Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 104
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Í febrúarmánuði árið 1930 heim-sótti Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, Jónas Jónsson frá Hriflu,
dómsmálaráðherra, þar sem hann
lá veikur í flensu. Erindi læknisins
var að skýra sjúklingnum frá þeim
grun sínum að hann væri haldinn
alvarlegum geðsjúkdómi. Helgi taldi
að Jónas væri ekki lengur í eðlilegum
tengslum við raunveruleikann og
því bæri honum að segja af sér. Þessi
stutta sjúkraheimsókn varð tilefni
mikilla pólitískra deilna. Yfirlæknir-
inn var rekinn úr stöðu sinni og Jónas
réð nýjan. Íslenskir geðlæknar hafa æ
síðan neitað staðfastlega að tjá sig um
geðheilsu framsóknarmanna.
Íslenskir stjórnmálamenn veita
sjaldan innsýn inn í hugarfylgsni
sín, enda segja menn venjulega
ekkert nema í samráði við sérstaka
almannatengla. Nýleg ummæli fyrr-
um forsætisráðherra eru þó gleðileg
undantekning. Hann fór með himin-
skautum og opinberaði drauma
sína og þrár. Stjórnmálaátök sam-
tímans voru orðin að orrustunni við
Waterloo og hann sjálfur umbreyttist
í Wellington lávarð. Fylgismenn
hans í Framsóknarflokknum voru
fótgöngulið Englendinga sem beið
komu Napóleons með brugðna
byssustingi. Andstæðingurinn virtist
vera hið fjölþjóðlega samsæri sem
formaður flokksins hefur orðið fyrir,
þar sem beitt er hlerunum, njósnum
og alls konar bolabrögðum.
Heimskapítalisminn, Evrópu-
sambandið og svikulir blaðasnápar
reyna að hafa manninn undir en Sig-
mundur Wellington kemur ósigraður
úr hverri raun. Hann gefst aldrei
upp þótt skuggalegir skíthælar reyni
að drepa hann. Púðurreykur fyllir
loftin blá og jakkafataklæddir menn
með sólgleraugu elta formanninn á
röndum, brjótast inn í tölvuna hans
og bjóða uppá bjálkakofafundi. Von-
andi meiða óbreyttir framsóknar-
menn sig ekki á hvössum byssu-
stingjunum. Hvað ætli Helgi heitinn
Tómasson hefði sagt um raunveru-
leikaskyn þessa framsóknarmanns?
Í draumaheimi
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
©
Inter IK
EA
S
ystem
s B
.V. 2016
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
9
D
-5
C
0
4
1
A
9
D
-5
A
C
8
1
A
9
D
-5
9
8
C
1
A
9
D
-5
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K