Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 80

Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 80
Reglulega berast fregnir af olíuleit á Drekasvæðinu langt norðaustur af Íslandi og láta sumir sig dreyma um svimandi olíugróða innan fáeinna ára eða áratuga. Ekki er langt síðan hug- myndin um olíuvinnslu í miðju Norður-Íshafinu hefði þótt fráleit, ekki endilega út af umhverfis- sjónarmiðum heldur fremur vegna kostnaðar og tæknilegra örðug- leika. Olíufélög hafa varið óhemju- miklu fé í rannsóknir og tækniþró- un með það að markmiði að finna og nýta jarðolíu á sífellt afskekktari svæðum og við erfiðari aðstæður. Kveikjan að því eru spádómar um að vinnanlegar olíulindir verði senn á þrotum. Spádómar af þessu tagi eru raunar ekki nýir af nálinni. Þegar árið 1919 spáði yfirmaður bandarísku jarð- fræðistofnunarinnar að olíufram- leiðsla í landinu myndi ná hámarki innan þriggja ára, en eftir það færi að ganga hratt á forðann. Eftir 1950 fóru vísindamenn með kerfis- bundnum hætti að reyna að reikna út olíubirgðir heimsins og áætla út frá því hvenær toppnum í olíu- vinnslu yrði náð og hvenær olían yrði uppurin. Margoft hefur orðið að endur- skoða spádóma þessa þar sem þeir hafa ekki gengið eftir. Skýringin er tvíþætt. Nýjar olíu- lindir hafa fundist í sífellu og betri tækni hefur gert það að verkum að unnt er að vinna olíu víðar, bora dýpra eða nýta betur einstakar o l í u l i n d i r . Þ á verður að hafa í huga að áætlanir um olíuforðann hafa ætíð miðast við þá olíu sem hag- kvæmt sé að vinna, en skilgreiningar á því hvað teljist hag- kvæmt hljóta alltaf að fylgja verði og eftirspurn. Spádómar um olíuþurrð innan fárra áratuga voru lengi vel taldir boða ótíðindi fyrir mannkyn. Þau sjónarmið hafa þó nokkuð breyst í seinni tíð vegna hættunnar af loftslagsbreytingum vegna bruna á jarðefnaeldsneyti. Því eru ýmsir sem telja það ágætar fréttir ef olían klárast undir fótum okkar. Hvað sem þeim vangaveltum líður er ljóst að við getum ekki dælt upp olíu út í það óendanlega. Eyðist það sem af er tekið – eða hvað? Reyndar eru til kenningar sem ganga í aðra átt. Samkvæmt þeim eru olíubirgðir heimsins nánast ótæmandi og þær má finna miklu víðar en nokkurn óraði fyrir. Kenn- ingar þessar eru jaðarhugmyndir í vísindasamfélaginu og njóta varla stuðnings nokkurra viðurkenndra vísindamanna á sviði olíurann- sókna. En þrátt fyrir það – og jafn- vel einmitt þess vegna – getur verið áhugavert að skoða þær með gler- augum vísindasagnfræðinnar. Að ofan eða neðan? Allir skólakrakkar læra hina við- teknu kenningu um hvernig jarð- olía verður til. Í nokkuð einfölduðu máli gengur hún út á að rotnaðar lífveruleifar, einkum plöntur og sjávarþörungar, grafist undir jarð- lögum. Þar verða þær fyrir áhrifum hita og þrýstings í milljónir ára og breytast þannig í kröftugt eldsneyti. Þetta ferli getur ekki átt sér stað hvar sem er, heldur ein- ungis við sérstakar jarð- fræðilegar aðstæður sem gera það að verkum að hinar lífrænu leifar ná að grafast djúpt í jörðu. Jarðvísindamenn sem sérhæfa sig í olíuleit þurfa því að gera sér í hugarlund margra milljóna ára þróunarferla í nátt- úrunni til að reikna út líklegar olíu- lindir. Þeir útreikningar byggja oft á takmörkuðum vísbendingum. Á meðan við getum notað kröftuga sjónauka til að rannsaka stjörnur