Fréttablaðið - 17.09.2016, Blaðsíða 19
Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA
16
-2
68
8
–
HV
ÍT
A
HÚ
SI
Ð/
SÍ
A
J
Jafnréttismál
á kross götum –
Jafnrétti án
mis mununar?
Alda Hrönn Jóhannsdóttir
formaður Stéttarfélags lögfræðinga
Bragi Skúlason
formaður Fræðagarðs
Hugrún R. Hjaltadóttir
formaður Félags íslenskra félags
vísindamanna
Ragnheiður Bóasdóttir
formaður Félags háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins
Sigrún Guðnadóttir
formaður Stéttarfélags bókasafns
og upplýsingafræðinga
Jafnrétti almennt séð næst
ekki á meðan við höldum
áfram að tigna hinn testo
steronfyllta karl sem
rakið getur ættir sínar
til Noregskonunga og er
reiðubúinn til þess að láta
næsta endalausa viðveru á
vinnustað ganga fyrir öllu
öðru í tilverunni.
afnrétti er hugtak sem okkur
hefur gengið misvel að átta
okkur á hvað þýðir í raun.
Þetta er hugtak sem allir
eiga að þekkja og helst að vera
hjartanlega sammála um merkingu
þess. Raunin er þó líklega sú að
fæst okkar hafa krufið hugtakið til
mergjar og jafnframt er sjónarhorn
okkar á því misvítt og oft litað bæði
hagsmunum og öðrum viðhorfum.
En hvað þýðir þetta hugtak þá?
Hver er skilningur okkar á því og
hver er merking þess í raun?
Í sinni ákveðnustu mynd þýðir
jafnrétti að engum skuli mismunað á
nokkurn máta. Allir skuli vera jafnir.
Þessi mynd birtist í barnalögum nr.
76/2003 þar sem segir: „Barn á rétt
á að lifa, þroskast og njóta verndar,
umönnunar og annarra réttinda í
samræmi við aldur sinn og þroska
og án mismununar af nokkru tagi.“
Yfirlýst markmið laganna um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla nr. 10/2008 er líka að „Allir
einstaklingar skulu eiga jafna
möguleika á að njóta eigin atorku
og þroska hæfileika sína óháð kyni.“
Við þurfum hins vegar ekki
viðamikla skoðun á umhverfi okkar
til að sjá að börnum er mismunað
á marga vegu og að konur eiga
ekki sömu möguleika til að „njóta
eigin atorku og þroska hæfileika
sína“ og karlar. Hið sama á við
þegar við horfum með gleraugum
þjóðernis, litarháttar, trúarbragða,
kynhneigðar, heilsufars, aldurs og
yfirleitt öllu því sem á einhvern hátt
skiptir okkur í hópa.
Lagasetning er í sjálfu sér góð
byrjun. Ein og sér er hún þó
aðeins merki í reit á pólitískum
rétttrúnaðarlista. Henni þarf að
fylgja eftir með aðgerðum og
róttækum hugarfarsbreytingum
sem við sjáum of lítil merki um
enn sem komið er. Þær tilraunir
sem gerðar hafa verið til breytinga
hafa í besta falli mætt sinnuleysi
eða góðlátlegu brosi. Viðbrögðin
við afdráttarlítilli lagasetningu
hafa verið þau að koma okkur upp
fjölbreyttu safni skilyrðinga og
afslátta af hugtakinu sem yfirleitt
er orðið algerlega merkingarlaust
þegar kemur að því að mæla
árangur okkar í málaflokknum.
Byggir á karllægum gildum
Launajafnrétti er þarna lýsandi
dæmi. Við höfnum launamun
n e m a h a n n s é byg g ð u r á
málefnalegum rökum. Svo tökum
við þennan „ómálefnalega“ mun
og „leiðréttum“ hann. Munurinn á
kjörum kynjanna á vinnumarkaði
er afsprengi mismunar á félags-
og hagfræðilegri stöðu þeirra.
Vinnumarkaðurinn byggir enn að
mestu á hefðbundnum karllægum
gildum og hugmyndum karla
um æskilega hegðun á vinnustað
og vinnumarkaði. Leiðréttur
launamunur er því ekki mælikvarði
á neitt annað en það hvernig konum
gengur að hegða sér eins og karlar.
Kjarajafnrétti kynjanna næst
ekki með lagasetningu eða
reglugerðum einum saman, fremur
en annað jafnrétti, þótt hvort
tveggja sé góðra gjalda vert. Til að
ná kjarajafnrétti verðum við að
breyta verðmætamati okkar á þann
veg að við viðurkennum kvenlæg
gildi til jafns við hin karllægu. Það
þýðir ekki gjaldfellingu á karllægum
gildum þótt þau missi algildingu
sína. Það felur því ekki í sér neina
niðurlægingu fyrir karla, en það
þýðir að við hverfum frá núverandi
niðurlægingu fyrir konur. Þar til við
höfum nálgast það markmið verður
jafnrétti kynjanna aldrei annað en
réttur kvenna til að hegða sér eins
og karlar.
Jafnrétti almennt séð næst ekki
á meðan við höldum áfram að
tigna hinn testosteronfyllta karl
sem rakið getur ættir sínar til
Noregskonunga og er reiðubúinn
til þess að láta næsta endalausa
viðveru á vinnustað ganga fyrir öllu
öðru í tilverunni. Við verðum að
byrja á því að viðurkenna kynjaða
kynþátta rembu okkar og glíma við
hana af festu.
Greinin er önnur grein af þremur
um jafnréttismál.
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19L A u G A R D A G u R 1 7 . s e p T e m B e R 2 0 1 6
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
9
D
-7
9
A
4
1
A
9
D
-7
8
6
8
1
A
9
D
-7
7
2
C
1
A
9
D
-7
5
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K