Víkurfréttir - 13.03.1986, Side 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 13. mars 1986 15
Nýi grasvöllurinn í Garði, vígður á sl. ári.
Að þessu marki hafði
verið stefnt lengi og mikill
undirbúningur farið fram.
Má í því sambandi nefna að
meistaraflokkur hefurfarið
í keppnisferðalög erlendis.
Fyrst var farið árið 1969 til
Færeyja, þeirrar ferðar
verður getið í léttum dúr
hér á eftir. Með þeirri ferð
hófust samskipti við
Tvöroyrar boltfélag sem
endurguldu þá heimsókn
sama ár. Einnig var skipt á
gagnkvæmum heimsókn-
um árið 1973, en síðan hafa
þessi samskipti legið niðri.
Árið 1979 var íþróttafélag-
ið í Götu í Færeyjum heim-
sótt. Árið 1985 var farið í
æfingabúðir í Englandi. Er
ekki að efa að slíkar ferðir
eru uppbyggjandi og
styrkja félagsandann.
Þá lögðu Víðismenn um
stund iðkun á hand- og
körfuknattleik, en þær
æfingar lögðust niður
vegna aðstöðuleysis. Á
undanförnum árum hefur
Víðir staðið fyrir leikja- og
æfinganámskeiðum_ bæði
hér í Garði og í Iþrótta-
miðstöðinni að Laugar-
vatni.
Aðstaða batnar til muna
Sem fyrr segir var knatt-
spyrnuvöllur félagsins á
Garðskaga. Hefur sá völlur
reynst okkur vel. Árið 1976
verða þáttaskil, en þá er
tekinn í notkun malarvöll-
urinn við Háteig en þar
hafði þá verið skipulagt
framtíðarsvæði félagsins.
Var nú unnt að lengja
æfmgatímabilið.
Árið 1983 hóf Gerða-
hreppur framkvæmdir við
nýjan grasvöll á svæðinu.
Var völlurinn tilbúinn til
keppni árið 1985 og hafði
þeim framkvæmdum þá
verið hraðað í ljósi góðs
Ólafur Róbertsson,
leikmaður Víðis 1985.
árangurs Víðis. Lögðu þar
margir félagar og stuðn-
ingsmenn hönd á plóginn
endurgjaldslaust og mörg
fyrirtæki og einstaklingar
hér í byggðarlaginu lögðu
til farartæki til aksturs á
þökum, einnig endur-
gjaldslaust, og ber að
þakka það.
Árið 1980 hófu Víðis-
menn byggingu félagsheim-
ilis og búningsaðstöðu á
íþróttasvæðinu. Sökklar
voru steyptir 23. sept. sama
ár. I dag er húsið svo til full-
búið. Það rúmar fundarsal,
búningsklefa leikmanna og
dómara, eldhús og geymsl-
ur. Húsið, sem er tæpir 200
ferm., er unnið að lang-
mestu leyti í sjálfboðavinnu
af Víðisfélögum.
Knattspyrnufélagið
hefur haft marga þjálfara
sem hafa átt það sammerkt
að hafa viljað framgang
félagsins sem mestan og
sinnt störfum sínum af
áhuga.
Knattspyrnumenn Víðis
Árið 1981 hófst tilnefn-
ing knattspyrnumanns Víð-
is. Eftirtaldir hafa verið til-
nefndir: 1981: Daníel Ein-
arsson; 1982: Guðjón Guð-
mundsson; 1983: Sigurður
Magnússon og Helgi Sigur-
björnsson; 1984: Guð-
mundur Knútsson; 1985:
Olafur Róbertsson.
Árið 1982 hófst tilnefn-
ing knattspyrnumanns Víð-
is í kvennaflokki. Það ár
hlaut tilnefningu Auður
Finnbogadóttir; 1983: Þóra
Björg Magnúsdóttir og
1984: Auður Finnboga-
dóttir.
Nú eru veittar viður-
kenningar í öllum flokkum
en of langt mál yrði upp að
telja hér. Einnig eru nú veitt
verðlaun markakóngs.
Árið 1985 hlaut þau Guð-
jón Guðmundsson og
Einar Ásbjörn Olafsson.
Verðlaun markakóngs eru
gefin til minningar um lát-
inn félaga, Ingimund Guð-
mundsson.
Allir bikarar hafa verið
gefnir félaginu af Sigurði
Ingvarssyni og Kristínu
Guðmundsdóttur, konu
hans. Er það þakkað hér
sérstaklega.
