkti, en yfir
höfuð væri hann mótfall-
inn gluggaskiltum. En eins
og áður segir leysast þessi
mál með haustinu. - epj.
Tíðar uppákomur
í Vitanum
Sl. sunnudag var haldið
upp á ársafmæli veitinga-
hússins Vitans í Sandgerði
meö kaffihlaðboröi, auk
þess sem Bergþóra Árna-
dóttir vísnasöngkona
skemmti gestum meö söng
sínum.
Hefur rekstur vieitinga-
staðarins gengiö nokkuð
vel þetta fyrsta ár sitt, en
veitingamaðurinn hefur
bryddað upp á ýmsum
uppákomum þennan tíma,
t.d. hefur Bergþóra komið
fram fjórum sinnum auk
þess sem hún hefur komið
TRAKTORSGRAFA MF 50 B
Tek að mér alla almenna
gröfuvinnu.
Frlðbjðm BjðmMon
Slml 3734
óvænt í hádegismatartím-
um.
í sumar hefur veriö
ákveöið aö hafa kaffihlaö-
borð alla sunnudaga og
ættu Suðurnesjamenn að
koma við á sunnudagsrúnt-
inum og kynnast því. - epj.
Bergþóra Árnadóttir
skemmtir i Vitanum
vík, já, þeir veröa vist veikir
þar líka. Þú reynir aftur
seinna, þá er læknirinn úti i
Sandgerði, eða var það úti í
Garði? svo á hann eftir að
vitja inni í Vogum og suður í
Höfnum. Jæja, þá getur
hann líka farið að byrja á
Njarövik og Keflavík, ef
hann er þá ekki búinn með
hluta af þeim vitjunum
strax.
Já, hugsar þú með þér,
skyldu þeir ekki vera þreytt-
ir þessir menn, vera allan
daginn á fullu, í símanum,
vitjunum, móttöku og verið
að kvabba á þeim allan dag-
inn? Ekki vildir þú vera í
þeirra sporum, aldrei friður.
Nei, þú einfaldlega hættir
viö að reyna að ná í lækni,
því þú veist aö þú ert vís
með að vera oröinn góður
þegar það loksins hefst að
ná í hann. Eins og gamall
vinur minn sagði:
Hér eru læknarnir lausir við
stress,
þó líflegt sé hjá þeim að
gera.
Þeir dæma þig annað hvort
ákveðiö-,,hress“,
ellegar ,,finitó“, búinn að
vera.
P.S. Heyrðu annars, mér
finnst það nú ansi slæmt ef
íslendingar þurfa að fara að
kenna Könunum að reykja
hass. Kannskieggiðséfarið
að kenna hænunni?
0.0.7.
Bílasala Brynleifs
Vatnsnesveg 29a - Keflavík - Sími 1081
Vegna eftirspurnar vantar
t.d. Hondur, Mözdur, Saab og Toyotur
árgerðir 1979 - ’82.
Opið alla virka daga og laugardaga.
[Bílasala Brynleifs
Tilkynning
frá Hitaveitu
Suðurnesja
DRÁTTARVEXTIR VERÐA INNHEIMTIR
frá og raeð 15. maí 1983.
Hitaveita Suðurnesja
Næsta blað kemur út 19. maí
„GLÓÐIN“ býður þér upp á:
• Gómsaeta sjávarrétti
• Girnilega kjötrétti
• Ljúffengar kaffiveitingar
• Glæsilegan salat-bar
og síðast en ekki síst
• Indælt starfsfólk og
rómantískt umhverfi,
sem ekki sinn líkan.
Opið frá kl. 9-21.30
alla virka daga.
Laugardaga og sunnudaga
frá kl. 10.30-22.30.
Hafnargötu 62
Keflavík
NEI, NÚ FER
ÉG í
TRIMMIÐ.
Allt í trimmið.
Hafnargötu 54 - Símí 1112