Víkurfréttir - 26.04.1985, Side 19
VÍKUR-fréttir
Föstudagur 26. apríl 1985 19
Málverkasýning í Galleri Grágás
Á lau rdaginn kemur,
27. apríl, ^pn. r ValgeirVé-
steinn Jósaí, tsson mál-
verkasýningu á efri hæð
prentsmiðjunnar Grágás í
Keflavík. Sýninguna nefnir
hann „Áferð og áhrifa-
valdar II“, en samnefnd
sýning no. 1 var haldin á
Akureyri fyrir nokkru.
Sýningin verður opin frá kl.
15—20 alla sýningardaga, en
henni lýkur 5. maí.
I viðtali við blaðið sagði
Valgeir að hann reyndi að
mála myndir sem lýstu til-
finningum, s.s. angist, ótta,
örvæntingu o.s.frv. Mynd-
efni finnur hann allt í kring
um sig og tekur eitthvað
upp úr blöðum og tímarit-
um. „Eg reyni að tjá hvað
fólk hugsar og það byggist
á því að finna réttu litina.
Stundum finnst mér að það
sé bara einn litur sem geti
framkallað það líf í mynd-
irnar sem ég er að leita
eftir“:
Hvenær byrjaðir þú að
mála?
„Ég man bara að ég var
flengdur fyrir að tússa á
veggina heima. Ég hef
málað og teiknað síðan ég
var smá polli. Ég kann
KK-húsið
- stærsta dans-
hús í Keflavík
Sú missögnvarðínæst
síðasta tbl. að sagt var
að hið nýja veitingahús,
Grófin, væri stærsta
danshúsið í Keflavík.
Grófin tekur 270-300
manns, en KK tekur
380-400 manns, þannig
að hið síðar nefnda er
óumdeilanlega stærsta
danshúsið í Keflavík.
Þó Grófin verði stækk-
uð fyrir 600 manns, þá er
einnig gert ráð fyrir slíkri
stækkun í haust hjá KK
sem nemur 600-800
manna sal.
Leiðréttist þetta hér
með. - epj.
að tjá mig í litum, en mig
vantar að læra að teikna.
Þess vegna hef ég tvisvar
sott um í Myndlistarskól-
anum, en í bæði skiptin
fallið á inntökuprófi í und-
irbúningsdeild“, segir hann
og hlær.
Hvað málar þú mikið t.d.
á ári?
„Ég mála svona ca. 50
fermetra af lérefti á ári.
Aldrei minna en það. Ég set
stafina mína þó ekki á allar
þær myndir sem ég mála,
Breski skyggnilýsinga-
miðillinn A1 Cattanach,
sem dvaldi hjá Sálarrann-
sóknarfélagi Suðurnesja
fyrr í vetur við góðan orð-
stír, er væntanlegur aftur 8.
maí n.k. og mun dvelja hjá
félaginu fram til 29. maí.
Þar sem margir urðu frá að
hverfa án þess að fá hjá
henni einkatíma í vetur,
hefur félagið nú ákveðið að
miðapantanir verði fyrst til
þeirra félagsmanna sem
ekki komust að þá. verða
þeir seldir í húsi félagsins
frá kl. 15-18 fimmtudaginn
2. maí og föstudaginn 3.
maí n.k. Þessa daga verður
því ef ég er ekki ánægður
með myndina þegar henni
er lokið, þá vil ég ekki
kannast við hana. Ef
myndin er ekki lifandi, tjáir
ekki tilfinningu, þá er það
ekki list“.
Hvað er þá list?
„List er að tjá lifandi til-
finningu sem styrkist með
skilningi.
Og með þessum orðum
Valgeirs sláum við botn-inn
í þetta spjall. - kmár.
ekki tekið á móti pöntun-
um símleiðis.
Eftir þessa tvo daga gefst
öðrum félagsmönnum kost
á að kaupa þá miða í einka-
tíma sem þá verða eftir.
Um þennan miðil þarf
vart að fjölyrða, því flestir
þeir sem fengu tíma hjá
henni í vetur voru yfir sig
hrifnir af árangrinum. Má
því búast við mikilli að-
sókn og ættu því þeir fé-
lagsmenn sem áhuga hafa
fyrir einkafundum að
tryggja sér tíma sem fyrst.
epj.
Breski miðilinn kemur aftur
Verslunarmannafélag
Suðumesja
Breyttur
opnunartími
Frá og meö 2. maí 1985 verður skrifstofa
V.S., Hafnargötu 28, Keflavík, opin
kl. 12:00-17:00 mánudaga-föstudaga.
Verslunarmannafélag Suöurnesja
Gjaldkerastarf
Rammi hf., Njarðvík, óskar eftir gjaldkera
sem fyrst.
Starfið felst aðallega í að sjá um fjármál,
innheimtur og umsjón með tölvu, auk al-
mennra skrifstofustarfa.
Krefjandi starf. - Góð laun.
Skriflegar umsóknir sendist til Ramma hf.,
pósthólf 14, 230 Keflavík, fyrir 1. maí n.k.
Enskur
miðill
Á vegum Sálarrannsóknarfélags Suður-
nesja er væntanlegur aftur 8. maí n.k.,
breski skyggnilýsingamiðillinn Al Cattan-
ach.
Þeir félagsmenn sem ekki komust að í
einkatíma hjá honum í vetur, hafa forgang
fyrir miðapöntunum fimmtudaginn 2. maí
og föstudaginn 3. maí frá kl. 15-18 báða
dagana.
ATH: ekki tekið á móti pöntunum símleiðis
þessa daga. Sjá nánar í frétt annars staðar á
síðunni.
Sálarrannsóknarfélag Suöurnesja
LÉFjörheimalistinn
1. WE ARE THE WORLD - USA for America
2. SOME LiKE IT HOT - Powerstation
3. THINGS CAN ONLY GET BETTER -
Howard Jones
4. YOU SPIN ME ROUND - Dead or Alive
5. HEYA HEYA - Blaze
6. IN MY HOUSE - Mary Jane Girls
7. WE CLOSE YOUR EYES - Go West
8. LOVERBOY - Billy Ocean
9. DON’T c.O (12” MIX) - Yazoo
10. WIDE BOY - Nik Kershaw
- Gildir vikuna 20.4. til 27.4. -
VÍKUR-fréttir - auglýsingamiðill
Suðurnesjamanna.
Það besta er aldrei of gott fyrir þig.
Til í mörgum stærðum. - Gott verð.
Aðalstöðin
/0\ Bílabúð - Sími 1517