Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 3. október 1985 VÍKUR-fréttir Niðjatal Ögmundar Andréssonar og Sólveigar Guðmundsdóttur komið út Út er komið niðjatal hjónanna Ögmundar Andréssonar (1855-1923) bónda að Hellu í Beruvík á Snæfellsnesi, og konu hans Sólveigar Guðmundsdótt- ur (1873-1942). Er það Ingimundur Jóhannsson ættfræðingur sem hefur tekið ættfræðirit þetta sam- an og gefur það út. Þau hjón eignuðust 12 börn og frá þeim er kominn stór hópur fólks. Meðal þeirra eru Karvel Ög- mundsson, f. 1903, skip- stjóri og útgerðarmaður, og Þórarinn, f. 1910, d. 1983, vélstjóri og útgerðarmaður. Þeir bræður gerðu út og höfðu lengi nokkur umsvif í Ytri-Njarðvík. Önnur börn þeirra eru: Guðlaug Svanfríður f. 1896, d. 1922, saumakona í Stavanger, Sigríðurf. 1897, húsfrú í Ytri-Njarðvík, Einar f. 1899, d. 1974, vél- stjóri í Ytri-Njarðvík, Krist- björg f. 1900, húsfrú í Bergen, Karvel Línberg f. 1902, dó sama ár, Líneik f. 1905, d.1090, Ögmunda f. 1907, húsfrú í Reykjavík, Karl f. 1912, trésmíðameist- ari í Ytri-Njarðvík, Daníel f. 1915, d. 1960, skipstjóri í Ytri-Njarðvík, Jóhannes f. 1917, vélstjóri í Ytri-Njarð- vík. Niðjatalið er í brotinu A- 4, fjölritað, í kjalbandi, alls 63 bls. Rúmlega 50 ljós- myndír eru í ritinu og kostar það 600 krónur. Þeir sem áhuga hafa á að eignast niðjatal þetta er bent á að hafa samband við Ester Karvels, Þórustíg 10, Njarðvík, sími 1786, eða höfundinn, Ingimar F. Jó- hannsson, pósthólf 8684, 128 Reykjavík. - epj. Víkingaferðir og Flugleiðir stíga sameiginlega nýtt skref í ferðamannaþjónustu: „Hugmyndin að kynna Suðumes og Island sem sjóstangaveiðiland“ - segir Pétur Jóhannsson hjá Víkingaferðum Ögmundur Andrésson Sólveig Guðmundsdóttir Vilt þú verða „free-lance“ Morgunmatur framreiddur frá kl. 7-10. Tökum að okkur að smyrja brauð og snittur. Tökum að okkur smærri veislur. blaðamaður? Þessi fyrirsögn er á aug- lýsingu, sem birtist annars staðar í þessu blaði og er frá ritstjórn Víkur-frétta. Með birtingu hennar vill blaðið reyna að auka enn frekar samskipti þess við les- endur. Er ætlunin að gera blaðið enn fjölbreyttara og fá fleiri til að taka þátt í gerð þess hverju sinni. Með því að fá til liðs við okkur fólk til að skrifa greinar og fréttir, gegn greiðslu, erum við að virkja samstarfíð við íbúa svæðis- ins og lesendur. Gera þannig blaðið enn gagnlegra og jafnframt ómissandi vett- vang fyrir frásagnir af at- burðum líðandi stundar. Hjá Víkur-fréttum starfa blaðamenn í fullu starfi auk „free-lance“ fólks, sem sinnir skrifum frá svæðinu eftir bestu getu. En lengi má gott bæta og mannlíf VETRARSKOÐUN • Stilltir ventlar • Stilltur blöndungur • Skipt um kerti • Skipt um platínur • Still kveikja • Athuguð viftureim og stillt • Athugað frostþol á kælikerfi. • Athugaöar þurrkur og settur ísvari í rúðusprautu • Athugaður stýrisbúnaður • Athugaöar og stilltar hjólalegur • Mælt millibil á framhjólum • Athugaöir bremsuborðar • Skoðaður undirvagn • Boriö silicon á þéttikanta • Athuguð öll Ijós og stillt ef þarf • Mæld hleðsla Bíla- og vélaverkstæði KRISTÓFERS ÞORGRÍMSSONAR Iðavöllum 4B - Keflavík - Siml 1266 Verð með kertum, platínum, ísvara og sölu- skatti kr. 2.516 fyrir 4 cyl. bíl. Erum einnig með viðgerðarþjónustu fyrir Mazda, Nissan/Datsun Subaru, Daihatsu og Mitsubishi-bifreiðar. hér á Suðurnesjum er marg- brotið og fjölskrúðugt og því af miklu að taka. Frá því að Víkur-fréttir hófu göngu sína fyrir rúm- um 6 árum, hefur það stað- ið Suðurnesjabúum opið hvað varðar greinaskrif, lesendabréf og öðru er frétt- næmt þykir. Við hvetjum því fólk áfram til að láta í sér heyra, hvort sem er með því að skrifa okkur eða hringja. Víkur-fréttir er frjálst og óháð fréttablað, gefið út einu sinni í viku. Það segir frá því sem miður fer, hvort sem það er spilling, vald- Framlenging holræsis í Stokkavör: Öll tilboðin 5 fyrir ofan kostnaðaráætlun Eftirfarandi tilboð bárust í framlengingu hol- ræsisframrásar í Stokkavör í Keflavík: Friðbjörn Björnsson kr. 839.500, Hjalti Guðmunds- son kr.845.000, Húsanes sf. kr. 1.225.000, Óskar Guð- mundsson kr. 1.448.600, Vilhjálmur Kr. Eyjólfsson kr. 1.554.000. Kostnaðaráætlun var upp á kr. 781.000. Tekið var lægsta tilboði. epj- VÍKUR-fréttir Lesið af fjöldanum níðsla, misrétti eða eitt- hvað annað, - og einnig því sem vel er gert, afrek á ein- hverju sviði, umbætur eða umsvif. Hér er aðeins stikl- að á stóru, því endalaust mætti telja upp þá mála- flokka sem til frásagnar eru í blaðinu. Því skorum við nú á Suð- urnesjamenn að taka virk- ari þátt í skrifum blaðsins, - annað hvort sem „free- lance“ blaðamenn eða með því að senda inn greinar og frásagnir, - eða láta vita um atburði. Vilji viðkomandi ekki láta birta nafn sitt fyrir ákveðinni grein eða frétt, getur hann treyst því að fyllsta trúnaðar verði gætt. Tilgangurinn er fyrst og fremst að koma frásögn- inni til skila. Þeir sem áhuga hafa á að gerast ,,free-lance“ blaða- menn, er bent á að hafa samband við ritstjórn blaðsins í síma 4717 eða koma á skrifstofuna að Hafnargötu 32 í Keflavík. Keflavíkurkirkja Barna- og fjölskylduguös- þjónusta kl. 11. Barnastarf- iö hefst. Munið skólabílinn. Kórsöngur og kaffisala kl. 15. Fermingarbörn 1948 af- henda lágmynd af séra Valdimar J. Eylands. Kaffi- sala I Kirkjulundi að lokinni athöfn í kirkjunni. Allur ágóði rennur í ísraelsför kirkjukórsins. Sóknarprestur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.