Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.03.1986, Page 2

Víkurfréttir - 13.03.1986, Page 2
2 Fimmtudagur 13. mars 1986 VÍKUR-fréttir ViKun fUUit ■5 Útgefandi: Víkur-fréttir hf. Afgreiðsla, rifstjórn og auglýsingar: Vallargötu 14, II. hæð - Sími 4717 - Box 125 - 230 Keflavík Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Fréttastjóri: Emil Páll Jónsson, Emil Páll Jónsson heimasimi 2677 Páll Ketilsson, Auglýsingastjóri: heimasími 3707 Páll Ketilsson Upplag: 4500 eintök, sem dreift er ókeypls um öll Suðurnes hvern fimmtudag. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF.. Keflavik Fasteignaþjónusta Suðurnesja Heiðarbraut 17, Keflavík: Miðgarður 6, Keflavík: 138 m2 nýlegt einbýlishús Gott raðhús á góðum stað. með tvöföldum bílskúr. Vel Laust strax skipti möguieg. staðsett. r a M KEFLAVÍK: Eldra einbýlishús við Klapparstig, laust fljótlega 1.200.000 Raðhús m/bílskúr við Greniteig. Skipti möguleg á 4-5 herb. íbúð. Raðhús við Faxabraut m/bílskúr. Skipti áódýrari eign möguleg. Einbýlishús við Óðinsvelli úr timbri. Skipti möguleg. Efri hæð við Hátún m/bílskúr. Ekkert áhvílandi 2.400.000 Góð neðri hæð við Vatnsnesveg m/bílskúr. 97 m2 neðri hæð við Skólaveg ............ 1.400.000 Parhús við Heiðarholt, 100 ferm. með bílskúr. Skipti möguleg. NJARÐVÍK: Neðri hæð við Fífumóa, 3ja herb.. Sér inngangur. Úrval 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúða við Fífumóa og Hjallaveg. Iðnaðarhúsnæði við Holtsgötu í Njarðvik, fokh. 1.500.000 Raðhús í smíðum við Háseylu í Njarðvík. Teikn- ingar fyrirliggjandi. SANDGERÐI: Einbýlishús (Selfosshús) við Stafnesveg . 2.300.000 Einbýlishús (timburhús) í góðu ástandi við Bjarmaland ............................. 2.300.000 Höfum kaupanda að góðri sérhæð. Verð ca. .. 2.000.000 GRINDAVÍK: Gott einbýlishús við Mánagötu með bílskúr ... 3.000.000 Efri hæð við Víkurbraut................. 1.050.000 Nýlegt einbýlishús við Efstahraun með bílskúr 3.500.000 Fasteignaþjónusta Suðurnesja Hafnargötu 31, II. hæð - Keflavik - Simar: 3441, 3722 „Við höldum fíkniefna- dreifingunni í skefjum“ r - segir Oskar Þórmundsson, lögreglufulltrúi „Almenningur á kröfu á að þessum málaflokki sé sinnt af alefli, foreldrar eiga kröfu á því að unglingar og ungt fólk sé varað við þessu. Þess vegna finnst mér rétt að fólki sé gerð grein fyrir því að stjórnvöld hafa nú ákveðið að herða tökin og verja til þess aukn- um fjármunum“, sagði Óskar Þórmundsson, ný- skipaður lögreglufulltrúi við ávana- og fíkniefna- deild lögreglunnar í deild lögreglunnar í Kefla- vík, í viðtali við blaðið. Jafnframt þessari tilskip- un dómsmálaráðherra til Óskars, hefur verið fjölgað um einn mann í rannsókn- arlögreglunni og á sá maður að sinna þessum málaflokki eins og Óskar, öðru fremur. Þá sagði Ósk- ar: „Það er ljóst að dóms- málaráðherra vill láta herða á þessu og taka málin föstum tökum sbr. það sem er að ske í sambandi við veitingahúsin og skemmti- staðina, að veitingamenn eiga að taka meira eftir því sem er að ske í kringum þá“. En hvernig er ástand mála hér syðra? „Astandið er í rauninni ekki slæmt hér í Keflavík, miðað við staði eins og Reykjavík, því hér áður fyrr