Morgunblaðið - 05.11.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Hverfisgötu 105
www.storarstelpur.is
Munið bílastæði
á bak við hús
Við erum á facebook
Morgunblaðið/Júlíus
Eignir Borgin ætlar m.a. að selja
Alliance-húsið á næsta ári.
Reykjavíkurborg ætlar að fjárfesta
fyrir tæpa 10 milljarða króna á
næsta ári og alls 40,5 milljarða árin
2017-2020. Stærstu verkefnin eru
skólabyggingar, íþróttamannvirki
og menningarmiðstöð í Úlfarsárdal,
viðbyggingar við Klettaskóla og
Vesturbæjarskóla, útisundlaug við
Sundhöll Reykjavíkur og stækkun
Borgarbókasafns-menningarhúss
við Tryggvagötu.
Þá verður fjárfest í gatnagerð í
nýjum hverfum við Hlíðarenda,
Vogabyggð og Blöndubyggð. Einnig
stendur til að endurnýja götulýsingu
á næstu árum og innleiða nýja
tækni, auk þess sem verja á tals-
verðum fjármunum í viðhald á
gatnakerfi borgarinnar.
Af nærri 10 milljarða fjárfest-
ingum á næsta ári verða 4,3 millj-
arðar í fasteignum, 3,7 milljarðar í
gatnaframkvæmdir, 1,1 milljarður í
vélar, áhöld og tæki og tæpar 700
milljónir vegna Bílastæðasjóðs.
Á næsta ári áætlar borgin að
tekjur af sölu byggingarréttar nemi
nærri 2,4 milljörðum króna. Helm-
ingur þar af er vegna lóðasölu undir
atvinnurekstur, þ.e. við Gylfaflöt,
Hádegismóa, Lambhagaveg, Mjódd,
austasta hluta Suðurlandsbrautar
og á Hólmsheiði.
52 milljarðar í laun
Borgin ráðgerir að sala eigna á
næsta ári skili um 620 milljóna kr.
hagnaði. Þannig á að selja Síðumúla
39, hluta af eignum í Gufunesi og
Alliance-húsið við Grandagarð.
Launakostnaður borgarinnar á
næsta ári mun hækka um 6,6%,
gangi spár eftir, og mun nema nærri
52 milljörðum. Á þessu ári greiðir
borgin 48,6 milljarða í laun.
bjb@mbl.is
Fjárfest fyrir 10 milljarða
Borgin selur byggingarrétt fyrir 2,4 milljarða 3,7 millj-
arðar í gatnaframkvæmdir 620 milljónir af sölu eigna
þannig gerir fjármálaskrifstofa
Reykjavíkurborgar ráð fyrir 2,4%
verðbólgu á þessu ári og sem fyrr
segir 4,9% á næsta ári. Fram kemur
í greinargerðinni að við mat á verð-
bólgunni hafi m.a. verið stuðst við
þjóðhagsspár greiningardeilda og
annarra aðila sem fyrir lágu, um-
fjöllun í 2. hefti Peningamála Seðla-
bankans um möguleg áhrif fram-
hlaðinna þriggja ára kjarasamninga
og verðlagsþróun tímabilsins 2011-
2013 þegar launaþróun var svipuð
og gert sé ráð í forsendum borg-
arinnar nú.
Þá segir í greinargerðinni að for-
sendur verði teknar til endurskoð-
unar við birtingu nýrrar þjóðhags-
spár 13. nóvember næstkomandi,
„eftir því sem tilefni er til,“ eins og
það er orðað í greinargerðinni.
Í Peningamálum Seðlabankans
frá í gær segir m.a. að verðbólgu-
horfur til skamms tíma hafi batnað
nokkuð frá spá bankans í ágúst sl.,
þó enn sé töluverður og vaxandi inn-
lendur verðbólguþrýstingur til stað-
ar. Seðlabankinn segir ástæður fyrir
lægri verðbólguspá í lok árs 2016
skýrast einkum á betri upphafsstöðu
í byrjun árs en áður var spáð, hærra
gengi krónunnar og lægra hrávöru-
og olíuverði.