í órafjarlægð eigum við bágt með að kanna hvað gerist ofan í jörðinni, þar sem við rétt náum að kroppa í ysta hluta jarðskorpunnar. Þessi kenning er sannfærandi og leysti af hólmi eldri hugmyndir sem gerðu ráð fyrir að olía yrði til neðanjarðar úr kolefnissam- böndum sem þar væri að finna. Meðal þeirra sem settu fram slíkar skýringar var rússneski efnafræðingurinn Mendeljéff á seinni hluta nítjándu aldar, en hann er kunnastur í dag sem faðir lotukerfis efna- fræðinnar yfir frumefnin. Mendeljéff var einn af risum rússneskra r a u n v í s i n d a o g mögulega höfðu kenningar hans sitt að segja um að nokkrir sov- éskir jarðvísinda- menn hófu um miðja síðustu öld að þróa kenningar um að olía yrði til í iðrum jarðar. Rök þeirra voru meðal ann- ars þau að sumar olíulindir væru svo stórar og lægju svo grunnt að útilokað væri að skýra tilurð þeirra með viðteknu líkön- unum, þá hefði ekki tekist að endur- skapa á tilraunastofum aðstæður sem breyttu jurtaleifum í olíu þrátt fyrir miklar tilraunir. Sovétmennirnir settu þess í stað fram hugmynd um að geysilegt magn kolefnis væri að finna inni í jörðinni, sem stigi jafnt og þétt upp til yfirborðsins. Þegar það kæmist í snertingu við jarðlög tiltölulega ofarlega í jarðskorpunni yrði á því breyting og útkoman væri jarðolía. Kenningar þessar vöktu nokkra athygli í heimalandi vísindamann- anna, en birtust einungis á rúss- nesku og í vísindaritum sem vöktu litla athygli á Vesturlöndum. Bresk-austurríski vísindamað- urinn Thomas Gold hafði í það minnsta aldrei heyrt um pælingar hinna sovésku starfsbræðra sinna þegar hann fór á sjötta áratugnum að velta fyrir sér uppruna jarðolíu. Niðurstöður hans voru í grunninn þær sömu: að djúpt í jörðu væri ógrynni kolefnis sem hefði í millj- arða ára reynt að leita út. Stundum, til að mynda vegna jarðskjálfta, opnuðust glufur fyrir efnið sem streymdi þá uppávið uns það væri fangað í hellum eða sprung- um langt fyrir neðan yfirborðið. Þar yrði efnið fæða fyrir örverur sem lifðu djúpt ofan í jörðinni. Þetta skýrði þau lífrænu efna- sambönd sem finnast í jarðolíu. Olía væri því ekki í grunninn lífrænt efni sem jarðfræði- legir ferlar breyttu í eldsneyti, heldur jarðefni sem yrði að eldsneyti fyrir tilstilli lífrænna ferla. Blendnar viðtökur Gold taldi að kenning sín gæti falið í sér svarið við ýmsum ráðgátum vísindanna, þar á meðal spurningunni um uppruna lífs á jörðinni. Þannig mætti finna kolefnasambönd á yfirborði annarra pláneta og tungla í sólkerfinu. Hvað væri því til fyrirstöðu að sömu örveruferlar væru að verki þar líka? Sérstaða okkar reikistjörnu væri þá aðeins fólgin í því að lífið hefði leitað upp á yfirborðið og þróast áfram þar. Uppgötvanir á áttunda og níunda áratugnum, þar sem vísindamenn rákust á líf við sífellt ólíklegri aðstæður, í dýpstu hafdjúpum eða hitakærar örverur sem nærðust á efnum sem eru öðru lífi baneitruð, urðu aðeins til að styrkja Gold í sannfær- ingu sinni. Kenningin um neðan- jarðaruppsprettur olí- unnar sneri öllum viðteknum jarðfræði- hugmyndum á haus og undir eðlilegum kringumstæðum hefði Thomas Gold verið sleg- inn út af borð- inu eins og hver annar vitleysingur. En vandinn er að Thomas Gold var ekki hver annar vitleysingur. Hann var þvert á móti einn snjallasti og áhrifamesti vísinda- maður sinnar tíðar. Gold flúði