Fréttablaðið - 17.09.2016, Side 74

Fréttablaðið - 17.09.2016, Side 74
Eitt vinsælasta myndefni ferðalanga í Ástralíu eru skilti. Nánar tiltekið skilti sem ætlað er að vara veg-farendur við úlföldum. Skemmtilegast þykir þegar skiltið er innan um önnur slík sem vekja athygli á dýrum sem þykja einkennandi fyrir ástralska náttúru, svo sem kengúrum eða vömbum. Dálæti ferðafólks á skiltum þessum er slíkt að yfirvöld kveinka sér yfir að þeim sé stolið í stórum stíl á ári hverju með tilheyrandi kostnaði við endur- nýjun. Ástæða þessa er sú staðreynd að í hugum flestra eru úlfaldar bundnir við sandeyðimerkur Norður-Afríku eða Arabíuskagann. Í raun eru skepn- ur þessar þó útbreiddar. Úlfalda má finna víða á meginlandi Asíu, þar á meðal í Síberíu. Afrísku úlfaldarnir teygja sig vel suður fyrir Sahara og ekki má gleyma lamadýrinu í Suður- Ameríku, sem er náskyldur ættingi kamelsins og drómedarans. Fyrsti úlfaldinn var fluttur til Ástr- alíu árið 1840. Ætlunin var að kanna hvort dýrið hentaði til flutninga og langra ferðalaga um áströlsku eyði- mörkina, en úlfaldar eru kunnir fyrir úthald sitt og að geta þraukað lengi vatnslausir á göngu. Tilraunin gaf góða raun og á næstu áratugum komu Ástralar sér upp dágóðum úlf- aldahjörðum. Lagning þjóðvega og tilkoma vél- knúinna ökutækja gerðu úlfaldana óþarfa sem burðardýr á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Úlfalda- eigendur losuðu sig þá við dýr sín. Sumir slátruðu þeim, en aðrir slepptu dýrunum einfaldlega lausum. Þau dýr mynduðu grunninn að ástralska villi- úlfaldastofninum. Stofninn óx óhindrað og um síð- ustu aldamót lýstu vísindamenn því yfir að tala mætti um úlfaldaplágu og ef ekki yrði gripið í taumana myndi fjöldi dýranna tvöfaldast á hverjum áratug. Í kjölfarið var ráðist í stór- fellda grisjun og stofnstærðinni komið niður í 300 þúsund dýr. Fjöldi úlfalda er veiddur í Ástralíu á hverju ári og er kjötið selt til Miðausturlanda, einkum Sádi-Arabíu, sem vekur einatt kátínu gárunga. En ekki mátti miklu muna að úlfaldar næðu einnig að nema land í Norður-Ameríku með aðstoð manns- ins. Óheppni, tilviljanir og pólitík réðu líklega einna mestu um að slíkar tilraunir fóru út um þúfur. Sú saga er öll hin fróðlegasta. Skip eyðimerkurinnarSaga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um dýr á óvæntum slóðum. Skraufþurrar eyðimerkur Þeirri hugmynd að úlfaldar gætu reynst nytsamlegar skepnur í Banda- ríkjunum var fyrst hreyft um svipað leyti og dýrin voru fyrst flutt til Ástral- íu. Styrjöld Bandaríkjanna og Mexíkó 1846-8 lauk með algjörum sigri þeirra fyrrnefndu og miklum landvinn- ingum. Hið nýja landsvæði þurfti að verja og tryggja samgöngur við erfiðar aðstæður sem kallaði á nýjar lausnir. Gullæði sem braust út í Kaliforníu um svipað leyti snarjók líka þörfina fyrir reglubundnar ferðir milli austur- og vesturstrandarinnar. Kúrekamyndir Hollywood hafa dregið upp þá mynd að helsta ógnin við vagnalestaferðir nítjándu aldar hafi verið árásir óvinveittra indíána eða mexíkóskra stigamanna. Stærstu vandamálin voru þó tæknilegs eðlis og snerust meðal annars um að tryggja dráttardýrum – hestum og múlösnum – vatn og fæðu á löngum ferðum, þar á meðal um eyðimerkur. Reisa þurfti net herstöðva til að halda niðri frumbyggjum og nágrönnunum sunnan landamæranna og þær köll- uðu á afskaplega kostnaðarsama og mannaflsfreka flutninga, en vegna fámennisins og skorts á vinnuafli voru laun miklu hærri í landnemabyggðum og á vesturströnd Bandaríkjanna en á austurströndinni. Erfiðleikar og kostnaður við sam- göngur og vöruflutninga voru að sliga bandaríska herinn og því ekki að undra þótt yfirmenn þar á bæ væru opnir fyrir óvenjulegum lausnum. Áhugamenn um úlfaldahugmyndina bentu á að þeir væru öflug burðardýr og gætu gagnast á leiðum þar sem erfitt væri að finna vatn. Uppástung- an var kynnt fyrir fjölda yfirmanna í hernum og ýmsum stjórnmála- mönnum. Ýmsir létu sannfærast, þar á meðal ungur þingmaður frá Mississ- ippi, Jefferson Davis. Árið 1853 var Davis skipaður hermálaráðherra og tryggði hann fjármagn í tilraunaverk- efni. Sagan af úlfaldaævintýri Banda- ríkjahers hefur margoft verið rifjuð upp í bókum og á hvíta tjaldinu og hefur með endursögnum tekið á sig æsilegan og ýktan blæ. Þannig er því oft haldið fram að innan hersins hafi verið starfrækt sérstök úlfaldaherdeild sem sinnt hafi fjölda verkefna um ára- bil. Veruleikinn er nokkuð hófstilltari. Úlfaldar í Texas Fulltrúar hersins héldu til Miðjarðar- hafsins og viðuðu að sér úlföldum frá ýmsum stöðum í Norður-Afríku, Möltu, Grikklandi og Tyrklandi. Dýrin voru 33 talsins og af báðum kynjum. Í leiðinni voru nokkrir úlfaldahirðar ráðnir til starfa, flestir voru þeir úr gríska þjóðarbrotinu í Tyrklandi. Þegar á hólminn var komið reynd- ust fæstir þessara manna hafa neina reynslu af úlföldum, heldur sigldu þeir undir fölsku flaggi til að fá tæki- færi til að komast til fyrirheitna landsins, Bandaríkjanna. Flestir hurfu sporlaust fljótlega eftir að komið var til Ameríku, en fáeinir lærðu með tím- anum að meðhöndla dýrin og urðu jafnvel bærilegir úlfaldahirðar. Þessi handvömm við val á starfsmönnum hafði þó vafalítið áhrif á útkomu til- raunarinnar. Vorið 1856 kom úlfaldasendingin að landi í Texas og árið eftir kom álíka stór dýrahópur til viðbótar. Settur var upp búgarður til að rækta upp stofn- inn og gera tilraunir með nýtingu dýr- anna. Þær lofuðu góðu. Úlfaldarnir reyndust miklu þolbetri til burðar en múldýr. Þeir voru líka þægilegri í meðförum, reyndu síður að strjúka en önnur burðardýr og sjaldgæft var að styggð kæmi að hópnum. Að kröfu hersins voru úlfaldarnir notaðir við framkvæmdir sem koma áttu Kali- forníu í vegasamband. Sú ákvörðun var tekin í óþökk verktakans sem fljótlega skipti þó um skoðun og tók ástfóstri við hin nýju burðardýr. Á öðrum sviðum reyndust úlfaldar ekki eins vel. Tilraunir til að nota þá til póstflutninga þóttu misheppn- aðar. Styrkur dýranna lá í hægfara flutningum um erfið og vatnslaus svæði, en þau hentuðu illa til hrað- ferða með póst. Á sama hátt kom í ljós að grýtt landslag fór illa með hófa úlfaldanna, sem vanari voru mjúkum sandi. Sumar heimildir herma einn- ig að sambúð úlfaldanna og annarra burðardýra hafi ekki verið góð. Úlf- öldunum