„Ekki góð vinnubrögð“
Greiningaraðilar, sem Morgun-
blaðið ræddi við, voru flestir sam-
mála um að verðbólguspá Reykja-
víkurborgar væri í hærri kantinum.
Hins vegar hefðu spárnar verið að
breytast mikið á allra síðustu mán-
uðum vegna gengisþróunar og
verðþróunar á hrávöru og olíu, og í
því sambandi var vísað til nýjustu
spár Seðlabankans frá í gær.
Langflest sveitarfélög miða gjarn-
an við þjóðhagsspá Hagstofunnar
við gerð sinna fjárhagsáætlana.
Þannig miðaði t.d. næststærsta
sveitarfélag landsins, Kópavogur,
við uppfærða spá Hagstofunnar síð-
an í júní, 4,5%.
Gunnlaugur Júlíusson, sviðsstjóri
hag- og upplýsingasviðs Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir sam-
bandið reyna að samræma verð-
bólguspár sveitarfélaganna með því
að dreifa og skýra út spána sem
fram kemur í þjóðhagsspá Hagstof-
unnar.
„Markmiðið er að ríkisvaldið og
sveitarfélögin noti hliðstæðar for-
sendur við ákvörðun fjárheimilda
fyrir næsta ár. Það eru ekki góð
vinnubrögð að hvert sveitarfélag sé
að setja upp sína eigin verðbólguspá
út frá eigin forsendum,“ segir Gunn-
laugur.
Birgir Björn Sigurjónsson, fjár-
málastjóri Reykjavíkurborgar, segir
borgina ekki bundna af tilmælum
sambandsins og meti stöðuna á eigin
forsendum. Ekki sé meitlað í stein
að allir eigi að vera á sama stað, þó
að það geti verið ágætt.
„Við horfum bara raunsæjum
augum á hvað miklar launahækkanir
þýða fyrir fyrirtækin í landinu og
hvort mikil framleiðniaukning sé í
pípunum. Við erum ekki langt frá
síðustu þjóðhagsspá en um leið og
næsta spá kemur þá verður þetta
aftur tekið upp hjá okkur, á milli
umræðna í borgarstjórn,“ segir
Birgir Björn og útilokar ekki að þá
verði mögulega farið enn nær þjóð-
hagsspánni.
Meiri verðbólga í borginni
Reykjavíkurborg spáir 4,9% verðbólgu á næsta ári Hærri spá en hjá flestum
öðrum greiningaraðilum Forsendur endurskoðaðar eftir næstu þjóðhagsspá
Forsendur borgarinnar
» Forsendur fjárhagsáætlunar
fyrir næsta ár og fimm ára
áætlun voru unnar í júní sl. og
grundvallaðar á þjóðhagsspá
Hagstofunnar frá apríl sl.
» Í fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar í haust var birt
uppfærð þjóðhagsspá síðan í
júní. Borgin ákvað að breyta
ekki forsendum sínum en end-
urskoða þær eftir birtingu
næstu þjóðhagsspár 13. nóv.
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavíkurborg Fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 gerir ráð fyrir að verðbólga á næsta ári verði 4,9%. Gjöld munu hækka til samræmis við það.
nóv.´15
okt.´15
Verðbólguspár fyrir 2016
jún.´15
okt.´15
nóv.´15
okt.´15
Hækkun á vísitölu neysluverðs á milli ársmeðaltala.
Greiningardeild Íslandsbanka 2,6%
Seðlabankinn 3,3%
Hagdeild ASÍ 3,8%
Greiningardeild Arion banka 4%
Þjóðhagsspá Hagstofunnar 4,5%
Reykjavíkurborg 4,9%
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að vísi-
tala neysluverðs muni hækka um
4,9% á árinu 2016. Er það hærra en
flestir aðrir greiningaraðilar á
markaði hafa spáð að undanförnu.
Nú síðast kynnti Seðlabankinn
nýjustu verðbólguspá sína þegar
Peningamál komu út í gær. Þar er
reiknað með að verðbólga verði að
jafnaði 3,3% á næsta ári, þ.e. hækk-
un á vísitölu neysluverðs á milli árs-
meðaltala.
