Fréttablaðið - 17.09.2016, Síða 79

Fréttablaðið - 17.09.2016, Síða 79
Ástkær bróðir okkar, mágur, vinur og frændi, Almar Gestsson Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum þann 12. september. Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 23. september kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurjón Hreiðar Gestsson Guðmundur Rúnar Gestsson Ásta D. Björnsdóttir Kristinn Gestsson Lotte Gestsson og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðni Karlsson fyrrverandi forstöðumaður Bifreiðaeftirlits ríkisins, síðar bóndi að Gýgjarhóli í Biskupstungum, lést 14. september á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Útför hans fer fram frá Skálholtsdómkirkju þriðjudaginn 20. september kl. 14.00. Inga Kristjánsdóttir Viktoría Guðnadóttir Annemieke Knol Kristján Guðnason Jurgita Govedaite Sigþrúður Guðnadóttir Grímur Anton og barnabörn. Ástkær bróðir minn, Jón Pálsson Kristinsson trésmiður, Langholtsvegi 147, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn 13. september. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni við Tjörnina föstudaginn 23. september kl. 13. Fjölskyldan þakkar yndislegu starfsfólki á Mörk fyrir hlýju og umönnun. Anna S. Kristinsdóttir Fredriksen og fjölskylda. K jötborg var stofnuð 1956 af afa og foreldrum okkar bræðra, í upphafi var Kjötborg einungis kjöt-búð, en það hefur breyst í tímanna rás. Í dag höld- um við upp á sextíu ára afmæli Kjöt- borgar, og sláum upp hverfishátíð, og er öllum velkomið að fagna með okkur,“ segir Gunnar Halldór Jónasson, einn eigenda Kjötborgar, og bætir við að nóg verði um að vera fyrir alla. Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarnar vikur og fjöldi tónlistar- manna mun stíga á svið ásamt því að börnin geta leikið sér í leiktækjum sem sett verða upp í götunni. „Það verður létt stemning hjá okkur, undirbúningurinn hefur gengið mjög vel. Við erum með tónlistarfólk úr hverfinu sem mætir og spilar nokkur lög, Teitur Magnússon, Unnur Sara Eldjárn og Páll Óskar eru meðal þeirra sem stíga á svið, ásamt öðrum ungum og efnilegum tón- listarmönnum,“ segir Gunnar spenntur fyrir deginum og bætir við að lokað verði fyrir umferð frá Ljósvallagötu að Blóm- vallagötu milli klukkan 11.00 til 19.00 til að gæta öryggi barna á hátíðinni. gudrunjona@frettabladid.is Verslunin Kjötborg fagnar sextíu ára afmæli í dag Við Ásvallagötu í Reykjavík stendur kjörbúðin Kjötborg. Bræðurnir Gunnar og Kristján reka verslunina og er óhætt að segja að þeir séu með síðustu móhíkönum smákaupmanna- stéttarinnar. Í dag fagna þeir afmæli Kjötborgar með hverfishátíð sem hefst klukkan 11.00. Á þessum degi árið 1957 lýsti hinn víðfrægi djass- tónlistarmaður Louis Armstrong því reiðilega yfir að hann myndi ekki taka þátt í ferð á vegum ríkisstjórnar innar til Sovétríkjanna. Armstrong var æva- reiður yfir uppákomunni í Little Rock í Arkansas stuttu áður, þar sem hópar hvítra borgara ásamt vopnuðum vörðum meinuðu níu svört- um námsmönnum leið inn í menntaskóla sem einungis var fyrir hvíta námsmenn. Stuttu áður hafði fallið alríkisdómur þar sem kveðið var á um að blökkumenn fengju inngöngu í skólann. Reiði Armstrongs beindist helst að aðgerðaleysi ríkis- stjórnarinnar sem hann taldi að hefði átt að fylgja málinu eftir. „Ástandið er orðið það slæmt að litaður maður á ekkert föðurland lengur,“ sagði hann