Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 3. október 1985 VÍKUR-fréttir BINGO ÍBK-bingóin byrja aftur næsta fimmtudag, 3. okt. kl. 20. Tökum í notkun nýja tölvu- stýrða bingóvél. Munið að bingóin verða alltaf á þriðjudögum í vetur - í Stapa. Í.B.K. Innanhússknattspyrna Firmakeppni í innanhússknattspyrnu verður haldin dagana 12. og 13. október n.k. í íþróttahúsi Keflavíkur. Keppt um eignarbikar. Þátttökugjald fyrir hvert lið er kr. 2.500. Tilkynnið þátttöku til Steina Bjarna í síma 2286 og 3333, og Gunnars í síma 3017 og 1450, fyrir miðvikudaginn 9. október. UMFK Þankar um Úr leik ÍBK og Víðis fyrr í sumar. Víðismennirnir Daníel Einars og Gísli Eyjólfs í baráttu við Sigurjón Kristjáns. Grétar Einars í bak- sýn. Árangur Suðumesjaliðanna - í 1. deild knattspyrnunnar sl. sumar Vertíð knattspyrnuáhuga- manna á Suðurnesjum var að ýmsu leyti sérstök í suntar. I fyrsta skipti voru työ lið af svæðinu í 1. deild. Árangur þeirra varð misgóður, en bæði munu þau Ieika í 1. deild að ári, stuðn- ingmönnum þeirra til ómældrar ánægju. Gefið lífínu lit SÓLHUSID Nú fer hver að verða síðastur að kaupa 12 tíma sólkort á kynningarverði. Foreldrar: A meðan þið njótið þægilegra sólbaða dunda bömin sér í leikhominu. Frábær snyrti- og baðaðstaða. Verið velkomin og lítið inn. Avallt heitt á könnunni. SÓLHÚSIÐ Hafnargötu 6 - Keflavík - Sími 4227 Opið mánudaga-föstudaga kl. 8-22 og laugardaga kl. 9-19. íþróttafélög, saumaklúbbar og annar félagsskapur, ath: Veitum góðan hópafslátt af 12 tíma sólkortum. Miklar breytingar Keflavíkurliðinu var ekki spáð miklum frama í upphafi, vegna mikilla mannabreytinga frá fyrra ári. Allt keppnistímabilið var og tönnlast á því að Keflavíkurliðið væri mjög ungt og óreynt. Staðreynd- in var hins vegar sú, að aðeins einn nýliði náði að vinna sér fast sæti í liðinu. Mikill meirhluti leikmanna hafði öðlast mikla reynslu á löngum tíma. Misjafnar væntingar Árangur Keflavíkurliðs- ins hefur ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir í rúm- an áratug, en þó virðist sem nokkuð sé úr að rætast. Lið- ið náði 5. sæti í 1. deildinni í ár, og virðast stuðnings- menn þess nokkuð ánægðir með árangurinn, því enginn þeirra hefur ennþá rekið upp harmakvein. Liðið vann níu leiki í 1. deildinni og gerði tvö jafntefli, sem er nokkuð betra en árið áður. Þá vann liðið sigur í átta leikjum og gerði jafntefli í þremur, og hreppti 3. sætið. Þrátt fyrir það var enginn ánægður það árið, að því er virtist. Kröfurnar og vænt- ingarnar voru því misjafnar milli ára, en árangurinn hinn sami. Stöðugieikann vantaði Það var helsta einkenni á leik Keflavíkurliðsins í sumar, sem og undanfarin ár, að allan stöðugleika vantaði. Annan daginn lék liðið meistaralega vel, en hinn daginn var eins og um byrjendur væri að ræða. Það hefur löngum þótt ein- kenni góðra liða, að leika alltaf á sama dampi. Lakari liðin eiga hins vegar ójafn- ari leiki. Takist Keflavíkur- liðinu að ná hinum eftir- sótta stöðugleika á næsta ári er framtíðin björt, ekki síst fyrir þá stuðningsmenn liðsins sem nú eru farnir að panta Islandsmeistaratitil- inn. Helsti galli á leikmönn- um Keflavíkurliðsins í sumar var, að þeim hætti um of til að vanmeta þá andstæðinga sína, sem þeir álitu fyrirfram að væru Íak- ari. Þetta kostaði liðið m.a. tvö töp í upphafi mótsins, og mikla erfiðleika í nokkr- um leikjum til viðbótar. Sveiflukenndur leikur Keflavíkurliðið byrjaði íslandsmótið ekki með neinum glæsibrag. Liðið átti fremur í vök að verjast, og leikur þess var mjög sveiflukenndur. Undir lok júní fóru hjólin þó að snúast. Liðið lék þá vel í flestum leikjum sínum, og á tveggja mánaða tímabili vann liðið 6 af 8 leikjum í 1. deild, auk þriggja leikja í Bikarkeppni KSI. Liðið lék þá léttan og skemmtilegan bolta og skoraði mikið af mörkum. Svo vel lék liðið á tímabili að farið var að spá því titlum. Endir þessa góða tímabils var bundinn af liði Fram, er liðin léku til úrslita í Bikarkeppni KSÍ. Keflavíkurliðið var þá ekki nema svipur hjá sjón og náði aldrei að sýna það and- lit sem sýnt hafði verið svo skömmu áður. Eftir tapið í úrslitaleiknum náði liðið sér aldrei almennilega á strik og átti fremur slæma daga til loka keppnistíma- bilsins.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.