Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015 RÚV okkar allra,“ Ríkisútvarpið„í þjóðarþágu“, fór á dögunum í fundaherferð um landið til að eiga beint samtal við þjóðina og gefa þjóð- inni „tækifæri til að spyrja út í ein- staka þætti í starfseminni, koma með hugmyndir og ábendingar,“ eins og útvarpsstjóri orðaði það.    Nokkrum dögumsíðar kom út skýrsla um rekstur Ríkisútvarpsins og hafa í framhaldi af henni spunnist miklar umræður um stofnunina, rekstur hennar og þjónustu.    Eitt af því sem fram hefur komið ítengslum við skýrsluna er að Ríkisútvarpið neitar að veita allar upplýsingar um reksturinn og ber því við að það sé með skráð skulda- bréf á markaði og megi þess vegna ekki tjá sig. Þetta er einhver aumasta afsökun fyrir pukri og leynimakki opinberrar stofnunar sem um getur.    Ekki batnar það þegar starfs-mannasamtök Ríkisútvarpsins senda frá sér tilkynningu þar sem þau kvarta sáran undan umfjöll- uninni um stofnunina, segja hana „ófaglega“ og að starfsfólk Rík- isútvarpsins segist orðið „lang- þreytt“ á henni.“    Getur verið að þetta sé samastarfsfólkið og fyrir fáeinum dögum vildi eiga samtal við þjóðina um stofnunina?    Telja þeir sem ábyrgð bera árekstri Ríkisútvarpsins að það sé til farsældar fyrir stofnunina að takmarka upplýsingagjöf og að taka umræðum um stofnunina á þennan hátt?    Átti samtalið bara að vera eintal? Magnús Geir Þórðarson Eintal við þjóðina? STAKSTEINAR Veður víða um heim 4.11., kl. 18.00 Reykjavík 4 skýjað Bolungarvík 3 léttskýjað Akureyri 3 léttskýjað Nuuk -5 heiðskírt Þórshöfn 8 léttskýjað Ósló 10 alskýjað Kaupmannahöfn 7 þoka Stokkhólmur 5 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 13 léttskýjað Brussel 13 skýjað Dublin 11 þoka Glasgow 10 þoka London 15 léttskýjað París 15 skýjað Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 8 heiðskírt Berlín 7 heiðskírt Vín 6 þoka Moskva 5 súld Algarve 18 þoka Madríd 13 skýjað Barcelona 18 léttskýjað Mallorca 20 léttskýjað Róm 18 léttskýjað Aþena 15 heiðskírt Winnipeg 3 þoka Montreal 10 skýjað New York 18 heiðskírt Chicago 15 þoka Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 5. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:24 17:00 ÍSAFJÖRÐUR 9:43 16:51 SIGLUFJÖRÐUR 9:26 16:33 DJÚPIVOGUR 8:57 16:26 Rannsókn sem birtist í ritinu BMC Public Health á þriðjudag sýnir að mest er reykt í íslenskum kvikmynd- um. Kom í ljós að reykingar voru sjá- anlegar í 94% íslenskra mynda frá þessu tímabili. „Við þekkjum þetta vel og við höf- um tekið þátt í samevrópskri rann- sókn sem sýndi fram á þessa niður- stöðu og vísum í niðurstöður þeirrar rannsóknar, sem sýna að reykingar í kvikmyndum virðast hafa áhrif á börn og unglinga og við höfum auð- vitað áhyggjur af því,“ segir Viðar Jensson, verkefnisstjóri hjá Land- læknisembættinu. Rannsóknin sem hann vísar til er frá 2011 og er til viðmiðunar í nýju rannsókninni. Í bæklingi sem Landslæknisembættið gaf út í kjöl- farið segir að í hverri kvikmynd sem var skoðuð hafi að meðaltali verið reykt 23 sinnum. Óbeinar tóbaksauglýsingar hafa verið bannaðar með lögum síðan 1997 í Hollywood og setti Evrópu- sambandið svipuð lög fyrir áratug. Rannsakendur segja að stjórnvöld ættu að huga að því að banna áfeng- is- og tóbaksauglýsingar og hætta að styrkja myndir sem sýna áfengi og tóbak. „Við höfum ekki hugað að því að afturkalla styrki ef áfengi og tóbak sést í myndum, það yrði nokkuð flók- in framkvæmd,“ segir Laufey Guð- jónsdóttir, forstöðumaður Kvik- myndamiðstöðvar Íslands. Erfitt að banna kvikmyndareykingar  Reykingar í kvikmyndum virðast hafa áhrif á börn og unglinga Reykur Úr myndinni Bjarnfreðarson þar sem töluvert er púað af reyk. Flugfélagið easyJet hóf í gær beint áætlunarflug á milli Íslands og Stansted-flugvallar í Lundúnum en flugstjórinn um borð var Íslending- urinn Davíð Ásgeirsson. Flogið verður á milli Stansted og Kefla- víkur tvisvar í viku. Stansted er ní- unda flugleið easyJet frá Íslandi en félagið flýgur þegar í beinu flugi frá Keflavík til Manchester, Ed- inborgar, Bristol, Basel, Belfast, Genf, og flugvallanna Luton og Gatwick í London. Þetta er því þriðji flugvöllurinn sem í boði er í flugi félagsins á milli Keflavíkur og London. Í tilefni af jómfrúarfluginu var búin til stytta úr ís af Airbus A320-þotunni sem flýgur á milli staðanna tveggja og blasti hún við farþegum á leið í flug á Stansted í gærmorgun. Fagna Áhöfn vélarinnar og starfs- fólk easyJet og Stansted-flugvallar. Flug til Stansted  Bjóða flug til þriggja flugvalla í London Laugavegi 34, 101 Reykjavík Sími: 551 4301 | gudsteinn.is Guðsteins Eyjólfssonar sf V E R S L U N Höfuðföt frá Bugatti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.