Þjóðhagsspá Hagstofunnar frá í
sumar gerir ráð fyrir 4,5% verð-
bólgu á næsta ári en von er á nýrri
spá 13. nóvember nk. Hagdeild ASÍ
hefur spáð 3,8% verðbólgu. Grein-
ingardeild Íslandsbanka reiknar
með að verðbólgan verði að jafnaði
2,6% á næsta ári og Arion banki spá-
ir 4% verðbólgu. Íslandsbanki upp-
færði spá sína í gær en spá Arion
banka er frá síðasta mánuði. Síðar í
mánuðinum er von á nýrri spá frá
hagfræðideild Landsbankans.
Gjöld hækkuð miðað við spána
Við ákvörðun um breytingar á
gjaldskrám tekur Reykjavíkurborg
mið af sinni eigin spá og boðar t.d.
4,9% hækkun að jafnaði á gjald-
skrám skóla- og frístundasviðs.
Í greinargerð fjárhagsáætlunar
borgarinnar kemur fram að horfur
um þróun verðbólgu og launa næstu
misserin hafi breyst töluvert í sumar
frá aprílspá Hagstofunnar. Því hafi
verið ákveðið að vinna nýtt mat á
launa-, gengis- og verðlagsforsend-
um.
Verðbólga var metin út frá þróun
launavísitölu og gengisvísitölu og
Þegar fjárhags-
áætlun Reykja-
víkurborgar fyrir
þetta ár var
kynnt í borg-
arstjórn fyrir um
ári reiknaði
meirihlutinn með
jákvæðri rekstr-
arniðurstöðu A-
hluta borg-
arinnar upp á 437
milljónir króna.
Eins og fram kom á fundi borg-
arstjórnar sl. þriðjudag, þegar út-
komuspá fyrir þetta ár var kynnt
samhliða nýrri fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár, þá stefnir allt í 13,4 millj-
arða halla á rekstri A-hluta borg-
arinnar á þessu ári. Verði það nið-
urstaðan skeikar nærri 14
milljörðum í spánni frá í fyrra.
Við kynningu á fjárhagsáætl-
uninni kom fram að skýringar á
miklum halla í ár væru einkum
gjaldfærsla á lífeyrisskuldbind-
ingum borgarinnar og aukinn launa-
kostnaður í kjölfar kjarasamninga.
Vantað hefði upp á greiðslur frá rík-
inu fyrir málefni aldraðra og rekstur
hjúkrunarheimila.
Hefur borgin sett sér það mark-
mið að grunnrekstur A-hluta á
næsta ári verði sjálfbær, sem og í
fimm ára áætlun til ársins 2020.
Spáðu 437
milljónum
kr. í afgang
Stefnir í 13,4 millj-
arða króna halla í ár
Ráðhúsið Áætl-
anir stóðust ekki.
Með fjárhags-
áætlun Reykja-
víkurborgar
fylgir m.a. yfirlit
um starfsemi
skrifstofu borgar-
stjóra og borgar-
ritara. Þar má sjá
að á næsta ári er
búist við 20 við-
talsbeiðnum frá
erlendum fjöl-
miðlum en í lok ágúst sl. voru þær
orðnar 15 á þessu ári. Athygli vekur
að árið 2013, þegar Jón Gnarr var
borgarstjóri, voru viðtalsbeiðnir frá
útlöndum alls 94 og 66 árið 2014.
Móttökur á vegum borgarstjóra
voru 95 árið 2013, fjölgaði í 160 á síð-
asta ári og gert er ráð fyrir sama
fjölda á næsta ári. Í lok ágúst sl.
höfðu 90 móttökur farið fram.
Þá eru taldir upp Facebook-
póstar frá skrifstofu borgarstjóra,
sem voru alls 573 á síðasta ári, voru
orðnir 750 í lok ágúst sl. og áætlun
gerð um 800 slíka pósta á næsta ári.
Færri viðtöl –
fleiri póstar
Dagur B.
Eggertsson