Fréttabréf - 01.06.1992, Qupperneq 14
Hagsýni húsmæðranna
hefur skilað árangri
Þaö er ekKi ofsögum sagt af húsmæörahagsýninni í
Kvennalistanum. Fyrir einu ári stóöum viö uppi meö rýra sjóöi,
einkum vegna kosninganna, sem sífellt útheimta meiri fjárútlát.
Þaö var því bersýnilegt, aö viö yröum aö slá lán hjá bankstjór-
anum okkar, sem er reyndar meö elskulegri mönnum og tekur
okkur alltaf meö sannri mannúö og mildi. Viö vorum hins vegar
ekkert áfjáöar í mlkla skuldasöfnun og settum okkur stíf mark-
mlö aö vinna eftir. Þeim markmiöum höfum viö náö aö mestu
leyti.
Okkur tókst aö minnka kostnaö á flestum póstum,
fengum húsaleigu lækkaöa, fækkuöum um heilt stöðugildi á
skrifstofum, minnkuöum kostnaö viö Fréttabréf, drógum úr
kostnaöl viö auglýsingar o. fl. VERU-konur létu ekki sitt eftir
liggja og lögöu hart aö sér aö bæta stööu blaösins. Par hefur
tekist aö minnka kostnaö jafnhliöa og áskrifendum hefur
fjölgaö mikiö, og nú er svo komiö, aö VERA stendur aö mestu
leyti undir sér sjálf.
Kvennalistlnn hefur þegar endurgreitt skuldir sínar í
bankanum, og ef viö höldum áfram á sömu spamaöarbraut er
engin vá fyrir dyrum. Því er hins vegar ekki aö leyna, aö viö
emm í háifgerörl hengingaról sparseminnar og þyrftum sannar-
lega lýmri fjárráö til alls, sem gera þarf í baráttunni. Hagsýnar
húsmæöur veröa ekki bara aö kunna aö spara, þær þurfa helst
líka aö afla tekna.
En hvemig eigum viö aö auka fjárráöin? Hvaö getum
viö gert annaö en selt hver annarri kaffl og nærbuxur, svuntur
og spilastokka, krúsir og náttlgóla? Hver nennir lengur aö
stússa í flóamarkaöi og kökusölu? Aö ekki sé minnst á happ-
14