Fréttablaðið - 17.09.2016, Síða 18

Fréttablaðið - 17.09.2016, Síða 18
Meirihluti borgarstjórnar hefur blásið til sóknar í skólamálum með aðgerð- um í leikskólum og grunnskólum. Aðgerðirnar eru í tíu liðum og fela í sér að 919 milljónum króna er bætt við fjárveitingar til skólamála á þessu hausti. Hærri framlög til sérkennslu Framlög til sérkennslu í leik- skólum og grunnskólum hækka um nærri 250 milljónir sem er afar mikilvægt því fagleg kennsla og stuðningur við börn með sér- þarfir er eitt þýðingarmesta verk- efni skólasamfélagsins og mikilvæg forsenda raunverulegs jafnréttis til náms. Samhliða auknum fjárveit- ingum munum við rýna vandlega hvernig sérkennsla og stuðningur nýtist viðkomandi börnum því eftirtektarvert er að hér á landi minnkar þörf fyrir sérkennslu ekki með hækkandi aldri ólíkt því sem tíðkast t.d. í Finnlandi þar sem mikil áhersla á snemmtæka íhlutun skilar sér í mun færri nemendum sem þurfa sérkennslu á mið- og unglingastigi grunnskólans. Efling faglegs starfs Fjármagn eykst til faglegs starfs í leikskólum og grunnskólum. Það er sérstakt ánægjuefni að geta tryggt starfsfólki leikskóla undirbúnings- tíma en tæpum 25 milljónum króna verður varið til þessa í haust með von um hækkun á næsta ári. Framlög til kaupa á námsgögnum til skapandi starfs í leikskólum hækka úr 1.800 kr. á barn í 3.000 kr. strax í haust. Þá verður aukið fjármagn, 60 m. kr., veitt til faglegrar stjórnunar í grunnskólum á þessu hausti. Fleiri ung börn á leikskóla Vilji okkar stendur til þess að bjóða yngri börnum á leikskóla og nú mun u.þ.b. 200 börnum sem fædd eru í mars og apríl 2015 bjóðast leik- skólapláss frá og með áramótum. Leikskólarnir fá 425 milljónir til að fjármagna þessa þjónustu en nákvæm dagsetning á inntöku ein- stakra barna verður háð rými og stöðu starfsmannamála á einstökum leikskólum. Við munum ráðast í sameiginlegt átak með Félagi leikskólakennara, Félagi foreldra leikskólabarna og háskólasamfélaginu um leiðir til að laða fleira fagfólk til starfa. Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta kjör skólafólks undanfarin tvö ár og varið til þess á fjórða milljarð króna. Þessar aðgerðir eru annar liður í því að gera starf á leikskólum og grunn- skólum eftirsóknarverðara. Betri skólamatur Fjárveitingar til leikskóla og grunn- skóla vegna skólamáltíða hækka verulega, eða um 156 m. kr. strax í haust og nærri 360 m. kr. á næsta ári. Fæðisgjald verður hækkað í leik- og grunnskólum um 100 kr á dag fyrir hvert barn frá 1. október. Þeir fjár- munir munu fara óskiptir í hráefnis- innkaup til að bæta gæði máltíða. Að auki mun hluta af hagræðingu vegna hráefnisinnkaupa verða skilað til baka, alls 45. m. kr. Skólar í Reykjavík munu eftir breytinguna búa við sambærileg framlög til hrá- efniskaupa og þau sveitarfélög sem leggja mest í matarinnkaup fyrir skólana. Aukinn stuðningur við stjórnendur Borgin leggur mikla áherslu á ábyrga fjármálastjórn og mun auka ráðgjöf og stuðning við stjórnendur varðandi fjármál og rekstur, meðferð halla og afgangs auk þess sem gerð verða ný líkön um deilingu fjármagns. Þessar fyrstu aðgerðir voru unnar í samráði við stjórnendur leikskóla og grunnskóla og verður áfram byggt á þeim uppbyggilega anda sem ein- kenndi það samstarf. Sameigin- legt markmið okkar allra verður að tryggja skóla- og frístundastarf í fremstu röð í höfuðborginni. Skólamál sett í forgang Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur Markmið okkar allra verður að tryggja skóla- og frístunda starf í fremstu röð. Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA 16 -2 68 8 – HV ÍT A HÚ SI Ð/ SÍ A 1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r18 s k o ð U n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 1 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 9 D -6 A D 4 1 A 9 D -6 9 9 8 1 A 9 D -6 8 5 C 1 A 9 D -6 7 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.