Víkurfréttir - 26.04.1985, Blaðsíða 23
VIKUR—fréttir
Föstudagur 26. apríl 1985 23
Rauði krossinn,
tilgangur hans og störf
Rauði kiossinn er sjálf-
stæð alþjóðleg stofnun með
félög í nær öllum þjóðlönd-
um. Hann er viðurkenndur
af hálfu ríkisstjórna og
alþjóðastofnana til starfa
að líknarmálum. Auk þess
vinna landsfélög innan
sinna vébanda að margvís-
legum félags- og menning-
armálum í samræmi við hin
sjö grundvallaratriði hreyf-
ingarinnar. Þau eru þessi:
1. Mannúð: - Rauði
krossinn stefnir að því að
létta þjáningu fólks og
koma í veg fyrir hana, að
vernda líf og heilsu og
tryggja einstaklingum þá
virðingu sem honum ber.
Rauði krossinn vinnur að
gagnkvæmum skilningi,
vináttu, samstarfi og friði
milli allra þjóða.
2. Jafnrétti: - Rauði kross-
inn gerir ekki greinarmun á
mönnum eftir þjóðerni
þeirra, kynþætti, trú. stétt
eða stjórnmálaskoðunum.
3. Hlutleysi: - Rauði kross-
inn gætir hlutleysis í ófriði
og illdeilum vegna stjórn-
mála, kynþáttaaðgreining-
ar, trúarbragða og skoðana
svo að hann hafi traust
allra.
4. Sjálfstæði: - Rauði kross-
inn er sjálfstæður og
óháður. Landsfélög hans
veita stjórnvöldum landa
sinna aðstoð í mannúðar-
málum og fara í hvívetna
eftir landslögum. Þau skulu
þegar geta hafist handa
eftir grundvallarreglum
Rauða krossins er þess ger-
ist þörf.
5. Sjálfboðinn: - Rauði
krossinn er sjálfboðinn
hjálparfélagsskapur sem
Sjálfboðin þjónusta: - Rauði
krossinn er sjálfboðinn
hjálparfélagsskapur sem
lætur fjárhagsvinning í
engu ráða stefnu sinni.
6. Eining: - Aðeins eitt
landsfélag Rauða krossins
má starfa í hverju landi og
skal öllum frjálst að ganga í
það. Það skal vinna að
mannúðarmálum um land
allt.
7. Alheimsstofnun: - Rauði
krossinn er alheimsstofnun
þar sem öll landsfélögin
hafa sama rétt og sömu
ábyrgð og skyldu til þessað
hjálpa hvert öðru.
Nú fyrir skemmstu voru
deildir Rauða krossins í
Keflavík, Njarðvík og
Sandgerði formlega lagðar
niður og Rauða kross deild
á Suðurnesjum stofnuð í
þeirra stað. Yfirtók hin
nýja deild allar eignir og
skuldir hinna aflögðu
deilda. Meðal þeirra eigna
okkar sem mest ber á eru
tvær sjúkrabifreiðir, önnur
mjög stórogfullkomin, sér-
staklega ætluð til neyðar-
flutninga, hin aftur á móti
mun minni, ætluð til allra
annarra og minni verkefna.
Þessar bifreiðir eru reknar í
samvinnu við Heilsugæslu-
stöð Suðurnesja. í Njarð-
víkum er rekin snyrtiað-
staða fyrir aldraða. Hefur
deildin nú fengið hina ágæt-
ustu aðstöðu fyrirstarfsemi
sína í húsi Olíusamlagsins
við Víkurbraut í Keflavík.
Tileini þessarar greinar
er fyrst og fremst að kynna
Rauða krossinn, tilgang
hans og störf. Við sem
stöndum að Rauða kross
deildinni á Suðurnesjum
viljum að Rauði krossinn
verði sem öflugastur á
okkar starfssvæði, sem eru
Suðurnesin, að Grindavík
undanskilinni. Slíku tak-
marki er ekki náð nema að
fá góðar hugmyndir og
verkefni til að vinna að,
annað hvort einir sér eða í
samvinnu við aðra. Er það
sennilega ágætust leiða til
að ná sýnilegum árangri
þar sem svo mörg félög og
samstarfshópar vinna að
mannúðar- og líknarstörf-
um á okkar tiltölulega
stóra en fámenna starfs-
svæði.
Með tilliti til áður sagðs
býð ég fyrir hönd Rauða
kross deildar á Suðurnesj-
um öllum þeim einstakling-
um, félagasamtökum og
fyrirtækjum inngöngu og
aðild að deildinni, henni til
þroska, styrks og athafna,
eftir því sem astæður og til-
efni gefast a hverjum tíma.
Arni V. Árnason
form. R.k. deildar
á Suðurnesjum
Mikil ölvun
í góða
veðrinu um
helgina
Lögreglan í Keflavík,
Njarðvík og Gullbringu-
sýslu þurfti að hafa mikil
afskipti af ölvuðu fólki um
sL^helgi. Virtist svo sem
góða veðrið um helgina hafi
haft þessi áhrif, að sögn
lögreglunnar. Eins var
helgarfrí á bátunum og bar
því nokkuð á ölvun að-
komumanna sem eru á
bátaflotanum.
Frá föstudegi til sunnu-
dags stóð lögreglan 4 öku-
menn að því að vera grun-
aða um ölvun við akstur í
umdæmi sínu. Hefur lög-
reglan tekið alls 36 slíka
ökumenn það sem af er ár-
inu, og er það svipuð tala og
á fyrra ári. - epj.
óskum félagsmönnum okkar
lil hamingju
með dag uerkalgðsins.
Hittumst á skemmtunum dagsins.
Verkalýðs- og sjómanna-
félag Keflavíkur
og nágrennis
Óskum uerkakonum
til hamingju
með dag uerkalgðsins.
Hittumst á skemmtunum dagsins.
Verkakvennafélag Keflavíkur
og Njarðvíkur
Óskum öllum launþegum
til hamingju með
hátíðisdag uerkalgðsins, l. maí.
Lífeyrissjóður
verkalýðsfélaga
á Suðurnesjum