Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 13
VÍKUR—fréttir Fimmtudagur 3. október 1985 13 BRAUÐHÚS NONNA OG BUBBA „Þessu hefur verið mjög vel tekið og viðskiptavinir ánægðir með þessa nýj- ung“, sagði Jónas Ragnars son, kaupmaður í Nonna og Bubba, en í síðustu viku færði hann út kvíarnar með opnun Brauðhúss Nonna og Bubba. Þar er á boðstólum mikið úrval af brauði og kökum frá mörgum bakaríum. A morgnana er opnað kl. 8.30 með glóðvolgum brauðvör- um og á daginn eru bakað- ar kleinur á staðnum. Ekki má gleyma Svala, hann er hægt að fá og hugmyndin er að bæta við drykkjarvörum í framtíðinni. Jónas sagði að með opn- un Brauðhússins hefði hann að mestu leyti fært brauðvörurnar úr matvöru- versluninni og hefði fengið þar dýrmætt pláss undir aðra vöruflokka. Brauðhús Nonna og Bubba er opið virka daga frá kl. 8.30-18 en laugar- daga og sunnudaga frá kl. 10-18. „Hér getur fólk því fengið nýbökuð brauð og kökur alla daga vikunnar. Góð þjónusta er númer eitt“, sagði Jónas. - pket. r, Dale . Uarnegie námskeiðið Kynningarfundur verður sunnudaginn 6. október kl. 14.00 í Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík. Námskeiðið getur hjálpað þér: Afgreiðslustúlkurnar í Brauðhúsi Nonna og Bubba, Erna Pálmey Einarsdóttir og Guðrún Ragnars- dóttir, á bak við glæsilegt kökuborðið. , lVlolar Eitt mál á dag í Reykholti Eftir að bannað var að reykja þar sem almenn- ingur kemur saman, fékk starfsfólkið á Sjúkrahúsinu smá her- bergi, þar sem leyfðar eru reykingar, og að sjálfsögðu var viðkom- andi herbergi nefnt Reykholt. Nú hefur verið hengd upp spaugi- leg auglýsing í sparnað- arskyni í þessu virðu- lega herbergi. Þar er farið fram á að framveg- is noti hver starfsmaður sama drykkjarmálið all- an daginn og merki sér það. Það spaugilega er það, að auðvitað er þetta ekki aðalliðurinn í dýr- um rekstri Sjúkrahúss- ins og eins er það spurn- ing hvort slík tilskipun fullnægi þeim hreinlæt- isreglum, sem annars eiga að gilda á slíkum stöðum. Óumdeilanlegt málgagn hvers? Það er óhætt að full- yrða að ekki eru allir for- ystumenn Sjálfstæðis- Auglýsing í Víkur-fréttum er engin smáauglýsing Síminn er 4717 flokksins hér á Suður- nesjum ánægðir með það skítkast sem mál- gagn þeirra, Reykjanes, er með á síðum sínum, enda eiga slík skrif lítið að gera í pólitísku mál- gagni og aðeins til þess fallið að ríra önnur skrif sem þeir þurfa á að halda í komandi kosn- ingabaráttu. Sama er með þá veiku tilraun rit- stjórans, að verja af sér hið pólitíska samband. En einu gleymir sá ágæti maður, að meðan aðset- ur ritstjórnar er þar sem það er nú, er betra fyrir hann að hætta þeim til- raunum. Fyrir þá sem ekki vita er rétt að upp- lýsa, að ritstjórnarskrif- stofan er á efri hæð Sjálf- stæðishússins í Njarð- vík, og meira að segja í sjálfu flokksherberginu. Dettur einhverjum í hug að aðrir en flokksmenn og starfsmenn flokksins hafi aðgang að því her- bergi? Hvaða nefnd? Akvörðun „nefndar- innar“ svokölluðu í Grindavík, að stela Víkur-fréttum af dreif- ingarstöðum í Grinda- vík, hefur valdið mikl- úlfaþyt á staðnum. Margir hörðustu með- sveinar nefndarmanna hafa haft samband við ritstjórn Víkur-frétta með spurningar eins og þessar: „Hver gaf þessu fólki heimild til að rit- skoða hvað við lesum?“ „Er nefndin ekki komin langt út fyrir sitt vald- svið?“ „Vita þau ekkiað við viljum vita hvað stendur í blaðinu, þó við séum ekki sammála öllu því sem þar stendur?“. Til að tryggja það að blaðið komist til lesenda í Grindavík hafa margir bæjarbúar bent ritstjórn á ýmsar leiðir til þess og sumir meira að segja boðið heimili sín sem dreifmgarstaði. Er því ljóst, að dreifing mun halda áfram í Grinda- vík, hvað sem hin svo- kallaða nefnd segir. Enda virðist svo komið, að þremenningarnir hafa splundrað samúð- inni, nema frá Reykja- nesinu, sem nú nærist á skítkasti um Víkur- fréttir. Hafa Víkur-frétt- ir bjargað hugmynda- snauðum ritstjóra a.m.k. þrisvar frá því Reykjanesið var endur- lífgað. Að öðlast meiri trú á sjálfan þig og hœfiieika þfna. Að byggja upp jákvæöara viöhorf gagnvart Iffinu. Að ná betri samvlnnu við starfsfélaga, fjölskyidu og vinl. Aö þjálfa minniö á nöfn, andlit og staðreyndlr. Að læra að skipuleggja og nota tfmann betur. Að byggja upp meira öryggi viö ákvarðanatöku og lausn vandamála. Aö skilja betur sjálfan þlg og aðra. Að auka hæfileika þfna, aö tjá þlg betur og meö meiri árangrl. Að ná betra valdi á sjálfum þér í ræöumennsku. Að öðlast meiri viöurkenningu og vlrðingu sem einstaklingur. Að byggja upp melra öryggi og hæfni til leiötoga- starfa. Að eiga auðveldara meö að hitta nýtt fólk og mæta nýjum verkefnum. Að verða hæfari í því aö fá örvandi samvinnu frá öðrum. Að ná meira valdi yfir áhyggjum og kviða i dag- legu lifi. Að meta eigin hæfileika og setja þér ný persónu- leg markmið. 82411 Einkaleyfi á islandi STJÖRNUNARSKÓLINN Konráð Adolphsson \ I I I I I I W M ^ TJARNARGÖTU 41 - KE SÓLBAÐSSTOFA - KEFLAVÍK - SÍMI 3327 HAUSTTILBOÐ! Veitum 20% afslátt af 10 tíma kortum í október. ★★★★★★★★★★ Reynið viðskiptin og njótið sólar og hvíldar. ★★★★★★★★★★ Notum einungis löglegar perur. ★★★★★★★★★★ Ánægðir viðskiptavinir okkar eru besta auglýsingin. - Sjáumst! I i i i I i I i I

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.