Fréttablaðið - 17.09.2016, Blaðsíða 8
Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is
Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
Nýsköpun og/eða samstarfsverkefni sem byggir á hönnun
Nýsköpun sem á sér stað í klasasamstarr
Verkefni sem eru að stíga fyrstu skref á alþjóðamarkaði
Sérstök áhersla er lögð á
Umsóknafrestur til kl.12 á hádegi þann 26. september
Fram
leng
dur
ums
ókna
rfres
tur
til
26. s
epte
mbe
r !
Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum
sem hlotið gætu frekari ármögnun sjóða og árfesta
Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða
frumkvöðla og fyrirtækja
Markmið verkefnisins:
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til
atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til
nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða
starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Á markað með
snjallt nýsköpunarverkefni?
Átak til atvinnusköpunar
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
Sími 587 2123
FJÖRÐUR
Sími 555 4789
SELFOSS
Sími 482 3949
15-50%
afsláttur af
umgjörðum
ÚTSALA
Skólamál Í fjárhagsáætlun 2016
gerði meirihlutinn í Reykjavík
algjörlega óraunhæfar hagræðingar
kröfur til leikskóla, grunnskóla og
frístundaheimila. Með tillögum um
viðbótarframlög viðurkennir meiri
hlutinn loks að skólakerfið sé gróf
lega undirfjármagnað.
Þetta kemur fram í bókun full
trúa Sjálfstæðisflokksins í borginni
vegna aðgerðaáætlunar sem meiri
hlutinn boðaði í fyrradag.
Kjartan Magnússon, borgarfull
trúi Sjálfstæðisflokksins, bendir á að
tvískinnungur sé að halda því fram
að um ný framlög til skólamála sé
að ræða.
„Að langstærstum hluta er verið
að viðurkenna þann hallarekstur
sem er orðinn að veruleika vegna
óraunhæfrar fjárhagsáætlunar og
borgin hefur engin tök á að víkja
sér undan,“ segir hann og ber þetta
saman við rekstur ríkis á hjúkrunar
heimili.
„Ef hjúkrunarheimili færi hund
rað milljónir fram úr fjárhagsáætlun
og fjármálaráðherra þyrfti að mæta
hallanum með aukafjárlögum þá
væri stórundarlegt að blásið yrði til
fundar og tilkynnt að það væri verið
að hefja stórsókn í öldrunarmálum.“
Tilkynnt var af meirihlutanum að
919 milljóna króna framlag rynni til
skólamála strax í haust. „Mér telst
til að 835 milljónir af því fari í að
bregðast við þessum hallarekstri
og 25 milljónir fari í að fullnægja
kjarasamningsbundnum skyldum
borgarinnar um undirbúningstíma
í leikskólum. Aðeins 67 milljónir af
heildarsummunni eru raunveruleg
viðbót,“ segir hann en þar er um að
ræða 60 milljónir sem veittar eru til
faglegrar stjórnunar í grunnskólum
og 6,9 milljónir sem fara í náms
gagnakaup.
Kjartan segir að stjórnendur
skóla og borgarfulltrúar Sjálfstæðis
flokksins hafi bent á óraunhæfa
fjárhagsáætlun margsinnis síðustu
mánuði en viðbrögðin hafi látið á
sér standa. erlabjorg@frettabladid.is
Kolrangstæðir
í stórsókninni
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir framsetn-
ingu meirihlutans á aðgerðaáætlun vegna skólamála
vera villandi. Eingöngu sé verið að bregðast við halla.
Búið að fara fyrstu tröppuna
Leikskólastjórar sendu frá sér
ályktun eftir kynningu á nýju að
gerðaáætluninni. Þar er lýst yfir
ánægju en einnig bent á að þetta
séu fyrstu skrefin og margt þurfi
enn að skoða og bæta í starfs
umhverfi leikskóla.
„Það þarf til dæmis viðhald á
búnaði, húsnæði og lóðum,“ segir
Anna Margrét Ólafsdóttir, leik
skólastjóri á Nóaborg. „Fjársvelti
síðustu ára er farið að taka sinn
toll þar.“
Anna Margrét bendir einnig á að
ekki sé gert ráð fyrir að starfsfólk
borði með börnunum í framlagi til
fæðis, ekki sé hægt að borga yfir
vinnu og huga þurfi að námsleyfum
starfsfólks.
„En það er stór blýklumpur farinn
af öxlinni, ég fór í morgun og keypti
köku til að fagna þessari áætlun.
Það er búið að spyrna frá botninum
og ég ætla að trúa því að þetta sé
eingöngu fyrsta skrefið.“
Ólafur Brynjar Bjarkason, leik
skólastjóri í Hagaborg og Mýri, segir
bjartsýni í hópi leikskólastjóra. „En
það þarf að skoða endurnýjun í
stéttinni alvarlega og gera leikskóla
starfið samkeppnishæft á vinnu
markaði. Það kostar peninga.“
919 milljónir verða settar í skólamál. Fjármagnið fer í sérkennslu, skólaakstur,
afleysingar, námsgögn og faglegt starf svo dæmi séu tekin. Fréttablaðið/anton brink
Aðeins 67 milljónir
af heildarsumm-
unni eru raunveruleg viðbót.
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
1 7 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r8
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
D
-9
C
3
4
1
A
9
D
-9
A
F
8
1
A
9
D
-9
9
B
C
1
A
9
D
-9
8
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K