Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.1985, Side 11

Víkurfréttir - 03.10.1985, Side 11
10 Fimmtudagur 3. október 1985 VÍKUR-fréttir VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 3. október 1985 11 Bíllinn og vinnan áhugamálin“ - segir Hermann Ragnarsson, íslandsmeistari í torfæruakstri, í Frístundarviðtali Hermann Ragnarsson getur kannski ekki státað af því hversu mörg áhugamál hann hefur, en það má segja að hann sinni þeim fáu vel. „Taka mig í Frí- stundarviðtal? Ertu frá þér, maður. Eg á mér aðeins tvö áhugarnál, bílinn og vinnunna“. Já, og ertu ekki nýbak- aður Islandsmeistari í tor- færuakstri? „Jú, reyndar, en það er sama, ég hef ekkert gert sem er þess verðugt að tala um það í Frístundar- viðtali". Menn hafa komist í blöðin af minna tilefni, Hemmi minn. „Já, er það. Jæja, allt í lagi, við látum reyna á það“. Af hverju ertu með þessa jeppadellu? „Æ, það byrjaði allt þegar við vorum að fara með Ragga bróður og í'é- lögum hans fyrir svona 12-13 árum. Þá var maður bara ,,spottagæi“, en það var ofsa gaman. Síðan þegarökuskírteinið var komið í rassvasann byrjaði maður að keyra sjálfur. Fyrsta jeppann eignaðist ég svo um tví- tugsaldurinn. Það var ofsalegur kaggi“, segir Hermann og hlær rosa- lega (ég vildi að það væri hægt að koma hlátrinum á prent). „Þetta var Land- Rover árg. ’42 með tré- húsi. Við Dóri bróðir not- uðum hann svo í vinnuna. Eg keypti þennan bíl af Gumma í Bárunni. Hann var búinn að gera bílinn allan upp, vefja fjöðrun- um í striga og baða allt í feiti. Bíllinn var góður og í honum var miðstöð á gólfinu sem var svo kröft- ug að þegar hún blés upp á mann stóð hárið allt upp í loftið", segir Hemmi og hlær aftur (það hefur auð- vitað ekkert þýtt að vera með húfu í bílnum, innsk. blm.). „Tréhúsið var ágætt, en ef það rigndi mikið var ekki hægt að opna hurðarnar, þær tútnuðu svo út af rakan- um. Svo fór maður að fara í vetrarferðir á eigin bíl og fjörið var hafið. Við ferðumst mest á veturna því þá er minni hætta á að við skemmum landið. Þá getum við ekið á snjónum bara beint af augum. Við förum þó líka yfir sumar- tímann en það er þá gjarnan með vinnufélög- unum í Þórsmörk og Hermann Ragnarsson fyrir framan Hi-Luxinn. Landmannalaugar. Svo fórstu að keppa í torfæruakstri? „Já, en það var nú ekki fyrr en í fyrra. Það má segja að ferðalögin hafi verið eins og torfæru- keppnir, því að menn voru og eru alltaf að met- með í einni keppni sem gefur stig til Islands- meistaratitils. Þar varð ég í 3. sæti“. Hvað voru margir keppendur? Fjórir? „Nei, þeir voru nokk- uð fleiri. Eg keppti í götu- bílaflokki, þ.e. á óbreytt- rétt hafði það af að kom- ast norður í tæka tíð. Þeir auglýstu keppnina dag- inn áður en hún fór fram. Það munaði minnstu að hún yrði ekkert auglýst, svo mikið var fumið á þessum körlum þarna“. Voru þeir ekki bara hræddir við þig og reyndu með þessu að koma í veg fyrir að þú yrðir með? „Nei, andsk . . . held- urður það?“ segir Hemmi og hlær enn einu sinni svo hátt að undir tekur í hús- inu, „ég trúi því nú ekki“. Hvernig bíl áttu svo? „Ég á Toyota Hilux diesel árg. ’84. Hann er á breiðum dekkjum og með vökvastýri”. Hvernig á draumabíll- inn þinn að vera? „Alveg eins, bara með plasthúsi og miðstöð aft- an á. Þá getur maður sof- ið aftur í á veturna þegar við náum ekki skálum vegna veðurs. Það kemur stundum fyrir að veður verður það vont að við verðum hreinlega að Hér er Hemmi í einni ánni á gamla Hi-Luxinum í einni fjallaferðinni. Víkur-fréttir - Sterkasti