Víkurfréttir - 09.06.1983, Síða 12
12 Fimmtudagur 9. júni 1983
VÍKUR-fréttir
AÐALFUNDUR
FR-deildar 2 E
verður haldinn sunnudaginn 12. júní kl. 14 í
Stapa, litla sal. - Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
ÚTBOÐ |
Sjóefnavinnslan hf. óskar eftir tilboðum í
efnisútvegun og smíði á tveimur eimum úr
stáli. Þyngd hvors um sig er u.þ.b. 16 tonn,
þvermál 4,7 m, lengd 8,3 m. Efnisútvegun
þar aö auki er u.þ.b. 19 tonn. Skilatími er j
23. nóvember 1983.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu Sjó-
efnavinnslunnar hf., Vatnsnesvegi 14,
Keflavík, og hjá Vermi hf., Höfðabakka 9,
Reykjavík, gegn 1.000 króna skilatrygg-
ingu.
Tilboð veröa opnuð hjá Vermi hffimmtu-
daginn 23. júní 1983 kl. 11 f.h.
Sjómannadagurinn í Keflavík:
Stór dagur hjá áhöfn Happasæls
Hátiöarhöld sjómanna-
dagsins í Keflavík/Njarövík
hófust meö hefðbundnum
hætti kl. 9sl. sunnudag með
þvi aö íslenski fáninn var
dreginn aö húni við höfnina
og minnismerki sjómanna,
en viö síðarnefnda staöinn
safnaðistfólksamanum 10-
leytiö og þaðan var fariö í
skrúðgöngu til kirkju þar
sem hlýtt var á sjómanna-
Unnar fíagnarsson, sigurveg-
arrnn i stakkasundinu
messu. Hvort þaö hefur
veriö vegna þess að nú var
farin ný gönguleið eða af
einhverri annarri ástæöu,
þá var frekar fátt fólk í göng-
unni.
Gengiö var frá merkinu,
Sunnubraut, Skólaveg,
Hringbraut, Aöalgötu og
Kirkjuveg. Þá vantaði lúðra-
sveitina, en hún boðaði
óvænt forföll kvöldið áður.
Eftir hádegi var farin
skemmtisigling frá Kefla-
víkur- og Njarðvíkurhöfn-
um og tóku 6 bátar þátt í
henni. Siglt var út undir
Garð og heim aftur. Fór ekk-
ert á milli mála að þetta er
lang vinsælasta dagskrár-
atriðið. Aðeins einn af bát-
unum var með signalfána,
þ.e. Albert Ólafsson, hinir
létu sér nægja íslenska fán-
ann.
Kl. 14.30 hófust síðan hin
eiginlegu hátíðarhöld við
höfnina, með hátíðarræðu
Kristjáns Ingibergssonar
skipstjóra. Þá voru þrír
aldnir sjómenn heiðraðir,
þeir Baldvin Oddsson, Vog-
um, Sigurður Breiðfjörð Ól-
afsson og Vikar Árnason.
Aflakóngur síðustu vertíð-
ar, Guðmundur Rúnar Hall-
grímsson á m.b. Happasæli
KE 94, var einnig heiðr-
aður.
Að því loknu tóku íþróttir
við og sigraði sveit Voga-
manna að vanda í kapp-
róðrinum. Unnar Ragnars-
son sigraði í stakkasundi og
Ómar Ingvarsson í kodda-
slagnum. En af óviðráðan-
legum orsókum féllu bæði
reiptogið og boðhlaupið
niður. Mikil og hörð keppni
varð um afreksbikar sjó-
mannadagsins milli skips-
hafnanna á m.b. Happasæl
og Árna Geir, og tóku ein-
staklingar úr báðum skips-
höfnum þátt í öllum grein-
um og urðu því jafnir og þvi
var tími látinn ráöa, og hlaut
Rúnar Guðmundsson bik-
arinn eftirsótta, sem skips-
hafnarmeðlimur á m.b.
Happasæli. Má því segja að
þetta hafi verið stór dagur
hjá þeirri áhöfn.
Fjöldi áhorfenda fylgdist
með hátíðarhöldunum við
höfnina þrátt fyrir hálf leið-
inlegt veður, sem orsakaði
þaö að fólki tók að fækka
nokkuð er á leið. - epj.
Stóraukin þjónusta - Nýtt leiðakerfi
Nú til reynslu næstu þrjá mánuöi verða ferðir milli Njarðvíkur og
Keflavíkur sem hér segir:
Frá Njarðvík kl.: Frá Keflavík kl.:
7.35
9,25
10.15
10.45
11.45
12.40
13.30
14.00
14.45
15.30
16.30
18.00
18.30
19.10
8,45
10.00
10.30
11.00
11.30
12.05
13.10
13.45
14.30
15.15
16.15
17.15
18.15
19.05
Ekið verður: Sjávargötu, Borgarveg, Móaveg, Hlíðarveg, Holts-
götu, Hjallaveg, Vallarbraut, Hringbraut, Vesturgötu, Hafnar-
götu og sömu leið til baka. StoppaðverðurviödyrSamkaupsog
Hagkaups.
Timar í Ytri-Njarðvík verða 5-7 mínútur eftir tíma frá Innri-Njarð-
vík og Keflavík. [ Grænás verður ekið eftir þörfum.
Biðstöðvar verða sem hér segir:
A Borgarvegi: Við Sjávargötu og hjá Friðjónskjöri.
Á Móavegi.
Á Hlíðarvegi: Við dagheimilið.
Á Holtsgötu: Við Hjallaveg á móts við Stapann.
Á Vallarbraut.
Keflavík: Á venjulegum biöstöðvum.
(GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA).
STEINDÓR SIGURÐSSON
Sérleyfis- og hópferðabílar
Njardvik - Pósthólt 108 - Simi 2840-3550
Aflakóngurinn Guómundur fíúnar Hallgrimsson, tekur vió vióur-
kenningu úr hendi form. sjómannadagsráós, Jóni Kr. Olsen.
Þeir voru heiöraóir. F. v.: Vikar Árnason, Baldvin Oddsson og Sig-
uróur Breiófjöró Ólafsson.
Vogamennirnir, hinir ódrepandi sigurvegarar i kappróórinum