ungur maður vestur um haf með fjölskyldu sinni undan uppgangi nasista í Evrópu. Í hinu nýja heimalandi kom hann að fjölda merkilegra rannsókna, svo sem á ratsjártækninni. Síðar setti hann upp stærstu og öflugustu útvarpssjónauka sem smíðaðir höfðu verið til stjörnufræðirann- sókna. Við þá vinnu réð hann sér ungan aðstoðarmann, Carl Sagan, sem síðar varð frægasti stjörnu- fræðingur í heimi. Bandaríska geimferðastofnunin NASA hafði Gold sér til ráðgjafar í tengslum við tungllendinguna, en honum var meðal annars falið að svara þeirri spurning hvort yfir- borð tunglsins væri þétt í sér eða hvort geimfararnir myndu sökkva í botnlaust kvik- syndi. Frægastur er hann þó fyrir þátt sinn í að skýra tilvist tifstjarna, sem upp- götvuðust seint á sjöunda áratugnum. Stjörnufræðiafrek og talsverður sannfæringarkraftur Thomasar Gold gerðu það að verkum að erfitt var að hunsa jarðfræði- kenningar hans, þótt óneitanlega lægju þær talsvert utan hans sér- sviðs. Viðbrögð olíujarðfræðing- anna urðu hins vegar heiftúðleg. Ritstjórar bóka sem voguðu sér að birta greinar um efnið fengu yfir sig holskeflu kvartana og jafnvel hótana. Dæmi var um að slík rit væru innkölluð og upp- laginu fargað. Vísindasagnfræðingarnir Harry Collins og Trevor Pinch, sem rann- sökuðu deilurnar, benda á að harkan komi ekki á óvart. Vísindin vilji draga upp þá mynd af sér að þau snúist um tæra þekkingarleit þar sem byltingarkenndum til- gátum sé tekið vel og þær ýmist sannreyndar eða afsannaðar með tilraunum. Veruleikinn sé flóknari og þar blandist inn í hagsmunir og átök um fjármagn. Ef Gold hefði á réttu að standa væri unnt að finna olíu nánast hvar sem væri. Gríðarleg fjárfesting olíufyrirtækja væri þar með farin í súginn og vísindamenn ættu fyrir höndum erfitt samtal við vinnuveit- endur sína þess efnis að starf þeirra síðustu áratugina hefði allt byggst á misskilningi. Engin undirgrein vís- indanna kærir sig um að láta sópa undan sér fótunum í einu vetfangi. Á níunda áratugnum fékk Gold færi á að láta á kenningu sína reyna, þegar fjárfestar féllust á að fjármagna boranir á Siljan-svæð- inu í Svíþjóð, í stærsta loftsteinsgíg Evrópu. Öllum að óvörum tókst bormönnum að dæla upp nokkru magni af olíu. Gold taldi sig hafa sannað mál sitt, en fljótlega tókst gagnrýnendum hans að finna aðrar mögulegar skýringar á olíufundin- um. Áframhaldandi boranir skiluðu heldur ekki afgerandi niðurstöðu og fljótlega misstu fjárfestarnir þolin- mæðina. Markmið þeirra var að finna auðvinnanlega olíu en ekki að eyða stórfé í að skera úr um vísinda- leg deilumál. Thomas Gold lést árið 2004, sannfærður um að kenning sín um uppruna olíu væri rétt. Saga hans er kunnuglegt stef í vísindasögunni. Endalok vísindakenninga eru sjaldnast þau að vera afsannaðar í tilraunum sem allir deiluaðilar samþykkja, heldur lognast þær út af þegar vísindasamfélagið nennir ekki lengur að taka þær alvarlega og höfundar þeirra deyja. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um umdeilda vísinda- kenningu Endalaus olía Vandinn er að ThomaS Gold Var ekki hVer annar ViTleySinGur. 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r32 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 7 4 -4 9 9 C 1 A 7 4 -4 8 6 0 1 A 7 4 -4 7 2 4 1 A 7 4 -4 5 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.