Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 12.04.1984, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 12. apríl 1984 VÍKUR-fréttir P. Prjónakonur Kaupum nú einungis hnepptar kven- og karlapeysur í öllum stæröum. Móttaka aö löavöllum 14b, frá kl. 10-12 miðvikudaginn 25. apríl n.k. na ÍSLENZKUR MARKADUR HF. Q>|| ÁÐUR Sól Saloon SÓLBAÐSSTOFA Hátelg 13 - Keflavlk Muniö sterku perurnar. Opiö frá: mánud.-föstud. 7-23 laugardaga - sunnudaga .... 9-21 Sími 3680 Aðaífundur og hátíðarfundur Krabbameinsfélags Suðurnesja í tilefni þess að Krabbameinsfélag Suðurnesja átti 30 ára afmæli 15. nóvember síðastliðinn verður haldinn hátíðarfundur í tengslum við aðalfund félagsins. Fundurinn verður í Glóðinni í Keflavík iaugardaginn 14. apríl og hefst kl. 14. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kjör heiðursfélaga. 3. Eyþór Þórðarson fjallar um starf félagsins síðustu þrjátíu ár. 4. Kaffiveitingar í boði félagsins. 5. Avörp gesta. 6. Ragnheiður Guðmuridsdóttir messósópran syngur nokkur lög við undirleik Gróu Hreinsdóttur píanóleikara. 7. Þorvarður Örnólfsson framkvæmdastjóri flytur erindi um reykingavarnir í grunnskólum. 8. Umræður og önnur mál. Samkomunni stjórnar Jóhann Líndal. Allir velkomnir. Stjórnin. Eyþór Ragnheiður Gróa Þorvarður Jóhann Frumvarp um breytingar á lögum Hitaveitu Suðurnesja: Hitaveitan annist alla orkuframleiðslu og orkudreifingu á Suðurnesjum Á Alþingi hefur verið lagt fram frumvarp um breyting- árá lögum frá 1974 um Hita- veitu Suðurnesja. I frum- varpinu segir um tilgang fyrirtækisins, a) aö virkja jarðhita í Svartsengi og annars staðar á Reykjanesi, ef hagkvæmt þykir, b) að reisa og reka orkuver, aðveitur og orkudreifikerfi á starfssvæði hennar og ann- ast sölu orku til notenda, c) hvers konar önnur nýting jarðgufu og jarðvatns. Ennfremur veitir iðnaðar- ráðherra H.S. einkaleyfi til starfrækslu rafveitu á starfs- svæði hennar eftir því sem um semst við einstök sveitarfélög og ríkissjóð um yfirtöku á veitukerfum þeirra. ( frumvarpinu er bráða- birgðaákvæði um heimild ríkissjóðs um sölu raforku- kerfa sinns og rikisstofn- ana, aðveitur og dreifikerfi, innan þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að fyrirtæk- inu. Á sama hátt er sveitar- félögum þeim sem aðild eiga að fyrirtækinu, heimilt að selja því raforkukerfi sín eða leggja þau fram sem stofnframlög og breytist þá eignarhlutdeild eigenda i samræmi við það. Náist ekki samkomulag um mat á verðmætum þess- um, skal skipaður gerðar- dómur þriggja manna, í síðustu viku var fluttur til Trésmiðju Þorvaldar Ólafs- sonar þurrkklefi sem vó 12 tonn, og þurfti til flutnings- ins stærstu tegund af flutn- ingagám, sem er 40 fet á lengd. Var sending þessi á vegum nýstofnaðsfyrirtæk- is, Hafskip-Suðurnes, en Þorvaldur er framkvæmda- stjóri þess. einum frá hvorum aðila, og oddamaður sem Hæstirétt- ur skipar. í greinarerð segir að meginbreytingin frá gild- andi lögum sé, að Hitaveit- an geti tekið að sér alla orkuframleiðslu og orku- dreifingu á starfssvæði hennar. Þá segir að breytt viðhorf hafi komið upp þar sem hagkvæmara teldist að fela Hitaveitunni hlutverk orkubús, en að stofna fyrir- tæki með nýju