hafi ekkert verið um það gefið að deila stíum og húsum með lágvaxnari skepnum og jafnvel ráðist á þær. Stríðið flækist fyrir Þrátt fyrir framansagða vankanta komust stjórnendur hersins að þeirri niðurstöðu að úlfaldar gætu komið að góðu gagni og sparað mikið fé. Þeir fóru því þess á leit við þingið að fá að flytja inn allt að þúsund dýr og byggja upp tilheyrandi aðstöðu. Hefði þeirri áætlun verið hrint í framkvæmd má telja afar líklegt að úlfaldar hefðu fest sig í sessi í Bandaríkjunum og orðið hluti af dýraríki heimsálfunnar til þessa dags. En þingmenn voru hikandi og ekki tilbúnir að stökkva strax á svo framúrstefnulega hugmynd. Málið fékkst ekki afgreitt í fyrstu atlögu og senn áttu önnur og brýnni mál eftir að fanga athygli stjórnmálanna. Árið 1861 braust bandaríska borgarastríð- ið út, þar sem her alríkisstjórnarinnar átti í hatrömmum bardögum við bandalag nokkurra suðurríkja sem lýst höfðu yfir sjálfstæði, einkum vegna deilna um þrælahald. Næstu árin beindist hugur þing- manna og herstjórnenda að stríðinu við Suðurríkin og því hvorki tími né fjármagn til að ráðast í tilraunastarf- semi í samgöngum um eyðimerkur- svæðin í suðvestrinu. Þegar stríðinu lauk hafði áhuginn dofnað. Ef til vill má skýra það að nokkru leyti með þeirri staðreynd að Jefferson Davis, hermálaráðherrann sem fyrstur tók úlfaldahugmyndina upp á sína arma, hafði lent hinum megin við víglínuna. Hann var kjörinn forseti Suðurríkja- sambandsins og gegndi því embætti meðan á borgarastríðinu stóð. Það hefur því tæplega reynst úlfaldamál- inu til framdráttar að vera sérstaklega tengt við hans nafn. Árið 1866, tveimur árum eftir lok borgarastríðsins, lauk úlfalda- tilraun hersins endanlega. Nokkrar skepnur höfðu þá ratað í dýragarða víðs vegar um Bandaríkin, en síðustu dýrin voru seld athafnamanni í Texas. Afdrif þeirra eru óljós og misvísandi frásagnir um hvenær síðast sást til úlfaldanna. Árið 1934 dó kameldýrið Topsy í dýragarði í Los Angeles. Topsy var eitt vinsælasta dýrið í garðinum og staðhæfðu stjórnendur hans að úlfaldinn væri síðasti eftirlifandi afkomandi úlfaldanna sem fluttir voru vestur um haf tæpum áttatíu árum fyrr. Þótt herinn missti áhugann á úlf- öldum, gerðu einstaklingar nokkrar en misheppnaðar tilraunir til að flytja inn þessi tignarlegu burðardýr á seinni hluta nítjándu aldar. Þær mæltust illa fyrir, þar sem hestaeig- endur óttuðust að úlfaldarnir myndu fæla hrossin. Leiddi það til þess að í nokkrum ríkjum voru settar reglur til höfuðs aðkomuferfætlingunum. Þannig munu enn í dag vera í gildi lög í Nevada þar sem viku fangelsi liggur við því að ríða á úlfalda um þjóðvegi ríkisins. Ratar sú klausa oft inn á lista háðfugla yfir skringileg lagaákvæði víðs vegar að úr heiminum. Sigldu þeir undir fölSku flaggi til að fá tækifæri til að komaSt til fyrirheitna landSinS. 1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r34 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 1 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 D -6 A D 4 1 A 9 D -6 9 9 8 1 A 9 D -6 8 5 C 1 A 9 D -6 7 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.