auglýsingamiðillinn „Bræðurnir eru helstu ferðafélagar mínir11 fónninn er forláta vasaljós. ast um hver komst lengst í hinni og þessari brekk- unni. Ef ég kemst upp þessa brekku en ekki Sævar Reynis, er ég búinn að sanna það að bíllinn minn er þetri en hans, skilurðu? Nú, svo í fyrra datt mér í hug að vera , segir Hermann. Hér taka þeir „bræðra-lag“ í einni ferðinni. Míkró- um bíl. Nú svo í ár keppti ég aðeins í tveimur keppn- um af þremur, í Grinda- vík og á Akureyri. Ég komst ekki í Hellukeppn- ina en stóð mig svo vel á Akureyri að það nægði til sigurs. Ég tók það bapa með stæl fyrir norðan. Ég stoppa þar sem við erum og bíða eftir því að veður batni. Þá getur verið gott að halla sér“. Þú hefur lent í einhverj- um slíkum hrakningum, er það ekki? „Jú, en þá vorum við á snjósleðum. Með mér í þeirri ferð voru Gummi bróðir, Jón Sig. og Kristj- án nokkur úr Reykjavík. Við fórum frá Þingvöll- um og upp að Hlöðufelli og dvöldum þar í svoköll- uðum línuskúr. A heim- leiðinni gerði svo vont veður að við urðum að setjast að í snjóskafli og þar vorum við í 3 sólar- hringa. Maður var orðinn heldur kaldur eftir dvöl- ina þar og kuldinn var svo mikill að brauðið og nest- ið okkar var alveg gadd- freðið. Okkur tókst þó að hita okkur súpu með vasaprímus, og mikið var það nú góð súpa. Við vorum aldrei í neinni hættu. Við vorum vel útbúnir og því var þetta bara bið eftir nægi- lega góðu veðri til að geta haldið ferðinni áfram. Síðan eftir 3 sólarhringa sáum við ljós í hríðinni og Gummi fór á sleða niður- eftir að ljósunum og þar fann hann leitarmenn. Hann spurði þá hvort allt væri ekki í lagi hjá þeim, og þeir urðu hálf undar- legir á svipinn þegar hann birtist þarna á sleðanum út úr veðrinu og bar upp spurninguna. Gummi segir að hann hafi fundið leitarmennina, en ekki þeir hann“. Hlátur . . . Þú varst með snjósleða- dellu um tíma, var það ekki? „Jú, og meira að segja keppti í snjósleðakeppni fyrir norðan, nánar til- tekið við Mývatn. Ég segi nú ekki frá árangrinum þar, enda var þetta bara gert til gamans. Þá ókum við upp að Sigöldu og fór- um síðan á sleðunum yfir Sprengisand og þaðan norður að Mývatni. Með mér í þeirri ferð voru Dóri bróðir, Kobbi í Húsa- gerðinni og tveir bændur. Þú hefðir átt að sjá gæj- ana þarna fyrir norðan í þröngum keppnisbuxum og leðurstígvélum upp á hné. Þarna voru margir af alfærustu vélsleðamönn- um landsins. Heyrðu, þú hefðir átt að sjá framan í þá þegar ég birtist þarna, þybbinn og mikill, í þykk- um galla frá Belgjagerð- inni. Það hlýtur að hafa verið stórkostleg sjón, eða hitt þó heldur! Nú, ég tók þátt í keppninni og það er nú efni í heilt viðtal”, segir Hermann og hlær aftur svo hátt, að ég ákvað að halda heim áður en það yrði um seinan. kmár. PARKET PRÝÐIR JÁRN & SKIP Víkurbraut - Keflavík Sími 1505 * ★ •ír ú * * ☆ fCS Barna vendiúlpur loksins komnar - sex flíkur í einni úlpu. DÚNÚLPUR á fullorðna með renndum ermum. Hringbraut 96 - Sími 4206 Víkurbæjar- húsinu, II. hæð Sími 3311 cjf-nnctta - <^Só[íja^±±toj-a <cSnijxtí- ocj cjja.ja.uö zuozxítun Margareth Astor: Edition - Estrebelle Varalitir, naglalökk, varagloss, augn- skuggar og kinnalitir. Alltaf nýjustu tískulitirnir. LOKKAR - FESTAR - TREFLAR - BELTI - SOKKAR lyXtL- Oj j,C NÝTT! - NÝTT! Kremlínan frá JIL SANDER fyrir konur á öllum aldri. Víkurbæjar húsinu, II. hæð Sími 3311 JIL SANDER: Oscar de la Renta Leonard - Kritza llm- og baðvörur í sérflokki fyrir dömur og herra.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.