Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015 Jóla skreytingar fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki Skoðum og gerum tilboð endurgjaldslaust Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Það er rétt að hefja þessaumsögn með því að ítrekaað Eva Magnúsdóttir erekki til nema sem hug- arfóstur höfundar Lausnarinnar; staðreynd sem margir láta sig miku varða. Engu skiptir þó í raun hver samdi bókina, hvort það var pía í París eða lúði á Leifsgötunni, og þó höfundareinkenni bendi vissulega sterk- lega til tiltekins rithöfundar þá verður hér ekki lagst í rann- sóknir eða til- gátur. Lausnin segir frá Lísu, ungri konu sem er býsna vel stödd í lífinu, að maður hefði haldið, í góðri og spennandi vinnu og þokkalegum álnum og ekki skuldsettari en gengur og ger- ist með hennar kynslðoð. Þrátt fyr- ir það er hún óhamingjusöm, stendur uppi ein og yfirgefin, ást- laus og einmana. Kærastinn Pétur er farinn frá henni og hún hefur ekkert fyrir stafni nema sakna hans, nærir söknuðinn og nostrar við hann því hún hefur ekkert betra að gera. Vinkonurnar sinna mönnum og börnum og íbúðum og innbúi og hafa ekki tíma til að hanga á kránni, enda eru þær ekki að leita að fersku kjöti, og Lísa treystir sér ekki til að fara ein á veiðar. Líf Lísu er þó ekki bara ham- ingju- og ástlaust heldur eru leið- indin að drepa hana, það að hún þarf að híma heima „alein með Netflix, heilu seríunum af sjón- varpsþáttum sem hún myndi ekki einu sinni hvað hétu daginn eftir“. Já, og svo drekkur hún of mikið, starir dreymandi í glasbotninn en finnur þar ekki fróun. Víst hefur hún allt til alls, eins og nafnadritið í bókinni sannar, en það færir henni ekki lífsfyllingu. Um það leyti sem Lísa nálgast botninn finnur hún lausnina, eða réttara sagt Lausnina – alþjóðlegt fyrirtæki sem hjálpar fólki að upp- fylla það sem í því býr, að finna hamingjuna. Hún rekst á auglýs- ingu á netinu og eftir að hafa tví- stigið um stund slær Lísa til, legg- ur líf sitt í hendurnar á Lausninni. Sú ákvörðun setur líf hennar held- ur en ekki á hliðina: hafi leiðinn, hennar tilbreytingarsnauða líf, ver- ið að gera út af við hana verður líf hennar óforvarandis svo æv- intýralega hörmulegt að það er ekki tími til að láta sér leiðast, hún verður að hafa sig alla við að halda sönsum, eða því litla sem eftir er af þeim. Þó bókin sé fulllengi í gang, og lesandi búinn að fá upp í kok af því hvað leiðindi Lísu eru leiðinleg, þá hrekkur hún svo rækilega í gang og framvindan verður snúin og skemmtileg. Lísa fær óvænta inn- sýn í undirheima Reykjavíkur, fræðist um fíkniefna- og kynlífs- innflutning, fær nasasjón af skuggahliðum lundabúðanna og býr um tíma á sambýlinu frá helvíti, en allt fer vel um síðir – eða hvað? Vonandi er ég ekki að ljóstra of miklu upp um söguþráð bókarinnar þegar ég nefni að endir hennar er hamingjuríkur í meira lagi, sykur- púðar og sæla, einhyrningar og regnbogaæla. Vissulega grunar Lísu að „heimurinn sem hún byggði væri ennþá bara leiktjöld“ en hún er búin að átta sig á því að hlutskipti hennar, leiðindin sem voru að gera útaf við hana, var bara býsna gott, takk fyrir, sér- staklega borið saman við örbirgð, vændi og nútíma þrælahald – svo skal böl bæta að bíða annað verra. Lausnin er ágæt afþreying, skemmtileg gagnrýni á yfirborðs- kenndan gerviheim sýndarsam- félagsmiðla og sölumennsku. Lísa er vissulega ekki aðlaðandi per- sóna, algjör skinka og enginn tögg- ur í henni, en dugar vel til að spegla yfirdrepsskap og innihalds- leysi. Hún er harla sátt við hlut- skipti sitt í lok bókarinnar og hefur vissulega áttað sig á að til eru skuggahliðar á lífinu, en manni finnst að sá þroski sé bara á yf- irborðinu. Leikfang leiðans Ekki Eva Ekki er vitað hver skrifar undir nafni Evu Magnúsdóttur. Skáldsaga Lausnin bbbmn eftir Evu Magnúsdóttur. Mál og menning gefur út. 335 bls. kilja. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Ljósmynd/Shutterstock Leikarinn Liam Neeson mun leika hinn sögu- fræga uppljóstr- ara Mark Felt, sem kallaður var „Deep Throat“ í Watergate- málinu, í njósna- tryllinum Felt. Felt var aðstoð- arforstjóri FBI og aðalheimild- armaður blaðamannanna Wood- wards og Bernstein sem flettu ofan af Watergate-hneykslinu sem leiddi til þess að Richard Nixon sagði af sér sem forseti Bandaríkjanna árið 1974. Neeson leikur „Deep Throat“ Liam Neeson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.