Fréttabréf - 01.12.1983, Síða 8
STEFNUYFIRLÍSING LANDSFUNDAR KVENNALISTANS HALDINN 29.-30.10.83.
Landsfundur Kvennalistans mótmælir harölega ráöstöfunum ríkis-
stjórnarinnar, sem m.a. fela í ser afnám samningsrettar og
dýrtíöarbóta án þess aö tryggja stöövun veröhækkana.
Kvennalistinn krefst þess aé ríkisstjórnin skili aÖilum
vinnumarkaöarins aftur samningsrétti sínum.
HarÖast bitnar þetta á þeim sem hafa meöallaun og þaðan af
lægri, en í þeim hópi eru konur í yfirgnæfandi meirihluta.
I efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar felst mikil hætta á
samdrætti í atvinnulífi þjóöarinnar. Reynslan sýnir aö
atvinnuleysi bitnar fyrst á konum sem eru notaðar sem vara-
vinnuafl. Dæmi um þetta eru fyrirhugaðar sparnaöaraögeröir
í heilbrigöisþjónustunni, sem einkum beinast gegn láglauna-
konum. Þetta dæmi undirstrikar einnig veika stööu kvenna í
.íslensku þjóðfélagi þar sem þetta skerðir ekki aöeins atvinnu-
öryggi okkar heldur leiöir skert heilbrigðisþjónusta til þess
. aö auknar býröar eru lagðar á konur heima fyrir viö umönnun
sjúkra og aldraöra. Skert þjónusta viö aldraöa og sjúka lýsir
einnig því grundvallarverömætamati sem núverandi ríkisstjórn
byggir aögeröir sínar á.
Kvennalistinn berst fyrir bættum kjörum kvenna, þess vegna
fagnar kvennalistinn að konur hafa í auknum Tnæli rætt stöðu
sína og kjör og hvetur allar konur til aö sameinast um þessi
lífshagsmunamál okkar allra.
Stjórnvöld skera nú niöur framlög til félagslegrar þjónustu
eins og byggingu dagvistarheimila, heilbrigöisþjónustu og
uppbyggingar fræöslukei'fisins. Á sama tíma er unnið aö
framkvæmdum eins og byggingu nýrrar flugstöövar á Keflavíkur-
flugvelli, 'byggingu Seölabankahúss , bankaútibúa, verslunarhalla
og stórhýsa yfir hvers konar milliliðastarfsemi. Kvennalistinn
mótmælir þeirri fjárfestingastefnu, sem hér er rekin og varar
eindregiö viö afleiðingum hennar á lífsskilyröi fólks í
landinu.