var Keflavík fíkniefnabæli, eins og frægt varð. Samt er nóg af hassi og spítti hér alls staðar og tiltölulega auðvelt er að komast yfir þetta. En engu að síður held ég að þær alverstu séu farnir héðan og við höfum náð að halda þeim sem eftir eru í skefjum, og því verða þeir að hafa þetta meira í felum heldur en t.d. í Reykjavík. Hér er allt fljótt að frétt- ast og almenningur verður ekki mikið var við þetta, þó það sé fyrir hendi. Kom þetta best fram um áramót- in, þegar fíkniefnadómar- HAGKAUP Njaróvík,sími 3655 VERKTAKAR HF. Reyðarfirði kynnir DEMANTSSÍLD frá kl. 14-19 á morgun, föstudag. Mjög góður kynningarafsláttur. VERKTAKAR HF. inn kom hingað suður og gerð var dómsátt í málum 18 aðila, en bróðurpartur- inn af þeim hafði aldrei komið á skrá en viður- kenndi þó að hafa neytt fíkniefna í þrjú til fjögur ár. Var þetta fólk um tvítugt. Hefur þetta fólk getað neytt fíkniefna án þess að það fréttist allan þennan tima. Þetta fólk var að mestu úr Sandgerði og virðast íbú- arnir í byggðarlaginu ekki hafa heldur orðið varir við þetta. Sama var með þá sem við handtókum fyrir stuttu í Grindavík. Voru þeir handteknir í verbúð og voru þeir með efnið á sér. Það er ljóst að við ætlum að gera ennþá betur en áður, og reyna að komast yfir þetta. Þeir aðilar sem eru hér í dreifingu virðast hafa dregið af sér. Ef það tekst að halda þessu niðri mun það unga fólk sem ekki hefur prófað þetta, ekki fá tækifæri til slíks. Þá munu dreifingaraðilarnir ekki þora að láta til sín sjást og munu því fara leynilegar með þetta. Við gerum okkur grein fyrir því að við komumst aldrei alveg í veg fyrir að þetta efni komi til landsins, því miklir fjár- munir eru með í spilinu og ekki er hægt að girða landið af‘. Hvernig kemur efnið að- allega til landsins? „Mest með skipum, því eftirlitið með fluginu er miklu betra“. Hvað er haldið að mikið magn sé í gangi hérna? „Það veit enginn hve mikið efni kemur til lands- ins, en samkvæmt skýrslu Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis SAÁ, vill hann meina að hingað til lands komi 3-400 kg af hassi á ári. Reiknar hann þetta út frá því fólki sem komið hefur í meðferð til hans og það magn sem það fólk hefur gefið upp og hefur neytt. Til viðbótar er þvi það magn sem það fólk notar sem ekki hefur farið í meðferð, sem er miklu fleira. Ef við göngum út frá 3- 400 kg, þá eru þetta um 300 milljónir í peningum sem fara í gegnum hendur þess- ara fíkniefnasala. Þó er hér aðeins rætt um hassið, og spíttið ekki tekið með, en það er miklu dýrara en hassið í innkaupum, svo sjálfsagt má bæta þarna við einhverjum hundruðum milljónum. Eru því miklir peningar í spilinu“, sagði Oskar að lokum. - epj. Efst og neðst sjást heimatilbúnar pípur gerðar úr rörafittings. Ljósa efnið er Líbanon-hass, það dökka (minni kögglarnir) er Nepal-hass, og í miðjunni er hefðbundin hasspípa. Bátur skemmdist við hífingu Næst síðasta sunnudag skemmdist 10 tonna bátur, Hlýri GK 305, nokkuð er hann féll niður á bryggjuna er krani var að hífa hann. Gerðist óhapp þetta á bryggjunni í Garðinum. Orsök óhappsins er að hífingarvírinn slitnaði. epj-

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.