Víkurfréttir - 13.03.1986, Qupperneq 20
20 Fimmtudagur 13. mars 1986
„Góður
stígandi“
- sagði Einvarður
Jóhannsson
: *" » * *
-s m 't . !*
í*. -4;
.yjg»
■t, i
lRH*r
*
„Ég náði mér vel á strik í
leiknum, var þó óheppinn í
nokkrum skotum. En þetta
var góður sigur og góður
endir á góðum vetri. Það
hefur verið góður stígandi í
leik okkar í vetur. Tvö töp
fyrir áramót og aðeins eitt
eftir árarnót."
Nú leikur þú bæði körfu-
bolta, og það í nokkrum
flokkum, og svo handbolta.
Verður þú ekki að fara að
velja á milli?
„Jú, ég geri þetta ekki
miklu lengur svona. Ég vel
á milli næsta haust. Eins og
er veit ég ekki hvora grein-
ina ég vel. Kannski kasta
ég bara upp tening, svona í
gríni sagt. Ég á þó frekar
von á að handboltinn verði
ofan á“ sagði Einvarður
Jóhannsson, hinn ungi
leikmaður IBK.
,,Spjörum okk-
ur í 2. deild“
- sagði Magnús Jóns-
son, markvörður
,,Þetta var hörku
skemmtilegur leikur og
góð stemning sem mynd-
aðist. Liðið hefur uppskor-
ið árangur erfiðis. Allir
hafa æft mjög vel í veturog
áhuginn aldrei verið meiri.
Við munum spjara okkur í
2. deild, ég er ekki í nokkr-
um vafa um það.
Hættur? Ég? Sennilega.
Er ekki best að hætta á
toppnum? Það er samt
spennandi að vera áfram.
Ailtaf gaman þegar vel
gengur", sagði Magnús
Jónsson, markvörður IBK,
sem átti mjög góðan leik
gegn Tý. - pket.
VÍKUR-fréttir
fm ■f Íl
Efsta lið 3. deildar íþróttabandalags Keflavíkur, ásamt liðsstjórum.
LANGÞRAÐUR ARANGUR
ÍBK Íslandsmeistarar í 3. deild Íslandsmótsins í hand-
knattleik eftir sigur gegn Tý 23:20 í úrslitaleik mótsins
Langþráður árangur Keflvíkinga í handknattleik varð að
veruleika er liðið sigraði Tý frá Vestmannaeyjum í úrslita-
leik 3. deildar íslandsmótsins í Keflavík sl. laugardag. Loka-
tölur urðu 23-20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 9-8 fyrir
í BK. Glæsilegur árangur hjá ÍBK í vetur. Liðið tapaði aðeins
3 leikjum af 24 og hlaut 42 stig sem sumir segja að sé Islands-
met, að mót í flokkaíþróttum hafi aldrei unnist með svo mikl-
um stigafjölda.
Leikurinn gegn Tý var
spennandi þó IBK hafi haft
forystuna allan tímann sem
mest varð fimm mörk, 15-
10. Keflvíkingar náðu þá
frábærum leikkafla í byrj-
un seinni hálfleiks, sem
gerði útslagið, skoruðu 6
mörk gegn aðeins tveimur.
Þar af voru þrjú mörk í röð
í hraðaupphlaupum. Freyr
var þar fremstur í flokki og
fiskaði oft og iðulega bolt-
ann af Vestmannaeyingum.
Þeir náðu þó að minnka
muninn á nýjan leik en
aldrei niður fyrir 3 mörk og
þannig skildu liðin í leiks-
lok, 23-20
Bæði liðin sýndu
skemmtileg tilþrif en ÍBK
þó öllu meiri. Þeir náðu
góðri forystu strax í byrjun
sem mest varð 3 mörk um
miðjan hálfleikinn, 8-5,
mest fyrir frábæran leik
Einvarðs Jóhannssonar
sem þá hafði skorað4 mörk
og átt þátt í fleirum. Ein-
varður var mjög ógnandi
og Týsarar hertu fljótt
gæsluna á honum sem
opnaði leiðina fyrir aðra
leikmenn IBK. Framtíðar-
leikmaður, Einvarður, en
hann verður að fara að gera
upp hug sinn og velja á milli
körfunnar og handboltans.
Týsarar voru þó ekki á því
að gefa sig og jöfnuðu 9-9.
