Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 19

Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 19
Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA 16 -2 68 8 – HV ÍT A HÚ SI Ð/ SÍ A J Jafnréttismál á kross götum – Jafnrétti án mis mununar? Alda Hrönn Jóhannsdóttir formaður Stéttarfélags lögfræðinga Bragi Skúlason formaður Fræðagarðs Hugrún R. Hjaltadóttir formaður Félags íslenskra félags­ vísindamanna Ragnheiður Bóasdóttir formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins Sigrún Guðnadóttir formaður Stéttarfélags bókasafns­ og upplýsingafræðinga Jafnrétti almennt séð næst ekki á meðan við höldum áfram að tigna hinn testo­ steronfyllta karl sem rakið getur ættir sínar til Noregskonunga og er reiðubúinn til þess að láta næsta endalausa viðveru á vinnustað ganga fyrir öllu öðru í tilverunni. afnrétti er hugtak sem okkur hefur gengið misvel að átta okkur á hvað þýðir í raun. Þetta er hugtak sem allir eiga að þekkja og helst að vera hjartanlega sammála um merkingu þess. Raunin er þó líklega sú að fæst okkar hafa krufið hugtakið til mergjar og jafnframt er sjónarhorn okkar á því misvítt og oft litað bæði hagsmunum og öðrum viðhorfum. En hvað þýðir þetta hugtak þá? Hver er skilningur okkar á því og hver er merking þess í raun? Í sinni ákveðnustu mynd þýðir jafnrétti að engum skuli mismunað á nokkurn máta. Allir skuli vera jafnir. Þessi mynd birtist í barnalögum nr. 76/2003 þar sem segir: „Barn á rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi.“ Yfirlýst markmið laganna um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er líka að „Allir einstaklingar skulu eiga jafna möguleika á að njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína óháð kyni.“ Við þurfum hins vegar ekki viðamikla skoðun á umhverfi okkar til að sjá að börnum er mismunað á marga vegu og að konur eiga ekki sömu möguleika til að „njóta eigin atorku og þroska hæfileika sína“ og karlar. Hið sama á við þegar við horfum með gleraugum þjóðernis, litarháttar, trúarbragða, kynhneigðar, heilsufars, aldurs og yfirleitt öllu því sem á einhvern hátt skiptir okkur í hópa. Lagasetning er í sjálfu sér góð byrjun. Ein og sér er hún þó aðeins merki í reit á pólitískum rétttrúnaðarlista. Henni þarf að fylgja eftir með aðgerðum og róttækum hugarfarsbreytingum sem við sjáum of lítil merki um enn sem komið er. Þær tilraunir sem gerðar hafa verið til breytinga hafa í besta falli mætt sinnuleysi eða góðlátlegu brosi. Viðbrögðin við afdráttarlítilli lagasetningu hafa verið þau að koma okkur upp fjölbreyttu safni skilyrðinga og afslátta af hugtakinu sem yfirleitt er orðið algerlega merkingarlaust þegar kemur að því að mæla árangur okkar í málaflokknum. Byggir á karllægum gildum Launajafnrétti er þarna lýsandi dæmi. Við höfnum launamun n e m a h a n n s é byg g ð u r á málefnalegum rökum. Svo tökum við þennan „ómálefnalega“ mun og „leiðréttum“ hann. Munurinn á kjörum kynjanna á vinnumarkaði er afsprengi mismunar á félags- og hagfræðilegri stöðu þeirra. Vinnumarkaðurinn byggir enn að mestu á hefðbundnum karllægum gildum og hugmyndum karla um æskilega hegðun á vinnustað og vinnumarkaði. Leiðréttur launamunur er því ekki mælikvarði á neitt annað en það hvernig konum gengur að hegða sér eins og karlar. Kjarajafnrétti kynjanna næst ekki með lagasetningu eða reglugerðum einum saman, fremur en annað jafnrétti, þótt hvort tveggja sé góðra gjalda vert. Til að ná kjarajafnrétti verðum við að breyta verðmætamati okkar á þann veg að við viðurkennum kvenlæg gildi til jafns við hin karllægu. Það þýðir ekki gjaldfellingu á karllægum gildum þótt þau missi algildingu sína. Það felur því ekki í sér neina niðurlægingu fyrir karla, en það þýðir að við hverfum frá núverandi niðurlægingu fyrir konur. Þar til við höfum nálgast það markmið verður jafnrétti kynjanna aldrei annað en réttur kvenna til að hegða sér eins og karlar. Jafnrétti almennt séð næst ekki á meðan við höldum áfram að tigna hinn testosteronfyllta karl sem rakið getur ættir sínar til Noregskonunga og er reiðubúinn til þess að láta næsta endalausa viðveru á vinnustað ganga fyrir öllu öðru í tilverunni. Við verðum að byrja á því að viðurkenna kynjaða kynþátta rembu okkar og glíma við hana af festu. Greinin er önnur grein af þremur um jafnréttismál. s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 19L A u G A R D A G u R 1 7 . s e p T e m B e R 2 0 1 6 1 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 D -7 9 A 4 1 A 9 D -7 8 6 8 1 A 9 D -7 7 2 C 1 A 9 D -7 5 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.