Það sem hér hefur verið
rakið að framan er engan
veginn tæmandi varðandi
starfsemi félagsins s.l. 50
ár, en ætti þó að gefa fólki
góða hugmynd um þetta
tímabil.
Verður nú vikið að árinu
1986. Félagið hefur þegar
tekið þátt í 3 innanhúss-
mótum í knattspyrnu. Allir
ílokkar í Suðurnesjamót-
inu. Þar urðu bæði Á og B
lið Víðis í meistaraflokki
Suðurnesjameistarar.
Einnig sigraði meistara-
flokkur í Reykjanesmóti.
Þrír bikarar eru því komnir
í safn Víðis á þessu nýbyrj-
aða ári undir stjórn hins ný-
ráðna þjálfara, Kjartans
Mássonar. Lofar þetta
góðu um framhaldið.
Kjartan er boðinn sérstak-
lega velkominn til félags-
ins.
Tilkynnt hefur verið
þátttaka allra flokka í
Islandsmótinu í ár og er
það í fyrsta skipti sem allir
flokkar félagsins taka þátt í
því. Ráðnir hafa verið þjálf-
arar til allra flokka og eru
þeir: Mark Duffield fyrir4.,
5. og 6. flokk og Kjartan
Másson sem þjálfar 2. og 3.
flokk, auk meistaraflokks
sem fyrr vargetið. Jón Rós-
mann Olafsson mun
aðstoða við þjálfun yngri
flokka og Sigurður Ingv-
arsson aðstoðar við þjálfun
eldri flokka.
í tilefni af 50 ára afmæl-
inu hefur nú þegar verið á-
kveðið að í sumar verði
haldinn Víðisdagur, slegnir
hafa verið afmælispening-
ar í kopar, barmmerki út-
búin og unnið að útgáfu af-
mælisrits. Ymsar aðrar
hugmyndir eru síðan í
deiglunni.
Ekki einir í baráttunni
Víðismenn hafa ekki
staðið einir í baráttunni.
Félagið hefur frá fyrstu tíð
notið skilnings, dugnaðar
og fjárhagslegs velvilja
fjölda aðila sem lagst hafa á
eitt að gera hag Víðis sem
mestan. Fyrir það er hér
með þakkað af heilum hug.
Eftir 50 ára starfsemi fél-
agsins er félagið orðið sam-
ofið lífi Garðsins. Þátttaka
mikils fjölda í starfi félags-
ins skilur eftir hjá hverjum
og einum margar ljúfar
minningar sem ekki verða
frá þeim, félaginu né
byggðarlaginu teknar. Að
lokum eru allir Víðismenn
og stuðningsmenn Víðis
hvattir til þess að standa
dyggan vörð um framgang
félagsins, svo viðgangur
þess og Garðsins megi
verða sem allra mestur um
ókomin ár.
(Rœdii þcssaflulti Sigurður Ingv-
arsson á afmtrlishðtið Viðis. Grein-
in er unnin afnokkrum Viðis-féiög-
wn).
Víðis-kvartettinn kvaddi á afmxlishátiðinni eftir 17 ára söngferil.
F.v.: Sigurður Ingvarsson, Júlíus Baldvinsson, Guðmundur .1.
Knútsson, Omar Jóhannsson og Jóhanncs Arason, undirleikari.
AÐALFUNDIR
deilda Kaupfélags Suðurnesja
verða haldnir sem hér segir;
1. deild: (Félagsmenn norðan Aðalgötu í Keflavík), þriðjudaginn 25.
mars kl. 20.30 í kaffistofu Samkaupa.
2. deild: (Félagsmenn sunnan Aðalgötu í Keflavík), mánudaginn
24. mars kl. 20.30 í kaffistofu Samkaupa.
3. deild: (Félagsmenn í Njarðvík), mánudaginn 17. mars kl. 20.30
í kaffistofu Samkaupa.
4. deild: (Félagsmenn í Grindavík), þriðjudaginn 18. mars kl. 20.30
í Festi.
5. deild: (Félagsmenn í Sandgerði), föstudaginn 21. mars kl. 20.30
í Slysavarnafélagshúsinu.
6. deild: (Félagsmenn í Garði), laugardaginn 22. mars kl. 13 í Sam-
komuhúsinu.
7. deild: (Félagsmenn í Vogum), miðvikudaginn 19. mars kl. 20.30
í Barnaskólanum.
Dagskrá fundanna samkv. félagslögum.
Félagar! Mætið vel og stundvíslega.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA