Fréttablaðið - 17.09.2016, Blaðsíða 18
Meirihluti borgarstjórnar hefur blásið til sóknar í skólamálum með aðgerð-
um í leikskólum og grunnskólum.
Aðgerðirnar eru í tíu liðum og fela
í sér að 919 milljónum króna er
bætt við fjárveitingar til skólamála
á þessu hausti.
Hærri framlög til sérkennslu
Framlög til sérkennslu í leik-
skólum og grunnskólum hækka
um nærri 250 milljónir sem er
afar mikilvægt því fagleg kennsla
og stuðningur við börn með sér-
þarfir er eitt þýðingarmesta verk-
efni skólasamfélagsins og mikilvæg
forsenda raunverulegs jafnréttis til
náms. Samhliða auknum fjárveit-
ingum munum við rýna vandlega
hvernig sérkennsla og stuðningur
nýtist viðkomandi börnum því
eftirtektarvert er að hér á landi
minnkar þörf fyrir sérkennslu
ekki með hækkandi aldri ólíkt því
sem tíðkast t.d. í Finnlandi þar sem
mikil áhersla á snemmtæka íhlutun
skilar sér í mun færri nemendum
sem þurfa sérkennslu á mið- og
unglingastigi grunnskólans.
Efling faglegs starfs
Fjármagn eykst til faglegs starfs í
leikskólum og grunnskólum. Það er
sérstakt ánægjuefni að geta tryggt
starfsfólki leikskóla undirbúnings-
tíma en tæpum 25 milljónum króna
verður varið til þessa í haust með von
um hækkun á næsta ári. Framlög til
kaupa á námsgögnum til skapandi
starfs í leikskólum hækka úr 1.800
kr. á barn í 3.000 kr. strax í haust. Þá
verður aukið fjármagn, 60 m. kr., veitt
til faglegrar stjórnunar í grunnskólum
á þessu hausti.
Fleiri ung börn á leikskóla
Vilji okkar stendur til þess að bjóða
yngri börnum á leikskóla og nú
mun u.þ.b. 200 börnum sem fædd
eru í mars og apríl 2015 bjóðast leik-
skólapláss frá og með áramótum.
Leikskólarnir fá 425 milljónir til
að fjármagna þessa þjónustu en
nákvæm dagsetning á inntöku ein-
stakra barna verður háð rými og
stöðu starfsmannamála á einstökum
leikskólum.
Við munum ráðast í sameiginlegt
átak með Félagi leikskólakennara,
Félagi foreldra leikskólabarna og
háskólasamfélaginu um leiðir til
að laða fleira fagfólk til starfa. Við
höfum lagt mikla áherslu á að bæta
kjör skólafólks undanfarin tvö ár og
varið til þess á fjórða milljarð króna.
Þessar aðgerðir eru annar liður í því
að gera starf á leikskólum og grunn-
skólum eftirsóknarverðara.
Betri skólamatur
Fjárveitingar til leikskóla og grunn-
skóla vegna skólamáltíða hækka
verulega, eða um 156 m. kr. strax í
haust og nærri 360 m. kr. á næsta ári.
Fæðisgjald verður hækkað í leik- og
grunnskólum um 100 kr á dag fyrir
hvert barn frá 1. október. Þeir fjár-
munir munu fara óskiptir í hráefnis-
innkaup til að bæta gæði máltíða.
Að auki mun hluta af hagræðingu
vegna hráefnisinnkaupa verða
skilað til baka, alls 45. m. kr. Skólar
í Reykjavík munu eftir breytinguna
búa við sambærileg framlög til hrá-
efniskaupa og þau sveitarfélög sem
leggja mest í matarinnkaup fyrir
skólana.
Aukinn stuðningur við stjórnendur
Borgin leggur mikla áherslu á ábyrga
fjármálastjórn og mun auka ráðgjöf
og stuðning við stjórnendur varðandi
fjármál og rekstur, meðferð halla og
afgangs auk þess sem gerð verða ný
líkön um deilingu fjármagns.
Þessar fyrstu aðgerðir voru unnar
í samráði við stjórnendur leikskóla
og grunnskóla og verður áfram byggt
á þeim uppbyggilega anda sem ein-
kenndi það samstarf. Sameigin-
legt markmið okkar allra verður að
tryggja skóla- og frístundastarf í
fremstu röð í höfuðborginni.
Skólamál sett í forgang
Skúli Helgason
formaður skóla-
og frístundaráðs
Reykjavíkur
Markmið okkar allra
verður að tryggja skóla- og
frístunda starf í fremstu röð.
Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
16
-2
68
8
–
HV
ÍT
A
HÚ
SI
Ð/
SÍ
A
1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
D
-6
A
D
4
1
A
9
D
-6
9
9
8
1
A
9
D
-6
8
5
C
1
A
9
D
-6
7
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K