Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.1984, Síða 5

Víkurfréttir - 12.04.1984, Síða 5
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 12. apríl 1984 5 Pulsuvagninn á nýjan stað Á miðvikudag í síðustu viku flutti Vilberg Skúlason pulsuvagn sinn á nýjan stað í Keflavík. Hann er nú stað- settur að Tjarnargötu 9, nánar tiltekið á móti ný- byggingu Sparisjóðsins. Flutningur vagnsins var ekki leikur einn, en með hjálp þeirra Eyjólfs og Ingi- mundar í Skiptingu sf. og aðstoð lyftara, þá tókst flutningurinn mjög vel. Eins og sjá má á meðfylgj- andi myndasyrpu af flutn- ingnum, þá kveður Einar Júl. Vilberg nágranna sinn og óskar honum alls besta á nýja staðnum. Einar ætti þó ekki að vera í vandræðum meðaðfásépulsu íframtíð- inni, þvð það eru ekki nema um 100 metrar úr Hljómval til Villa á nýja staðnum. Einsi ætti að fara létt með það, enda léttfætt- ur með afbrigðum. - pket. Stakkur safnar fyrir innréttingum Björgunarsveitin Stakkur er um þessar mundir að safna fyrir innréttingum í hús það sem sveitin hefur nýlega fest kaup á við Iða- velli. Verður því m.a. hald- inn kökubasar þar sem á boðstólum verðatertubotn- ar, formkökur og kleinur. Er sölustaður i sölutjaldi við hliðina á Pulsuvagnin- um á móti nýbyggingu Sparisjóðsins við Tjarnar- götu og stendur salan yfir frá kl. 10 til 18 á morgun, föstudag. - epj. „ Blessaður, Villi minn, þetta er allt i lagi þó þú flytjir, ég er nefnilega að fá mér reiðhjól og þá hjóla ég bara til þin", segir Einar Júl. „ Villi, það er allt fullt af smápeningum hérna, ég ætla að fá eina með öllu ..." Flutningurinn gekk eins og isögu og Eddibó ók eins og Ijón i stil við Bjössa á mjólkurbilnum. Pulsuvagninn kominn á áfangastað og Villi helduráfram að selja þjóðarréttinn ofan i Suðumesjamenn. Efri hæð: Lokað föstudags- og laugardagskvöld. Neðri hæð: Bjóðum sérstakan matseðil föstudags- og laugardagskvöld, m.a. Franskt Paté eða blómkálssúpu - Hunangsgljáðir kjúklingar með bananasósu, eða svína- steik með hnetu- eða eplafyllingu, ásamt fjölda annarra rétta. P.S. Konur, verið góðar við eiginmanninn og bjóðið honum út að borða, svo hann sleppi við uppvaskið. Víkurbraut - Keflavík Símar 1505, 2616 PARKET frá LAMELLA og TARKET ásamt mottum á parketið. JÁRN & SKIP

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.