Víkurfréttir - 13.03.1986, Page 8
8 Fimmtudagur 13. mars 1986
VfKUR-fréttir
Bifhjólapróf
Verð með námskeið og æfingatímatil und-
irbúnings bifhjólaprófs í Keflavík n.k. laug-
ardag, ef næg þátttaka fæst og veður leyfir.
Halldór Jónsson, ökukennari
sími 91-83473 - Bílasími 002-2390
Keflavík - Atvinna
Óskum eftirað ráða afgreiðslumann ívara-
hlutaverslun okkareigi síðaren 1. apríl n.k.
STAPAFELL - Keflavík
Einstæðir
foreldrar,
Njarðvík
Á fundi bæjarstjórnar Njarðvíkur hinn 4.
mars sl., var samþykkt að veita einstæðum
foreldrum 0-6 ára barna, sem ekki eiga
kost á dagheimilisplássi en kaupa þjón-
ustu hjá dagmæðrum, styrk að upphæð
kr. 2.500 pr. mánuð fyrir hvert barn sem er í
heildagsvistun.
Umsóknir berist félagsmálafulltrúa og skal
reikningur frá dagmóður fylgja með.
Félagsmálafulltrúinn
í Njarðvík
Aðalfundur
Sálarrannsóknarfélags
Suöurnesja
veröur haldinn mánudag-
inn 17. mars kl. 20.30 í húsi
félagsins, Túngötu 22,
Keflavík.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar, fjölmennið!
Stjórnin
Frá afhendingu tækjanna. F.v.: Ingólfur Falsson, Sveinlaug Sveinsdóttir, Rósa Jónsdóttir, Sigríður
Ingibjörnsdóttir, Hallgrímur Magnússon, Kristján Sigurðsson og Arnheiður Ingólfsdóttir.
Líknarsjóður Finnbjargar Sigurðardóttur
frá Felli, Sandgerði:
Gaf Sjúkrahúsinu blóð-
hitara og lyfjadælu
Á fimmtudag í síðustu
viku var Sjúkrahúsi Kefla-
víkurlæknishéraðs afhent
vegleg gjöf frá Líknarsjóði
Finnbjargar Sigurðardótt-
ur frá Felli í Sandgerði.
Formaður sjóðsins og
stofnandi, Sveinlaug
Sveinsdóttir, afhenti gjöf-.
ina en f.h. Sjúkrahússins
tók stjórnarformaður þess,
Ingólfur Falsson, við
henni.
Viðstaddir afhendingu
þessa voru auk áður-
nefndra Rósa Jónsdóttir,
gjaldkeri sjóðsins, og Sigr-
íður Ingibjörnsdóttir, for-
maður Kvenfélagsins Hvat-
ar í Miðneshreppi, en sjóð-
urinn starfar sjálfstæður
innan þess félags. Frá
Sjúkrahúsinu voru Kristján
Sigurðsson, yfirlæknir,
Hallgrímur Magnússon,
skurðlæknir og Arnheiður
Ingólfsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri. Þá var blaðamað-
ur Víkur-frétta einnig við-
staddur.
Kom það í hlut Hall-
gríms Magnússonar að lýsa
tækjunum en um var að
ræða blóðhitara og lyfja-
dælu. Sagði hann að við
stærri aðgerðir, er gefa
þyrfti sjúklingi meira en
1000 millilítra af blóði, væri
talið nauðsynlegt að hita
blóðið upp í líkamshita.
Væri tæki þetta mjög
nauðsynlegt til slíks.
Hitt tækið er fyrirferðar-
lítil en handhæg lyfjadæla.
Sem notast þannig að
sprauta með ákveðnum
skammti af einhverju lyfi er
sett í tækið og með stilling-
um á því, sér tækið um að
skammta lyfið eftir ákveðn-
um reglum og á ákveðnum
tímum handa viðkomandi
sjúkling.
Gæti viðkomandi
skammtur dugað í allt að
sólarhring. Er tækið það
handhægt að það getur
verið í vasa sjúklingsins eða
fest utan á hann og getur
hann því yfirgefið sjúkra-
húsið, farið út, eða verið
jafnvel til vistunar í heima-
húsi. Og yrði með þessu
móti mun hreyfanlegri, en
ef hann drægi á eftir sér
viðamikið tæki eins og áður
hefur þekkst. En tæki þetta
má t.d. nota bæði til að gefa
í æð eða t.d. til deyfingar á
verkjum.
epj.
Miklar hræringar við Hafnargötu
Hjá aðilum í viðskiptalíf-
inu hefur Hafnargatan
ávallt verið talin eins kon-
ar Laugavegur Suðurnesja-
manna. Keppast því sumir
aðilar við að fá húsnæði við
þá götu, meðan aðrir fara
frekar á ýmsar hliðargötur.
Þá eru enn aðrir sem færa
sig til milli húsa við
KEFLVÍKINGAR
MUNIÐ OKKUR
VIÐ MUNUM YKKUR
EINDAGI fyrsta gjalddaga fasteignagjalda 1986 er 15. mars
n.k. Nú eru síðustu forvöð að gera skil.
MUNIÐ að annar gjalddagi fasteignagjalda er 15. mars.
Dráttarvextir reiknast mánuði frá gjalddaga.
BÆJARSJÓÐUR - INNHEIMTA
Hafnargötuna og nú bendir
allt til þess að óvenjuleg
skriða sé í þá átt.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins eru þessar helstar:
Verslunin Kristý fer úr
Víkurbæjarhúsinu í Róm,
þ.e. þann hluta sem Tjarn-
arkaffi hafði áður • Ánn-
etta fer einnig úr Víkurbæj-
arhúsinu og er raunar farin
þangað sem Lipurtá var til
húsa, en sú verslun hefur
flutt sig til Reykjavíkur. •
Hárgreiðslustofan Lilja
Braga flytur yfir götuna og
í hús Skóbúðarinnar, en
þangað flytur einnig Sjón-
varpsbúðin, og síðan mun
Rósa Guðna opna þar
snyrtistofu. • Þá hefur
Femína flutt sig í pláss leik-
tækjasalarins Casino og
Sjóvá fer í pláss það sem
Femína hafði áður.
Að lokum eru uppi þreif-
ingar um sölu Víkurbæjar-
hússins og hefur m.a..
komið til tals að gera það að
elliheimili. - epj.
vlKUIÍ
\{/UUfo
Sterkur
auglýslngamiölll.