nafni, ertæki við rekstri og eignum H.S. jafnframt því að yfirtaka raforkuvirki og veituráSuð- urnesjum. Þá er bent á að H.S. hefur framleitt raforku til eigin nota og fyrir al- mennan markað. Þá segir að á undanförn- um árum hafi miklar umræður farið fram um sameiningu rafveitna á svæðinu, og samrekstur þeirra og H.S. Orðréttsegir í greinargerðinni: ,,Allirsem um hafa fjallað, eru sam- mála um hagkvæmni sam- einingar rafveitnanna á svæðinu. Samrekstur raf- veitnanna og hitaveitunnar er jafnframt til þess fallinn að auka hagkvæmni orku- framleiðslu og orkudreif- ingar á Suðurnesjum". Heimilt er H.S. verði frum- varpið að lögum, að kaupa raforkukerfi af rlkissjóði og Þurrkklefi er engin smá- smíði, en hann mun verða notaður til að þurrka hurðir er þær koma úr lökkun. Meðfylgjandi mynd var tekin er kranabifreið var að afferma gáminn fyrir utan trésmiðjuna. - pket. einstökum sveitarfélögum á starfssvæðinu. Getur það gerst í áföngum, og kann að leiða til breyttra eignarhlut- falla, verði sá kostur valinn að sveitarfélögin leggi raf- veitur sinar í fyrirtækið sem aukin stofnframlög. Fyrirkomulag raforku- dreifingar á Suðurnesjum er nú i aðalatriðum þannig: 1. Heildsalan er í höndum Landsvirkjunar, sem selur Rafmagnsveitum ríkisins orkuna, en þærseljarafveit- um s v e i t a r f é I a g a n n a orkuna til dreifingar í smá- sölu til neytenda. 2. Rafmagnsveitur ríkis- ins annast þó smásölu í Hafnahreppi og sölu til Keflavíkurflugvallar frá rið- breytistöð. 3. Starfandi eru á svæð- inu sex sveitarfélaga-raf- veitur, í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Miðneshreppi, Gerðahreppi og Vatnsleysu- strandarhreppi. - emg. Smáuglýsingar Vinnuskúr óskast Óskum eftir vinnuskúr til kaups. Kóaxkerfi hf„ sími 1592 Ibúð til leigu 2ja herb. íbúð í Njarðvik til leigu gegn fyrirfram- greiðslu. Laus 15. maí. Uppl. í síma 2250 Til leigu Herbergi til leigu. Uppl. í síma 3731. Mótatimbur til sölu einnotað, um 1000 metrar. Uppl. í síma 2097 eftir kl. 20. Ungt barnlaust par óskar eftir 2-3ja herb. íbúð til leigu í Keflavík eða Njarðvík. Hringið í síma 1998. Herbergi óskast til Ieigu. Uppl. í síma 2867. íbúð óskast 3ja herb. íbúð óskast til leigu, helst í Njarðvík. Uppl. í síma 3387. Konan sem lét mig vita þegar keyrt var á grænan Volvo fyrir utan Samkaup í hádeginu sl. mánudag, vin- samlegast hafi samband í síma 3670. Til sölu blómafræflar Honey Bee Pollens, megrunarfræflar Bee-Thin, orkutannburst- inn Sunny Power, Mix-igo bensínhvati. Sölustaður: Hólabraut 12, sími 1893. Eins og sjá má er gámurinn engin smásmiöi, sé tekiö mið af manninum fyrir framan hann. 12 tonna þurrkklefi til Trésmiðju Þorvaldar Fluttur í 40 feta gám til Keflavíkur Ný bílaleiga í Keflavík Nú um helgina mun ný bilaleiga opna hér á Suöur- nesjum og verður af- greiðsla hennar á Bílasölu Brynleifs, Vatnsnesvegi 29a Keflavík, sími 1081. verða eingöngu til leigu nýirbílar, en nánar verður sagt frá málinu í næsta blaði. - epj. Jarðvinna - Vélaleiga Grafa, loftpressa og vöru- bíll. - Tek að mér spreng- ingar. Útvega sand og fyll- ingarefni. Slgurjón Matthiasson, Brekkustíg 31c, sími 3987

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.