Gísli Jóhanns kom IBK
aftur yfir, áður en flautað
var til leikhlés, nýkominn
inná og hungraður í að
spila. Hann sannaði til-
verurétt sinn og skoraði síð-
an tvö fyrstu mörkin í
seinni hálfleik. Hleypti
nýju blóði í liðið og kom
IBK á bragðið í hinum góða
leikkafla í byrjun seinni
hálfleiks, sem varð ótvírætt
vendipunktur í leiknum
eins og áður segij.
Bestir í liði ÍBK voru
Einvarður, Theodór og
Freyr. Einnig varði Magn-
ús mjög vel í markinu, alls
14 skot, sem er mjög gott.
Aðrir leikmenn stóðu sig
einnig vel, Gísli, Jón Kr.,
Jón Olsen og Elvar, sem að-
eins lék í vörn, skipti við
Einvarð. Elvar slasaðist
snemma í leiknum á fingri
og lét sig ekki muna um það
og kláraði leikinn.
Áhorfendur voru fjöl-
margir, ekki verið fleiri á
handboltaleik í langa tíð.
Vonandi að aðsókn aukist
þegar ÍBK fer að leika í 2.
deild.
Mörk ÍBK: Freyr 6, Ein-
varður 5, Theodór 5, Gísli
4, Sigurður Björgvins, Jón
Olsen og Elvar eitt hver.
Besti leikmaður Týs var
leikmaður nr. 10, Sverrir
Sverrisson, eldfljótur og
skotfastur, þó hann sé ekki
hár í loftinu. Hann var
markahæstur Týs með 9
mörk.
-pket.
Fram í kvöld í
bikarkeppni
Ekki fá Keflvíkingar
langa hvíld þó liðið hafi
tryggt sér 2. deildar sæti.
í kvöld kl. 20 fá þeir 1.
deildarlið Fram í heim-
sókn í íþróttahús Kefla-
víkur og má búast við
hörkuleik. Er leikurinn
liður í Bikarkeppni HSÍ.
pket.
3. flokkur kvenna:
íslands-
meistarar í
innanhúss-
knattspyrnu
3. flokkur ÍBK í kvenna-
knattspyrnu sigraði í íslands-
mótinu í innanhússknatt-
spyrnu, sem fram fór í íþrótta-
húsinu á Akranesi um sl.
helgi. (BK-stelpurnar unnu
allasfnaleiki ímótinu. - pket.
„Handboltinn á framtíð
fyrir sér 1 Keflavík“
- segir Theodór Sigurðsson,
þjálfari ÍBK
„Það er ekki hægt annað
en að vera ánægður. Okkur
tókst það sem við ætluðum
okkur" sagði Theódór
Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður IBK, en hann
tók sem kunnugt er við
þjálfun ÍBK-liðsins fyrir
þetta tímabil. Var síðast
aðstoðarþjálfari FH, þar
sem hann er upp alinn.
Hefur þjálfað marga yngri
flokka félagsins og leikið
150 leiki með m.fl. FH. Við
spurðum hann hverju hann
þakkaði þennan góða
árangur ÍBK í vetur:
„Markvissari þjálfun og
svo hefur mannskapurinn
lagt sig meira fram en áður.
Gott dæmi um það er
æfmgasóknin, en hún er
95% hjá 17 leikmönnum
sem barist hafa um sæti í
liðinu í vetur. Liðið er farið
að leika nútímalegri hand-
bolta með meiri áherslu á
hraðaupphlaup. Mórallinn
hefur líka verið mjög góður
í hópnum.
Hvernig líst þér á ÍBK-
liðið í 2. deild?
„Það er mikill karakter í
þessum strákum, þannig
að liðið þarf engu að kvíða.
Það verður auðvitað erfið-
ara en ég á von á því að þeir
standi sig. Handboltinn
hér í Keflavík á framtíð
fyrir sér. Eina sem vantar
er meiri aðsókn að leikjum,
þó svo hún haft aukist um
300% í vetur. Einnig mættu
áhorfendur vera meira lif-
andi, taka meiri þátt í
leiknum. Það hefur mikið
að segja, það þekki ég úr
Hafnarfirði" sagði þessi
geðþekki þjálfari ÍBK. ,
„Ég vil að lokum fá að
þakka starfsfólki hússins
fyrir frábæran starfsanda
sem það hefur sýnt okkur.
Svona löguðu hef ég ekki
kynnst áður“.