við fjöl- miðla. Yfirlýsing Armstrongs kom sér illa fyrir bandarísk yfirvöld sem höfðu með ýmsum ráðum reynt að bæta ímynd sína í jafnréttis- málum gagnvart umheim- inum. Ríkisstyrktar ferðir frægra blökkumanna um heiminn voru liður í þeirri herferð. Louis Armstrong mótmælir Bræðurnir Gunnar og Kristján hafa staðið vaktina í Kjötborg frá því þeir voru ungir drengir, í dag fagna þeir sextíu ára afmæli verslunarinnar. FréttaBlaðið/GVa Það verður létt stemn- ing hjá okkur, undir- búningurinn hefur gengið mjög vel. Við erum með tónlistarfólk úr hverfinu sem mætir og spilar nokkur lög, Teitur Magnússon, Unnur Sara Eldjárn og Páll Óskar eru meðal þeirra sem stíga á svið. Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdasonar, tengdaföður og afa, Magnúsar Þormars Hilmarssonar frá Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar og Líknardeildar Landspítalans fyrir einstaka umönnun í veikindum hans. Hafdís Arnardóttir Hrönn Magnúsardóttir Magnea Magnúsardóttir Hörður Valgarðsson Harpa Hrund Berndsen Sesselja Magnúsdóttir Máni Snær Hafdísarson tengdaforeldrar og barnabörn. Hjartfólginn sonur minn og frændi okkar, Halldór Steinn Halldórsson starfsmaður í Ási, Blönduhlíð 6, Reykjavík, lést á deild B5, Landspítala í Fossvogi, sunnudaginn 11. september. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 19. september kl. 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð bjöllukórs Tónstofu Valgerðar, reikn. 0515-14-405790, kt. 501100-3580. Anna Björg Halldórsdóttir Halla Sólveig Halldórsdóttir Sigurjón Högnason Freyja Sigurjónsdóttir Karl Sigurjónsson Ines Willerslev Jørgensen Baldur Willerslev Karlsson Katla Willerslev Karlsdóttir Hjartans þakkir fyrir samhug og virðingu vegna andláts og útfarar okkar hjartkæru Hrefnu Finnbogadóttur Presthúsum II, Mýrdal. Kristín Einarsdóttir Sigurjón Rútsson Elísa Berglind Adolfsdóttir Klemens Árni Einarsson Heiða Dís Einarsdóttir Snorri Snorrason Signý Einarsdóttir Flosi Arnórsson Haukur Einarsson Sóley Rut Ísleifsdóttir og fjölskyldur þeirra. Þ ETTa G E r ð i ST 1 7 . S E P T E M B E r 1 9 5 7 1598 Hollenskir sjófarendur finna eyjuna Mauritius. 1844 Kosið er til Alþingis í fyrsta sinn í Reykjavík, vegna fyrsta ráð- gjafarþingsins. 1896 Íbúar í Landeyjum sjá eld í hafi að kvöldi, suðvestur af Hellis- ey, og næstu tvö kvöld á eftir. 1917 Verslunarráð Íslands er stofnað. 1966 Vegur fyrir Ólafsfjarðarmúla formlega opnaður. 1986 Sex farast í sprengjuárás í París. 1987 Fréttaþátturinn 19:19 fer í loftið á Stöð 2. 1992 Landsbanki ákveður að taka flestar eignir Sambands ís- lenskra samvinnufélaga upp í skuldir. Merkisatburðir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórunn Vilmundardóttir áður til heimilis að Réttarholtsvegi 33, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði 13. september. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 22. september klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir. Unnar Jónsson Stefán H. Jónsson Vilmundur Jónsson Jórunn Jónsdóttir Gunnar V. Jónsson Þórir Jónsson tengdabörn, ömmu- og langömmubörn. t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð 39L a U G a R D a G U R 1 7 . s e p t e m B e R 2 0 1 6 1 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 9 D -A 1 2 4 1 A 9 D -9 F E 8 1 A 9 D -9 E A C 1 A 9 D -9 D 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.