Fréttabréf - 01.06.1992, Side 9
er sjúkradeild og íbúðir aldraðra. Skortur á hjúkrunarfræðing-
um veldur vandræöum þar á bæ. Þama hittum við elstu konu
bæjarins 101 árs sem sat teinrétt í stól og horföi út á spegil-
sléttan fjörðinn. Uppi á vegg hékk stór mynd af fjölskyldu
hennar sem tekin var upp úr aldamótum.
Á leiöinni til Egilsstaöa komum viö aftur viö á fræöslu-
skrifstofunni á Reyöarfiröi. Fræðslustjórinn bar sig vei og sagði
aö mun auöveldara væri aö manna kennarastööur en áöur.
Austfirska efnahagssvæöið
Þaö var afar fróölegt aö kynnast því hvemig Austfiröing-
ar dreifa ýmsum opinberum stööum milli fjarða og héraös og
viröist það ekki standa starfseminni fyrir þrifum. Sem dæmi má
nefna aö heilbrigöisfulltrúinn sem viö hittum á Reyðarfiröi sér
um allt Austurland, sérkennslufulltrúi býr á Hallormsstaö,
fræösluskrifstofan er á Reyöarfiröi svo sem áöur segir, Byggöa-
stofnun er á Egilsstööum og fleira mætti nefna. Albert Einars-
son skólameistari nefndi þá hugmynd aö mynda þyrfti aust-
firskt efnahagssvæöi AES, þannig aö íbúar Austurlands horföu
á sitt svæöi og möguleika þess í heild og svömöu þannig
þrengingum og breyttum aöstæöum í landinu, ef ekkl í Evrópu.
Eins og sjá má af þessari frásögn voru þaö mikið til
karlmenn sem kynntu okkur staöina og veröur ekki annaö sagt
en aö þeir hafi tekiö okkur meö kostum og kynjum. Þeir kvört-
uöu yfir því hve konur væru tregar til aö taka þátt í sveitar-
syómarmálum, þær vildu ekki bjóöa sig fram en væru fúsari til
aö sinna nefndarstörfum. Þetta er mjög svo umhugsunarvert
fyrir okkur Kvennalistakonur sem aðrar konur, því þegar allt
kemur til alls standa sveitarstjómarmálin nær daglegu lífl okkar
en landsmálin og þar er auöveldara aö hafa áhrifl
Öll var ferðin hin fróðlegasta og því veröur vart meö
oröum lýst hve nauösyniegt þaö er fyrir þingmenn aö fara um
landið, sjá ástandið og heyra hljóöiö í fólki. Viö Anna þökkum
fyrir og emm þegar famar aö hugleiöa næstu ferö.
Kristín Ástgeirsdóttir
Leiðrétting:
ÍNafn Ásgeröar Pálsdóttur. Geitaskarði. féll nlöur af
lista yflr fulltrúa Kvennalistans. sem birtist f síöasta tölu-
blaöi. Asgeröur er f nefnd uni ný umdæmi sveitarféláö||ijj